Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 48

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 48
„Hvað fóru þau að gera, Barði og Fanney?“ spurði Daníel. „Ég veit það ekki. Hann er hér í sveitinni, svona öðru hvoru, en hún er í Reykjavík eða Keflavík. Annars má Guð einn vita, hvernig þetta er allt saman,“ ansaði Ranka. „Hvað segið þið mér um hana Sóley? Vitið þið, hvað af henni varð?“ „Hún var hérna hjá okkur í tvö ár. Svo fór hún suður. Síðast heyrði ég frá henni fyrir jólin í fyrra, fékk bréf og kort. Þá var hún úti í Noregi,“ sagði Ranka. „Vitleysa er í þér, kerling. Hún var ekkert í Noregi.“ „Nú, jæja. Hvar var hún þá?“ „Var það ekki í Ameríku, í Dakota?“ ansaði Bensi. „Þú ruglar alltaf saman Evrópu og Ameríku. Það er talsverður spölur þar á milli, hefði ég haldið.“ Ranka fór og náði í kortið og bréfið til að sýna Danna, og mikið rétt: Hvort tveggja var sent frá Noregi. „Hún er góð stúlka, hún Sóley, sannarlega leitun á öðr- um eins mannkostum, og fjölhæfnin mikil,“ þusaði hún, á meðan hann las. „Sá verður heppinn, sem fær hana fyrir lífsförunaut.“ „Ég skil varla, að hann verði neitt heppnari en hinir, sem fá eitthvað annað. Þeir gætu sjálfsagt hrósað happi ekkert síður,“ sagði Bensi hálffúll. Danni var þar í mánuð. Það tíndist alltaf eitthvað til að gera í sveitinni. Svo stóð sauðburðurinn yfir, og þá var venjulega talsverður annatími. Ragnheiður hafði tekið tækilega til í litla herberginu og gert það hreint, og svo málaði Danni það á eftir. Þetta minnti hann á gamla daga, þegar hann var hérna um sumarið. Þó fannst honum eitthvað skorta, líklega vegna þess að fortíðina sá hann í fjarlægð, en nútíðin var hin líðandi stund, sem við öll veitum litla athygli fyrr en eftir á. Svo komst hann að hinu sanna: Hann var ekki sá sami Daníel er gisti þennan stað fyrir rúmum fimm árum. Hann var ekki unglingur lengur, heldur fulltíða maður með nokkra reynslu að baki. Lífið var skóli, sem nemendum sínum dýrkeypta reynslu í einkunna stað, og á því prófi þurfti enginn að falla, ef vilji var fyrir hendi. Samt sem áður voru þeir margir, er lentu í glatkistu og áttu þaðan ekki afturkvæmt. „Hver er sinnar gæfu smiður,“ heyrði hann Guðríði stundum segja, og reyndar fleiri, er höfðu slegið þessu orðatiltæki fram. En hver gat hrósað happi með pálmann í höndunum, alsæll af lífsgleði? Urðu ekki alltaf þau ljón á veginum, er ollu vonbrigðum, sárri hryggð og niðurlægingu? Maðurinn var, þegar á allt var litið, eitt stórt „elsku ég“, — sama um alla hina, bara ef ég kem mínu fram. Svo var líka til nokkuð, sem hét samviska. Hún lék þetta fólk ansi grátt, og það svo, að hún steypti því í glötunina á eftir fórnardýrinu. Þriðja manngerðin var líka til, þeir, er samviskan lét í friði, hversu illt sem þeir gerðu af sér. Það voru úrhrökin. Þetta fornkveðna máltæki var rangt. Merking þess fannst hvergi í raunveruleikanum. Það gat enginn orðið sinnar gæfu smiður. Heimurinn sá fyrir því, -— kerfið, vinirnir og vandafólkið. Svartsýni? Var hann svona neikvæður? Dæmdi hann aðra að ósekju? Nei, þetta var svona, en það þorði enginn að viðurkenna það af hræðslu við sannleikann. Sjómennirnir þekktu lífið. Daníel vissi, hvernig þeir voru, — þeir voru harðjaxlar. Tilveran hafði misþyrmt þeim, en nú lúffuðu þeir ekki fyrir neinu. Þeim var sama um allt, sjálfa sig fyrst og fremst. Fyrir þeim var engu að tapa og til einskis að vinna. Þeir kunnu ekki að elska, — það var fyrir löngu búið að drepa þá tilfinningu. Meðal þessara manna hafði hann verið svo árum skipti. í rauninni var hann gerólíkur þeim. Hann hafði skarpa og næma athyglisgáfu, skildi afstöðu þeirra, en vildi ekki trúa því í raun og veru, að samskipti þeirra við lífið hefðu gert þá eins og freðið grjót. Nú beið hans ekkert annað, þegar hann kæmi úr sveit- inni, en fara aftur á sjóinn. Heima á Hálsi hafði hann orðið fyrir hrakyrðum hjá fósturforeldrum sínum og svívirðingum hjá Jónatan, en hér i Klettakoti átti hann trausta vini. Ranka myndi aldrei bregðast honum, og það rættist úr Bensa. Þegar allt kom til alls, freistaði sveitalífið óneitanlega. En svo var hann kominn til Reykjavíkur eitt kvöldið. Hann leit inn í eldhúsið og stofuna, en þar var enginn. Hvar var Stína? Hún gat varla hafa farið langt, því það voru heitir pottar á eldavélinni. Daníel fór upp og lagði sig. Hann var hálfþreyttur. Samt var þessi þreyta öðruvísi en þegar hann var á sjónum. Nú var hann endurnærður. Á furðuvegum Langferðabíllinn nam staðar utan við sjoppuna. Ökumað- urinn gekk með hendur í vösum umhverfis hann, sparkaði hraustlega í hvern hjólbarðann af öðrum og blístraði gam- alt lag, sem sagði eitthvað um Bjössa á mjólkurbílnum, sem beið við brúsapallinn og svo framvegis. Stúlkan, sem var farþegi, horfði á þessa tilburði og brosti. Henni fannst hann næstum skemmtilega montinn. Svo strunsaði hann inn og pantaði kaffi fyrir tvo. Hún settist á móti honum við borðið og virti fyrir sér hnitmiðaðar hreyfingarnar. Hann beitti eins konar leikni við að innbyrða brauðið og kleinurnar. „Langt eftir?“ spurði hún. „Já. Það er, sko, skrambi langt eftir,“ ansaði hann og hló. „Hefur þú unnið á hóteli áður? Þú ert kannski vön slíkum störfum.“ „Ja, bæði já og nei. Mamma vinnur alltaf á hótelum og matsölum, og ég hef oft gripið inn í það.“ „Býrðu hjá mömmu þinni?“ „Nei. Ég á mitt eigið hús,“ ansaði hún. „Ertu kannski fráskilin?" var næsta spurning, og hann horfði eitthvað svo ísmeygilega á hana. Hún var leið á þessum persónuspurningum. Hvað komu ókunnugum bílstjóra þessir hlutir við? 272 Heima er bezl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.