Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 19
2 Ein af systrum Bjarna og Einars frá Reynistað var Sigríð- ur, sem átti Magnús prest Magnússon í Glaumbæ. Meðal barna þeirra voru Einar bóndi í Krossanesi í Hólmi, faðir Indriða leikritaskálds, og Nikulás, sem bjó síðast á Hall- dórsstöðum á Langholti. Hann dó 1862, hálffimmtugur, þá hreppstjóri sveitar sinnar. Indriði getur Nikulásar í Séð og lifað, segir að þeir bræður hans, faðir sinn og Halldór bóndi í Geldingaholti, hafi talað „með mikilli virðingu um hann fyrir gáfur hans og drengskap og hve mikill bókamaður hann væri“. Indriði lætur svo ummælt, að hann hafi sjálfur hvergi komið þar í sveit sem meira var af bókum en á Halldórsstöðum. „Þær fylltu algjörlega tvo eða þrjá stóra skápa.“ Nikulás Magnússon ritaði dagbók sem nú er varðveitt í Landsbókasafni Islands (Lbs. 1827, 8vo). Hún hefst í árs- byrjun 1835 og nær fram i aprílmánuð 1847. Síðustu árin færir hann ekki í bókina daglega, heldur yfirlitsgreinar um hvern mánuð. í nóvember 1846 segist honum m.a. þannig frá: 4ða þ.ml var haldin erfisdrykkja eftir Staðarbrœður á Reynistað af umboðsmanni Einari og Ragnheiði konu hans með mikilli rausn. Þessir brœður voru Bjarni og Einar, synir Halldórs Vídalíns klausturhaldara á Reynistað. Voru nú liðin 60 ár2 síðan þeir urðu úti á Kjalvegi, en fundust ekki bein þeirra fyrr en í sumar sem leið. Fann þau Jóhannes gamli á Sveinsstöðum3 skammt frá alfaravegi, nefnilega Kjalvegi, en þó miklu nœr en þeir urðu úti í Kjalhrauni, undir steinahrúgu einni;4 flutti síðan að Reynistað og var J. Skaptasen látinn skoða þau og sagði að höfuðbein 2ja manna sem þar voru í vœru önnur úr 14 en hin úr 12 vetra gömlum manni, sem stóð heima við aldur þeirra brœðra þegar þeir urðu úti. Söng Halldór prófastur Jónsson í Glaumbœ yfir beinunum og voru jörðuð vestur undan syðri dyrastaf kirkjunnar. Vorum við þar við náungar þeirra sál. bræðra sem nœstir voru, Halldór, Stefán, Einar á Húsabakka5 og ég, einnig Jón hreppstjóri í Eyhildarholti og Anna kona hansf en ekki voru þar aðrar konur viðstaddar. Orti Gísli Konráðsson erfiljóð eftir þá. Um aldursgreiningu beina þeirra sem fundust nálægt Kjalvegi tala þeir báðir, Einar Bjarnason í Sögu frá Skag- firðingum og Gísli Konráðsson í þætti Grafar-Jóns og Staðarmanna. Einar ritar að Jósep Skaftason kæmi sum- arið 1846 að Reynistað og væri beðinn að skoða beinin; „gjörði hann það og ákvað, úr hvað gömlum mönnum bein þessi væri, og bar það rétt saman við aldur þeirra bræðra“. Einar tekur hér ekki fram, hve gamlir þeir hafi átt að vera 1780, hefur e.t.v. heyrt það eitt sagt eftir skoðunina að allt gengi þetta mál upp og talið sjálfsagt, að þá væri átt við að Bjarni hefði verið „um tvitugt“ og Einar ellefu vetra, eins og Espólín skráði framar í Sögu frá Skagfirðingum og einnig í Árbókum sínum. Gísli Konráðsson segir í áðurnefndum söguþætti, að Reynistaðarhjón hafi sent vestur að Hnausum eftir Jósep Skaftasyni, þegar beinin voru komin í þeirra vörzlu; taldi læknir þau „af manni um tvítugsaldur og unglingi. Þóttust menn þá víst vita, að vera mundu bein Staðarbræðra“. Ekki er ljóst hvaðan Espólín hafði það að Bjarni Reyni- staðarbróðir væri „um tvítugt“ þegar hann varð úti, kannski úr annál föður síns, Espihólsannál. í þinghöldum líkamálsins eru aldursár bræðranna hvergi nefnd (nema verið hafi í dómsskjölum, nú glötuðum, að því er séð verð- ur). Hann segir reyndar í Árbókunum að Bjarni væri elztur af börnum Halldórs Vídalíns og Ragnheiðar Einarsdóttur. Þau giftust í desember 1759 og mætti af þeim sökum standast að hann hafi verið „um tvítugt“ árið 1780. Ekki er heldur óyggjandi, hvaða rök Gísli hefur fyrir aldri Bjarna í þætti sínum, nema séu frá Espólín komin. Eitt atriði öðru fremur gerir það tortryggilegt að Bjarni Halldórsson væri „um tvítugt“ árið 1780: Espólín og Gísli segja að hann væri þá við skólanám, Espólin kallar hann „skólasvein“ í Árbókunum og Sögu frá Skagfirðingum, og Gísli nefnir að hann væri „kominn í skóla á Hólum“ og hefði legið við borð að hann settist í Skálholtsskóla vetur- inn 1780-81, ef svo færi að þeir Staðarmenn tækju sér vist syðra til vors, í þvi skyni að missa ekki vetur úr námi sínu. Þess ætti að sjá stað, hafi Bjarni innritazt í Hólaskóla. Til er skrá yfir pilta sem teknir voru í skólann 1755-1801, samin af Halldóri Hjálmarssyni konrektor (prentuð í ,Skóla- meistarasögum4 séra Jóns Halldórssonar). Þar er hvergi að finna nafn Bjarna Halldórssonar frá Reynistað. Mun hann því aldrei hafa setzt í Hólaskóla. Yngstir voru piltar 13-14 ára, þegar þeir innrituðust í skólann á þessum árum, en flestir þó eldri en það. Hafi nú Bjarni verið um 14 ára 1780, þá er eðlilegt að hann væri ekki kominn í skóla. Sögnin um skólaveru hans gæti á hinn bóginn stafað af því, að hann hafi verið byrjaður að búa sig undir hana með námi, það svo skolazt til í munnmælum og orðið að skólavist á Hól- um. Annars er alleinkennilegt að Espólín og Gísli skuli halda þessu atriði fram, eigi með réttu að því er virðist, svo auðvelt sem átti að vera fyrir þá að hafa um það sannar spurnir. Gísli var fæddur 1787 og heimamaður í Skagafirði óslitið til 1850, að hann flyzt vestur í Barðastrandarsýslu. Hann var og í tengdum við Reynistaðarfólk. Halldór Vídalín dó 1801. Ragnheiður ekkja hans átti áfram heima á Reynistað til dauðadags, 1814, og lifði því ellefu ár samtíða Espólín í Skagafirði, þar eð hann fluttist í héraðið 1803. Eina þokkalega skýring þessarar sagnar má vera sú, að þeir sem gerst vissu hafi ekki verið spurðir. Nikulás Magnússon kann að vera einn til frásagnar um að móðurbróðir hans, Bjarni Halldórsson, væri 14 ára þegar hann týndi lífi. Aftur ber honum nokkurn veginn saman við aðra um aldur Einars (var sagður 11 ára). Það verður að vísu ekki sannað að Nikulás fari með rétt mál,7 þótt dagbókarfærsla hans veki traust að því leyti, að þar en hvergi annars staðar sést nú, á hvaða forsendum Jósep læknir Skaftason kvað upp úrskurð sinn, þ.e. með athugun höfuðbeina* Heimaerbezt 243
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.