Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 47

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 47
RAFN JÓNSSON: PERLUR I MOLD 8. HLUTI OG SÖGULOK „Ha? Giftur? Hann Jónatan! Nei, nei — nei. Hvað seg- irðu? Trúlofaður? Ég veit það ekki.“ Nú hljóp hún frá honum. „Ja, ég hef ekki heyrt hann minnast á slíkt. Hvaða þvæla er í þér, Daníel? Hann á engan krakka. Ég ansa ekki þessu bulli, — nei, ég vil bara ekki heyra það. Nei, það hlýtur að vera einhver annar Jónatan. sem þú ert að meina, — já, einhver annar. Það getur ekki verið um hann Jónatan bróður minn að ræða, — alveg óhugsandi. Hann er ekki svoleiðis maður.“ „Já, Guðríður vissi það. Hún hlaut líka að þekkja bróður sinn, mikil ósköp. En Kristín á Melunum þekkti hann líka. Þau höfðu unnið saman í frystihúsi og auk heldur voru það sambýlis- fólk um tíma. Hann hafði átt neðri hæðina og búið þar með þessari manneskju, en orðið að selja, er þau skildu. Hún Stína var engin sögusmetta, langt frá því. Hún hafði sagt Danna undan og ofan af um heimilislífið hjá Jónatan, en aldrei minnst á hann nema hún væri spurð, og það litla, sem hún hafði sagt, varð hann að toga út úr henni. Hann hafði ekkert verið að „pumpa“ hana, — nei, hon- um kom Jónatan ekkert við. Hann var persóna, er Danni forðaðist. Hann vissi ekki vegna hvers, en svona var það samt. Húsbóndinn tók Daníel fálega, varla að hann talaði við hann. „Sæll, strákur. Þú á ferðinni. Þeir hafa það gott á sjónum. Þeir þurfa ekki að kvarta, sem stunda peningavinnuna. Svo geta þeir frílistað sig út um sveitirnar, eins og þeim sýnist. Það er munur eða við, sem vinnum hörðum höndum fyrir hverri krónu, og allt reytt af manni, sem hægt er að reyta.“ Danni hlustaði þegjandi á þessa ræðu. Hann kom því ekki fyrir sig, hvað hann átti við. Kannski var þetta eins konar mórall, sem húsbóndinn hafði búið sér til sjálfur. Guðríður þagði, en hann sá það á höndum hennar, að hún lét æsast. Þær fóru hraðar og hraðar við verkið, sem hún var að vinna. Augabrúnirnar sigu, ogtvær djúpar hrukkur dýpkuðu, þessar sem lágu neðst á enninu. „Það er nú svona, að við höfum orðið að basla og strita hér heima, enda sér nú á, hvernig þetta hefur gengið. Það er óvíst, að þú hefðir haft það nokkuð lakara að vera hér lengur hjá okkur. Þú gast haldið áfram að eiga nokkrar kindur. Svo hefðum við reynt að borga þér eftir því sem getan leyfði og þú hefðir haft þörf fyrir. Það var stundum sagt, að kálfarnir launuðu ekki ofeldið, enda er það í tísku að yngra fólkið hlaupist undan merkjum." „Hvernig var það? Kom ekki maður í manns stað? Er Jónatan ekki hérna?“ spurði Danni hálfhissa. „Jónatan! Fuh.... Það er illt að þurfa að segja það, að það er betra að vera einn,“ þusaði í húsbóndanum. „Svo þú heldur það, já. Ætli hljóðið í þér hefði ekki verið eitthvað annað, ef Jónatan væri hér ekki? Það mætti segja mér það.“ Daníel stóð upp og gekk út. Hann langaði engan veginn að hlusta á rifrildið í þeim. Hann dvaldi þar í tvo daga og var satt að segja búinn að fá alveg nóg. Af hverju létu þau svona, og af hverju kenndu þau honum um, að búskapurinn gekk illa? Nú, svo var Jónatan með skæting. Honum fórst það, eða hitt þó heldur. Að áliti Daníels hafði hann engin efni á slíku. Hann kvaddi fólkið, svona lauslega, rétt eins og hann ætlaði að skreppa til næsta bæjar. Það var einhvern veginn ekki hægt öðruvísi, enda ætlaði hann að koma við í Klettakoti. Það var hálf óviðkunnanlegt að keyra þar framhjá og líta ekki aðeins heim. Kannski yrði hann fyrir einhverjum skömmum þar, eins og á Hálsi. Hann var hálfhrekkjaður, — fólkið var eitthvað truflað, annað kom ekki til mála. En það var ástæðulaus ótti. Hann minntist þess ekki að nokkru sinni hefði verið tekið jafn innilega á móti honum. Það var engu líkara en hún Ranka væri að endurheimta týnda soninn, meira að segja Bensi þurrkaði vandlega tóbakið úr yfirskegginu, áður en hann smellti næstum föð- urlegum kossi á sæbarða kinn Danna. Þau voru einlæg í gleði sinni, gömlu hjónin í Klettakoti. Bensi var alltaf að segja fréttir úr sveitinni. Nú var Þórður tekinn við búskapnum á Hól, sagði hann. Heima er bezl 271
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.