Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 35
BÚÁLFAR í SKAGAFIRÐI. (Rcynsla Hafstcins Björnssonar af þeim). Hafsteinn Björnsson, sem á efri árum var oftast nefndur Hafsteinn miðill, var fæddur í Hegranesi og fluttist ungur (4 ára?) að Glaumbæ í Skagafirði, nánar tiltekið að býlinu Hátúni. Þar bjó þá gömul kona, að nafni Aðalbjörg, í litlu afhýsi, og þar varð ungi snáðinn vitni að undarlegum at- burði, sem hann lýsti svo löngu síðar í endurminningum sínum (Sögur úr safni Hafsteins miðils, Rvík. 1972, bls. 16- 17). Hafsteinn er að sniglast eitthvað fyrir framan bæjardyrn- ar hjá Aðalbjörgu og líta eftir kettinum, sem er þar einnig. Allt í einu sér hann kisu setja á sig kryppu og hvæsa inn í dyrnar. Þarna er eitthvað á seiði: „Hvað skauzt þarna fram fyrir stafina í bæjardyrunum. Var þetta barn sem hún sá? Já, það var lítill strákur, svona á að gizka tveggja ára, en í útliti gamall, eftir stærðinni að dæma. En mikið var hann einkennilegur þessi strákur, svona þrekinn yfir herð- arnar, magamikill og þykkleitur í andliti. En hvað var nú þetta? Var hann ekki með skegg strákurinn? Jú, það leyndi sér ekki. Hann hafði úlfgrátt kragaskegg, en var rakaður kringum munninn. En hver gat þetta verið. Égglápti á þessa manneskju, eins og naut á nývirki. “ Síðan fær hann eftirfarandi skýringu hjá Aðalbjörgu: „Þetta er vinur minn, og hann er búinn að vera það lengi. A meðan hann er í mínum húsum, verður aldrei tómt í búrinu hjá mér. Ég skal segja þér, að þetta er búálfur, og búálfar slá sér að þar sem þeir finna hlýju og samúð okkar mannanna og fá að vera í friði. Eins þykir þeim mjög gott að vera þar sem ostur er, og eins og þú veizt bý ég stundum til osta, bæði mysuost og mjólkurost.“ Við spurningu Hafsteins hvort þeir éti þá ekki ostinn, svarar hún: „Onei, ætli þeir láti sér ekki nægja lyktina af honum, væni minn.“ Þessi atburður gerðist sumarið 1918, og sést af því að bú- álfar hafa verið þekktir í Skagafirði um eða nokkru fyrir aldamótin 1900, þótt ekki sé víst að þeir hafi verið nefndir þessu nafni, þar sem frásögn Hafsteins er skrifuð svo löngu síðar, þegar búálfar voru orðnir meira umtalaðir. Lýsing Hafsteins á álfinum og upplýsingar gömlu kon- unnar um hann, stemma vel við það sem þekkt er um slíka álfa á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Ýmislegt fleira er haft eftir Hafsteini um búálfana. Hér verður stuðst við bók Jónasar Þorbergssonar: Líf er að loknu þessu. Rvík. 1962, og grein séra Jóns Thorarens- en í bókinni Leitið og þér munuð finna. Hafnarfirði 1965. Hafa þeir báðir skráð lýsingar á búálfum eftir Hafsteini. „Þcir cru um 1-2 fct á hæð, gildvaxnir, fótleggjastuttir, frcmur ófríðir, kinnbcinamiklir, oft með kragaskegg." (Jónas, bls. 70). „Þcir cru afar feitlagnir, og þykkleitir í andliti. Karlmenn cru alltaf með skegghýjung stífan á höku, en grisjað og lint skegg í vöngum. Búálfar eru mjög broslegir á svipinn.“ (Jón bls. 187). „Búálfar eru klæddir að átjándu og nítjándu aldar sið. Ég hefi oft séð þá í bláum prjónabrókum, girtum niður í sokkana, en með spennum fyrir neðan hnéð, þar á þrír silfurhnappar, utan- fótar.“ (Jón). „Þeir halda sig einkum þar sem er eitthvað mat- arkyns, eru snarir að skjótast bak við hluti, þar sem þeir hafa afdrep, en gægjast síðan fyrir horn. Þeir eru gamansamir, glett- nir og gefnir fyrir að herma eftir, það sem sérlegt er eða afkára- legt í fari manna. Búálfar gera engum mein, en eru trygglyndir og heimilisfastir." (Jónas). „Þeir eru framúrskarandi forvitnir, og eru yfirleitt þar sem mjólkurmatur er. Ég kom einu sinni í ostageymslu í mjólkurbúi. Þar voru búálfar svo tugum skipti innanum ostana, og gægðust allsstaðar fram milli ostahlemm- anna. Ein búálfahjón fylgja yfirleitt hverjum bæ, og eru alltaf til heilla, enda eru þeir eigingjarnir fyrir hönd húsbænda sinna.“ (Jón). Lýsingar Hafsteins á búálfunum eru furðu nákvæmar, og verða varla bornar brigður á, að hann lýsir þeim af eigin reynslu, þótt ekki sé hægt að fortaka að hugmyndir manna um búálfana í Skandinavíu geti blandast saman við hjá honum, því hann var þá bæði orðinn víðlesinn og hafði víða ferðast og kynnst mönnum og málefnum. Þótt lýsingin stemmi vel við það sem menn vita um slíka álfa á Norður- löndum og víðar í Evrópu, er samt athyglisvert að Haf- steinn minnist ekki á höfuðbúnað búálfanna, sem víðast hvar í Evrópu er talinn vera rauð eða rauðleit topphúfa. Þá eru þeir yfirleitt taldir vera alskeggjaðir en ekki með skeggkraga, og ganga í stígvélaskóm. Hafsteinn getur fóta- búnaðarins ekki, þótt ætla megi að hann hafi verið sauð- skinnsskór úr því hans er ekki sérstaklega getið. BÚÁLFAR Á AKUREYRI. Margrét Thorlacius frá Öxnafelli hefur frá ýmsu að segja í sambandi við búálfa og skyld fyrirbæri. Þetta hefur Eirík- ur Sigurðsson skólastjóri á Akureyri, ritað upp eftir henni. (Skyggna konan 1, bls. 56). „Meðan við bjuggum í Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri, varð ég vör við veru þar í garðinum, sem ég nefndi búálf. Hann var 50- 60 sm á hæð, höfuðstór, og andlitið stórskorið og ellilegt. Hann var í stuttum buxum, með sokkana utan yfir, og í löngum, totu- mjóum skóm. Hann var í stakki og með rauða topphúfu. Hann hélt sig í runna í suðausturhorni garðsins.“ Síðan segir Margrét frá því, að hún flutti þaðan í Þórunn- arstræti 119 árið 1953, en þá varð búálfurinn eftir. Reyndi hún að tala við hann og fá hann til að flytja, og eftir 1-2 ár kom hann og settist fyrst að í, ,tjaldskýli“ á bakvið húsið þar sem Bergsveinn maður Margrétar var að smíða bát. Heyrði Margrét oft þrusk þar á daginn þegar skýlið var mannlaust. „Nokkrir hlutir hurfu úr skýlinu, og var ekki laust við að Berg- sveinn kenndi búálfinum um hvarf þeirra, enda eru álfar taldir hrekkjóttir.“ Þegar skýlið var rifið, kom álfurinn svo inn í stofu til Margrétar og settist þar að. Hélt hann sig mest í einu horni stofunnar, bakvið stórt Apatistu-blóm. „Stundum kom hann fram í eldhús og tók laust í pilsið mitt, og þegar ég leit við, horfði hann til mín glettnislega. Ég sá hann aldrei nema þegar ég var ein.“ Heimaerbezt 259
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.