Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 26
LANDKYNNING HEIMA ER BEZT 3 FLJÓTSDALUR Nokkru innan við Hall- ormsstaðaskóg á Fijóts- dalshéraði við Fijótsbotn skilur Gilsá miiii Suður- og Norður-Múlasýslu. Þar fyrir innan tekur við sveitin Fljótsdalur. Norðan Fljóts- ins á móts við norðurmörk Hallormsstaðarskógar deilir Hrafnsgerðisá Fell- um og Fljótsdal. Rétt er að geta þess að á Héraði eru norður og austur gagnstæðar áttir og þess vegna eru aðeins norður- og austurbakki á Fljótinu, en enginn suður- og vesturbakki. Fljótsdalur hefur grafist í þykkan stafla af berglögum. Þau elstu eru yst í sveitinni um 8 milljón ára gömul. Öllum berglögum I dalnum hallar niður til vest- urs inn undir heiðarnar. Þar sem Norður- dalur liggur til suð-vesturs má fylgja berg- lögunum, og sjá þau lækka I hlíðunum inn eftir dalnum og hverfa loks I dalbotn- inn. Einnig má sjá, að sama berglag stendur mun hærra I Múla Suðurdals- megin. Þar eru klettastallarnir láréttir (sjá mynd), vegna þess að hlíðin stefnir horn- rétt á halla jarðlaganna. Það kallast á máli jarðfræðinga strik jarðlaganna. Berglagastaflinn geymir margvís- legan fróðleik um löngu liðinn tíma. Þar er að finna steingervinga sem bera lífríki fyrri alda vitni. Jafnframt gefa þeir til kynna loftslag. Einnig má lesa úr jarð- lögunum nokkuð um landslag áður en ísöldgekkígarð. Berglögin eru að mestum hluta basalt- hraunlög sem ollið hafa upp úr sprungum á borð við Lúdentsborgir (sjá grein um Mývatnssveit í apríl hefti H.e.b. 1985), eða dyngjum líkum Skjaldbreið. Glöggt má sjá, að mörg þessara hrauna hafa runnið um skógivaxið land, því að í bas- altlögunum eru víða holur eftir trjástofna, suma allmyndarlega. Einkum eru þau skýr ofan við Jónsfoss í Bessastaðaá, rétt utan myndar til hægri. í sumum holunum er að finna mót eftir kolaða trjástofna, jafnvel svo að lesa má árhringina I viðnum og annarsstaðar eru för eftir börk trjánna. Þessháttar leifar skóga er að finna mjög víða á Austur- landi, Norðurlandi og Vestfjörðum og munu vera einhverjar algengustu minjar um líf áfyrri jarðsögutímabilum íslands. Á milli basaltlaganna eru víða þykk lög af sandi, leir og möl. Þau hafa harðnað og orðið að setbergi. Með nokk- urri vissu má segja, að þau hafi myndast í lægðum, sennilega grunnum stöðu- vötnum. Sumstaðar má sjá Ijós bönd í setlögunum, sem eru ösku og vikurlög frá einhverri megineldstöð, ámóta og Snæ- fell sem blasir við sjónum þegar litið er innFljótsdal. Megineldstöðvar hafa verið virkar á öllum tímum, síðast nú fyrir 100 árum, sem sjá má hvar sem stungið er reku í grassvörðinn í Fljótsdal að þá kemur upp í skóflufarinu Ijós vikur frá Öskju á páska- dag 1875. Sé grafið ögn dýpra kemur í Ijós annað Ijóst band í jarðveginum. Það er eftir hið mikla gos i Öræfajökli 1362 sem lagði Litla Hérað (Öræfi) í eyði. £ '<-glögin hafa ekkl fengið að liggja kyrr. Það sést greinilega á halla jarðlag- anna, en þau hafa að líkindum verið nær lárétt í upphafi. Einnig hafa myndast sprungur í jarðskorpuna og sumar hafa misgengið svo tugum metra skiptir. Upp um og út eftir sumum sprungnanna hefur brotist bergkvika sem stundum hefur náð til yfirborðs og þá orðið eldgos. Hraunið hefur storknað í sprungunni og myndað berggang. Slíkir berggangar setja víða mikinn svip á austfirskt landslag og er T röllkonu- stígur í ValþjófsstaÖarfjalli ef til vill kunn- astur þeirra. Hann skásker fjallshlíðina (sjá mynd) upp frá Végarði, félagsheimili þeirra Fljótsdæla. i endanum á Múla stingur hann upp kollinum Suðurdals- megin, og gengur síðan upp í Víðivalla- hálsinn hjá Víðivallagerði. Siðan berglagastaflinn myndaðist hefur að sjálfsögðu mlkið gengið á. Búið er að grafa þennan feikna dal ofan í hart bergið. Þar hefur ísaldarjökullinn eflaust átt drýgstan hlut að máli. Ef hann leggst yfir mishæðalítið land þá leitar hann ofan í veikleika í berginu, sem jafn- an eru sprungur, og grefur þær út. Þegar lægð eða dalur hefur myndast fer hann að safna í sig jöklinum. Þar verður jökull- inn þykkastur og rennur hraðast og grefur því enn meir en ella. Jökull leitast því við að auka hæðar- mun í landslagi við slíkar aðstæður frekar en að minnka hann. Og jökull hefur verið lengi að þessari iðju sinni á Austurlandi. Elstu menjar um hann er að finna í jökul- bergi í Múla, inni á milli basaltlaga, sem eru meira en 5 milljón ára gömul. Ekki veit ég um eldri menjar jökuls hér á landi. Jökulsá i Fljótsdal kemur undan Eyjabakkajökli (fjærst á myndinni til vinstri) í austanverðum Vatnajökli og rennur um Þóriseyjar (Eyjabakka), niður Norðurdal og mynnir út í Lagarfljót á móts við Gilsá, sem er á sýslumörkum Norður- og Suður-Múlasýslu eins og áður segir. Hún er ekki meðal hinna mestu af jökul- ám okkar, en engu að síður stórmerk fyr- ir margra hluta sakir. Hún ber með sér mikinn aur eins og aðrar jökulár og dembir honum út í Fljótið, sem styttist við það oggrynnkar. Langt mun þó líða áður en Lagarfljót er allt fullt af jökulauri þvi það er víða yfir 100 m djúpt og tugir km á lengd. Nú er fljótsbotninn á móts við Gilsáreyrar, en í Hrafnkelssögu segir, að vatnsbotninn hafi verið innan við Hrafnkelsstaði, þrem til fjórum km innar, svo nokkru hefur Jök- ulsá áorkað á 1000 árum. í Jökulsá koma að sjálfsögðu vor- vextir eins og aðrar ár. Mikil er hún að jafnaði um mitt sumar, þegar mest leysing er á jöklinum. Á tímabilum koma árviss hlaup í Jökulsá úr Háöldulóni, sem er í krikanum vestan við Eyjabakkajökul. Hlaupin verða oftast á sumrin og þá gjarnan fyrri hluta sumars. Ekki verður önnur skipti meira í ánni en við þessi hlaup. Á hinn bóginn er ekki mikið í ánni síðla vetrar og á hörðu vori. Þá er hún niðri ísteinum hiðefra. Sveinn Pálsson náttúrufræðingur, sem var á ferð í Fljótsdal 1794, hafði spurnir af því, að Jökulsá í Fljótsdal hefði áður fyrr varla verið meira en lækur. Á þessu verður helst fyrir sú skýring, að jökullinn hafi breyst mikið á öldunum þar 250 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.