Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 23
dár að honum, hann var aukinheldur ágætur blóraböggull. Séra Páll Jóns- son skáldi orti um hann, þar gætir bæði illkvittni og ósanninda, Bý- fógetavísur nefndist bragurinn og var mörgum kunnur áður fyrr og óspart í hann vitnað. Það sannaðist á Árna, að „sekur er sá einn, sem tapar“. Þegar aldur tók að færast yfir Árna Jónsson, fluttist hann til Óla Sand- holts tengdasonar síns, sem var verzl- unarstjóri í Keflavík og þar lézt hann 1827, trúlega saddur lífdaga. Ungur hugðist hann berjast til fjár og frama, en lítið spannst úr. Árni átti tvö börn við konu sinni: séra Halldór á Prest- hólum, sem ætt er ekki frá, og Guð- rúnu konu Óla Sandholts. Metnaðar- draumar Árna Reynistaðarmágs rættust með afkomendum hans: Dóttursonur hans, Árni Sandholt, varð með auðugustu mönnum þessa lands, og dótturdóttir, Ása, varð kona Hans A. Clausens kaupmanns og etatsráðs. Það átti jafnvel fyrir af- komendum Árna Bessastaðabryta að liggja að tengjast tignarmanna- og aðalsættum: Guðrún dóttir Árna Sandholts átti Preben Scheel greifa, Ólína dóttir hans son Bardenfleths stiftamtmanns. Ekki veit sá, sem þetta ritar, um höfund að eftirfarandi „sálmi“ um matarvistina á Bessastöðum i upphafi fyrri aldar, en geta má þess til, að séra Páll hafi ort. Kvæðið birtist hér orð- rétt, en ekki stafrétt. Sálmur um fœðu skólapilta á Bessastöðum Lag: Dauðans þungu kramin kvöl Hrár vatnsgrautur görpum hér gefinn er á stöðum Bessa, maðkað bæði og myglað smér menn hafa fengið allt til þessa. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Súrmjólk, er í rekka rann rækalls hyskið bera náir, fúlu blandast kámi kann; kvillinn megn því seggi þjáir. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Harðri þó af hungursnauð horaður þjakist bragna fjöldi, hrátt á stofuborðið brauð borið er klukkan 9 um kvöldið.* Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Saltfisk stundum snæðum vér, sem er fúll og morkinn bæði mjöls sem sósa yfir er útdreifð. Stór ég met það gæði. Téðra rétta njóta náum. Nær því aldrei súpu fáum. Einn er réttur inn í hús ennþá borinn stað á Bessa, lýðir nefna lungamús, ljóta satans ræpu þessa. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Sjötti réttur ennþá er á sem höldar bergja tíðum, sýrublandað sull það tér svinnum ekki geðjast lýðum. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. * Svo í handriti. en e.t.v. réttara: „að kvöldi“. Harðan fiskinn hölda sveit húsmóðirin skenkir tíðum, sáralítið sólbaugs teit smjörið lýsis tærir lýðum. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Kvillinn þegar skæður sker skatna val í þessum ranni, gríður segir: uppgerð er, inn það prentar hverjum manni. Þá vér blávatns njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Einn ég réttinn ennþá finn að nær vorið tekur skeiða: borin er stofu á borðið inn, blaut grásleppuhveljan leiða. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Lítill grautur görpum hér gefst, svo þeirra hugur sjatni, sá af gjörður soði er söltu, stundum drýgður vatni. Téðra rétta njóta náum, nær því aldrei súpu fáum. Súpu þegar seggir fá smakka loks af angri mæddir nauts með kúlum kappar þá kynjastórum verða hræddir. Ei ég tala orðs í kviðum: inn skýzt mergð af hryggjarliðum. Sjáið, bræður, seggjum hér sízt kann nokkur tíð að veita. Engan patrón eigum vér, ekki tjáir neins að leita. Fyrir þetta, firðar blíðir, falla mega úr hor um síðir. Vildi ég bili og vella slóð væru drifin héðan burtu. Þau hafa tiðum magnað móð mér og öðrum, rúin kurtu. Mál er komið ljóðum linni. Lengur kveð ég ekki að sinni. Heimaerbezl 247
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.