Heima er bezt - 01.07.1985, Page 30
wmm
FLJÓTSDALUR
Hengifoss í Fljótsdal.
í Jökulsá i Fljótsdal er mikið fossa-
val. Geta vart aðrar ár á landinu státað af
meiru, enda fellur áin 600 m á aðeins 30
km. Neðstu fossarnir eru fyrir ofan byggð
og þangað liggja engir vegir sem því
nafni geta nefnst. Þess vegna fer litlum
sögum af þessum fossum. Mér telst til að
einir 15 fossar 3-30 m háir séu á 20 km
kafla frá Kleif í Fljótsdal og upp að Eyja-
bökkum, auk fjölmargra flúða og hávaða.
Einungis 5 þessara fossa bera nafn,
en hinir yrðu veglega nefndir ef þeir væru
á fjölfarnari leiðum. Áin hefur og grafið
sérvolduggljúfurátveim stöðum. Náttúr-
an er öll hin fjölbreytilegasta af jurta- og
dýralífi. Hægt er að fara á bíl inn Fljóts-
dalsheiði og ganga þaðan niður dalinn en
ekki verður komist um þetta svæði öðru-
vísienfótgangandi.
Fyrirhuguð Fljótsdalsvirkjun:
Ein mesta fallhæð sem nýtanleg
er á landinu, um 560 m.
í öðrum ám í Fljotsdal eru alkunnir
fossar. Nægir þar að nefna Hengifoss og
Litlanesfoss í Hengifossá. Þætti hver
sveit fullsæmd að þeim, en samt eru
margir fossar ótaldir í Bessastaðaá,
Laugará, Strútsá, Sturlá, Fellsá og
Keldá.
iPPuriíorsrafui t f \
HOLMALON^
\\ 18 GL, 61 l,5my.s.
bbir^
\ ^AUHtNNSLVSUUNU----y J
AÐRENN^LISSKURÐUR--1
STÖÐVÁRkÚS------,
STÖÐVÁfmUS
FRÁRENNSLÍS
GÓNG
AÐKOMUGONG
Niður Þorgerðarstaðadal og Suður-
dal rennur Keldá, sem nú er bergvatnsá
að jafnaði. Áður fyrr var oftast talsverður
jökullitur á henni á sumrin, en nú hefur
jökullinn við upptök árinnar hopað, svo
að sjaldan rennur úr honum í upptaka-
kvíslarnar. Annars er Keldá hin mesta for-
dæða og haustflóðin þar oft með hrapal-
egum afleiðingum.
Haustin 1979 og 1980 urðu flóðin meiri
en oft áður og þá voru menn hætt komnir
á veginum við brúna á Jökulsá, enda
beljaði áin yfir báða brúarsporða. Svo
hefur áin gengið á tún Þorgerðarstaða
innst í Suðurdal Múla-megin, að þar var
orðið vandbúið og jörðin nú nýlega farin
íeyði.
(Kynning á Fljotsdalsvirkjun, Raf-
magnsveitur ríkisins 1980. — Hluti
korts).
254 Heima er hezt