Heima er bezt - 01.07.1985, Side 33
hann fullyrti að hundurinn hefi stein-
drepist. Ekki var við neinn að sakast
um það, sem orðið var, en það var mér
ljóst, að ekki yrði ég talinn „hund-
heppinn“.
Þegar ég kom heim, var Díli það
fyrsta, sem mætti mér á hlaðinu.
Hann hlífði að vísu vinstri framfæti og
var ofurlítið hæglátari en venja hans
var, þegar hann heilsaði mér. Furðu
fljótt jafnaði hann sig eftir þetta áfall
og ótrúlega litla áverka hafði hann
fengið, en augljóslega hefur hann
steinrotast.
Á þessum árum var fé allmikið
haldið að beit að vetrinum. Hér hagar
svo til, að í fjallshlíðinni, þar sem fénu
var beitt, er allmikið af lækjum, sem
éta upp af sér og myndast þá snjóloft,
þegar líður að vori. Oft féllu kindur
ofan í þessa læki, þegar þynnkaði á
þeim og varð stundum að þeim mikil
leit. Fljótt kom í ljós að Díli var
fundvís á þá staði, sem kindur höfðu
farið niður í. Og svo fór að lokum, að
vantaði kind þurfti ég ekki annað en
að segja við hann að nú yrðum við að
leita. Rann hann þá á undan mér og
tók jafnvel stefnuna alla leið að
heiman beint að gatinu, sem kindin
hafði fallið niður um og vék ekki frá
því fyrr en ég hafði fundið hana og
komið henni upp úr. Þá held ég að
honum hafi fundist hann verðskulda
klapp, sem hann að sjálfsögðu fékk.
Það voru ótrúlega mörg spor, sem
þessi sérgáfa Díla sparaði okkur.
Aðfaranótt 29. september 1968,
gekk hér í norðan áhlaup með mikilli
fannkomu. Hafði ég þá all margt af
lömbum, sem biðu slátrunar á túni all
langt frá bænum. Þannig hagaði til
þar sem lömbin voru, að þar í túninu
var lægð, sem nokkurt skjól var í.
Þegar við brutumst á staðinn með
fyrstu skímu morguninn eftir, var að-
koman ófögur. Lömbin höfðu hópast
niður í lægðina og látið þar skefla yfir
sig. Það stóðu hér og þar horn eða
hausar upp úr snjónum. Þegar það
sem að einhverju stóð upp úr, hafði
verið dregið úr fönninni, vantaði enn
allmörg lömb. Fórum við þá að leita í
fönninni með stöng. Tók ég þá eftir
því, að Díli var farinn að grafa sig
niður í snjóinn. Fórum við þá að
moka, þar sem hann hafði grafið og
komum þegar niður á lamb. Þannig
hélt þetta áfram að Díli benti okkur á
hvar við skyldum leita og það brást
ekki að við komum niður á lamb. Mig
minnir að það væru 9 lömb, sem við
fundum á þennan hátt, eftir tilvísun
hans. Öll voru þau lifandi og bærilega
á sig komin. Þegar hér var komið
hætti Díli að leita. Ekki þorði ég að
treysta því að hann hefði vísað á allt
sem fennt hefði, þar sem ég mundi
ekki fyrir víst tölu lambanna, sem
þarna áttu að vera og héldum við því
áfram leitinni, en án árangurs. Þegar
snjóa leysti næsta vor, kom i ljós að
ástæðulaust hafði verið að efast um
fundvísi Díla, því ekkert hræ kom þar
undan fönninni.
Við hjónin fórum að sumri til í viku
ferðalag og var hundurinn þá falinn
nágrönnunum til umönnunar. Þá var
hann orðinn háaldraður og farinn að
láta á sjá. Dagana áður en við lögðum
af stað, hafði Díli verið venju fremur
niðurdreginn og lystarlaus. Þegar við
komum heim úr ferðalaginu var okk-
ur sagt, að Díli hefði horfið skömmu
eftir að við fórum að heiman og ekki
fundist, þrátt fyrir mikla leit. Jafnvel
voru uppi getgátur um það, að hann
hefði farið að leita okkar. En stuttu
eftir heimkomuna fann ég hann, þar
sem hann lá i grunnum skurði og
vatnslitlum. Einhver hafði á orði, að
hugsanlega hefði hann bundið þarna
endi á æfi sína í þunglyndis- eða
saknaðarkasti, þó hitt sé líklegra að
hið náttúrulega skapadægur hans hafi
borið að þarna niðri í skurðinum. Á
hvern hátt, sem dauðann hefur borið
að, varð því ekki breytt að æfi hans
var öll. Héðan í frá mundi hann aldrei
leiðbeina leitandi mönnum.
Mér verður hugsað til þess hve frá-
leitt er að bera sér í munn stuninguna:
Skynlaus skepna. Ekki þarf að um-
gangast húsdýr mikið, til þess að fá
örugga sönnun fyrir því, að þau hugsa
og álykta, engu síður en við og álykt-
un þeirra og skynjun tekur oft og tíð-
um langt fram því, sem við höfum til
að bera og teljum okkur til ágætis.
Díli í faðmlögum við Rúnar, en þessi hundur varð snemma bœði leikfélagi og
hjálparhella barnanna. Hann lenti meir i œvintýrum en aðrir hundar sem við
höfum átt.
Dili var líka með eindœmum góður leitarhundur. 29. sept. '68 fann hann 9 lömb
sem fennt hafði í kaf.
Heima er bezt 257