Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1987, Page 29

Heima er bezt - 01.02.1987, Page 29
Úr skrínu Theodórs Gunnlaugssonar frá Bjarmalandi -1 Með huldufólki í Hallhöfðaskógi Þeir sem voru á barnsaldri í byrjun tuttugustu aldarinnar, munu seint gleyma því hve mikla unun þeir höfðu af að heyra sagðar sögur af huldufólki og meira að segja af munni þeirra, sem höfðu það augum litið, og dvalið með því, þó oftast væri það í draumi. Ýmsir kunnu líka þá list að segja svo vel frá, að það þurfti enga ímyndun til að fylgjast með atburðunum og sjá þá — svona hér um bil — eins og maður hefði sjálfur verið áhorfandinn. Og til þess að eftirfarandi saga skiljist örlítið betur, vil ég taka fram, að það huldu- fólk, sem oft var talað um hér í Öxar- firði um síðustu aldamót, hafði í vit- und allra sama útlit og mennskir menn og einnig var skapgerð þess og tilfinningar þær sömu. Væri því greiði gerður, launaði það ríkulega, en á hina hlið hefnigjarnt, svo um mun- aði, ef það var illa leikið. Aftur á móti voru álfarnir af allt öðru sauðahúsi. Þeir voru miklu minni, góðlyndir svo af bar, síglaðir, greiðviknir og hrein- ustu snillingar í höndunum, eins og dvergarnir, sem voru þó enn smá- vaxnari, en elskulegir heim að sækja. Þessi söfnuður allur átti tvennt sameiginlegt. I fyrsta lagi bjuggu þeirí steinum, bergdröngum og jafnvel há- um hömrum. í öðru lagi greip þá stundum ómótstæðileg löngun til að komast i náin kynni við mennska menn, á sama hátt og þeir síðar- nefndu við þá, þegar svo bar við, þó oftast enduðu þau kynni á einn veg. Sá, er þetta ritar, kynntist því sjálfur í bernsku, hve oft var spennandi að hlusta á slík ævintýri og hvað þau komu miklu róti á hugann, svo hann gat farið á svifflugi um seiðmagnaða heima, þar sem hann kynntist alltaf einhverju nýju og áhrifaríku í hverri ferð. Eftirfarandi saga varpar ofurlítilli glætu inn í þá heillandi heima, sem börn og unglingar undu svo glaðir við, í góðum félagsskap, fram yfir síðustu Hallhöfðinn, 35 metra hár klettadrangur. aldamót. Sögumaður minn hét Parmes Sigurjónsson. Hann þekkti álíka vel huldufólksbæina í Hall- höfðaskógi og fingurna á sér. Hann var kominn talsvert á níunda áratug- inn, þegar hann rifjaði upp þessar hugljúfu minningar og sagðist þá gjörla finna til sömu áhrifa og þegar atburðurinn gerðist fyrir meira en sjötíu árum. Honum fórust þannig orð: „Þetta kom fyrir mig aldamótaárið, þegar ég var á þrettánda árinu. Það var seint að kvöldlagi síðast í maí, að forustuærin, hún Krúna, sveik mig illa. Ég var rétt kominn heim i Árholt með það sem eftir var af óbornu án- um. Éin þeirra var að bera og ég kom henni inn. Hinar fóru að nasla kring- um húsið. Ég var hjá ánni þar til hún var borin, en það tók lengri tíma en ég bjóst við. Þá snarast ég út og fer að horfa að ánum. Bregður mér þá held- ur í brún. Krúna er horfin og nokkrar ær með henni. Ég hleyp vestur á hæðirnar og suður fyrir Nónhæðina, en sé ekkert. Mér flaug strax í hug að Krúna ætti sök á þessu flani, hljóp heim, lét inn hinar ærnar, sagði frá óhappinu, fékk mér eitthvað í gogg- inn, og snaraðist svo af stað. Ég vissi að tími Krúnu var kominn og þóttist viss um að hún hefði þotið af stað með lambsóttina, og að öllum líkum, niður í Hallhöfðaskóg, því þar hélt hún sig venjulega. Ég fór beinustu leið vestur, norðan við Langahrygginn, niður í Fellslaut- ina og eftir henni niður að Ytri- Bjargendunum. Og það gladdi mig ekkert smáræði, að ég sá alveg nýjar slóðir í stígnum ofan við Bjargendana og lágu þær allar niður svo ég fór að fara varlega, því Krúna var vitur og slungin og fór strax í felur, þegar hún varð vör við manninn. Slóðirnar sá ég líka í stígnum, niður i Efri-Skóginn og var nú viss um, að þar væru þær, en hann var víða afar þéttur og fór ég eins hljóðlega og ég gat. Þannig paufaðist ég alveg suður að Syðri-Huldufólksbæjunum, án þess að verða nokkurs var. Ég var orðinn heitur eftir hlaup- in, hálfslæptur og óvenju syfjaður, enda kominn háttatími. Veðrið var líka svo yndislegt, alveg stafalogn, en skuggarnir, sem hér höfðu öll völd, vöktu undarlegar tilfinningar. Mér flaug því margt í hug. Ég hafði lesið margar sögur af samskiptum huldu- meyja og mennskra sveina. Það var heillandi lestur, en lakast var hvernig þær enduðu flestar. Ég trúði því, að hér ætti huldufólk heima í hundraða tali, og það var elskulegt við þá, sem gerðu því greiða og hugsaði hlýtt til þess, en langrækið og víst illa hefni- gjarnt við þá, sem beitti það brögðum. Það vissi ég vel. Ég skyldi lika aldrei gera því mein. — Það er ekki einleikið hvað mig syfj- ar, og — þetta var enginn smáræðis geispi. En hvað það væri gott að leggjast niður hérna í grasið við runnann, rétt á móti Huldufólksbæj- unum. Hvernig er þetta annars með kirkjuna? Mér sýnist hún öll eldrauð og þó er sólin sest! En hvað það fer vel Heima er bezt 65

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.