Heima er bezt - 01.04.1995, Blaðsíða 5
NGEYJAR
|MM
Birgitta H.
Halldórsdóttir ræðir
við Jón Eiríksson,
bónda í Fagranesi,
Skagafirði
I Fagranesi á Reykjaströnd í Skagafirði býr Jón
Eiríksson stóru búi ásamt fjölskyldu sinni.
Jón er maður duglegur, vaskur og hjartahlýr.
Hann er eflaust þekktastur fyrir Drangeyjarferð-
ir sínar, en þær eru ógleymanleg lífsreynsla fyrir
hvern sem þangað kemur. Að vera á bátnum
með Jóni og hlusta á hann segja frá er skemmti-
legt og fróðlegt, en að fara með honum upp
á Drangey og njóta leiðsagnar hans er hreint
ævintýri. Jón er hafsjór af fróðleik, hann segir
skemmtilega frá og er góður hagyrðingur.
Ymislegt hefur á daga hans drifið sem forvitni-
legt er að heyra um. Ég sótti Jón heim eitt kalt
vetrarkvöld og þangað var gott að koma. Hann
og fjölskylda hans tóku hlýlega á móti mér og
heim fór ég mun fróðari með minningu um
ógleymanlegt kvöld. En gefum Drangeyjar-
jarlinum orðið.
Heima er bezt 1 13