Heima er bezt - 01.04.1995, Blaðsíða 36
JJ
sog
iin
*»**»*!gl
Með . cankti
kueðiu fra H
pprnharosj
hundinuml
------■ ■ ■ '
J&ssss—
íslendingar
í þjónustu
þriðja
ríkisins ,
Ásgeir Guðmundsson
og Önundur Björnsson:
Með kveðju frá
Sankti Bernharðs-
hundinum Halldóri
íslendingar í þjónustu Þriöja ríkisins
í þessari bók er fjallað ítarlega og á lifandi hátt um
Islendingana sem komu hingað til lands með þýskum
kafbátum og var ætlað að reka erindi Þjóðverja. Ekki höfðu
þeir erindi sem erfiði, því að ýmist voru þeir gripnir eftir
nokkurra daga hrakninga eða þeir gáfu sig án tafar fram við
yfirvöld. Dvölin heima varð skammvinn, því að leið þeirra lá
beint í bresk fangelsi. En var einn Islendingur hér á landi í
þjónustu Breta og Þjóðverja samtímis?
Skipstjóri og loftskeytamaður á seglskipinu Arctic voru ekki
teknir neinum vettlingatökum. Annaðhvort sendu þeir
Þjóðverjum veðurskeyti á heimleiðinni frá Spáni eða skip þeirra
yrði skotið niður. Veðurskeytasendingarnar kostuðu einn mann
lífið. ÖIl áhöfnin var kaghýdd og pyntuð andlega og líkamlega.
Tveir blásaklausir menn, stúdent og vörubifreiðarstjóri í
Reykjavík, sættu sömu meðferð og áhöfnin. Hvers vegna?
jSkjaddborg
ARMULA23
SÍMI 588-2400 • FAX 588-8994
AFGREIÐSLA A AKUREYRI:
FURUVELLIR 13-SÍMI 462-4024
Heimsstyrjöldin síðari.skóp mörgum manninum
sérkennileg örlög, og íslendingurinn Ib Árnason Riis fór
ekki varhluta af því. Þýska leyniþjónustan sendi hann
hingað til lands vorið 1942, en hann gekk til liðs við
bresku leyniþjónustuna og gerðist gagnnjósnari á vegum
hennar.
í þessari bók segir Ib Árnason Riis frá gagnnjósnum
sínum, og er óhætt að fullyrða að margt í frásögn hans
kemur á óvart, enda hefur fæst af því komið fyrir
almenningssjónir áður. Hann varpar m.a. nýju ljósi á afdrif
skipalestarinnar PQ-17 og segir frá þætti sínum í því
þegar þýska orrustuskipinu Scharnhorst var sökkt.
Hann segir einnig frá því hver urðu afdrif togarans Max
Pemberton. Hann drepur einnig á njósnir
Bandaríkjamanna og Rússa hér á landi á stríðsárunum, en
síðast, en ekki síst, greinir hann frá því hvernig starfi
fyrir bresku leyniþjónustuna lauk og hvaða áhrif það
á ævi hans.
Ásgeir Guðmundsson:
Gagnnjósnari Breta á íslandi