Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1999, Page 7

Heima er bezt - 01.02.1999, Page 7
var eins og veröldin stæði kyrr, óraunveruleg og sindr- andi, slíkt var lognið. Vetrarstillur geta komið þarna sem eru engu líkar og þd frýs bæði Leiran og Garðarstjörn og svellið rennur fram sem spegill. Veröld sem var Vilborg lifði þá tíma að mannlíf var með öðrum og ólíkari hætti en nú er. Engin Kringla og ekki skroppið milli landa til fatakaupa, né heldur að setið vœri yfir sjónvarpi eða á öldur- húsum að vinnudegi loknum. - Á Vestdalseyrinni sóttu menn björg til sjós og lands ef svo md segja. Flestir dttu bdta og sjósókn var mikil. Fiskur var verkaður, saltaður og þurrkaður. Síðan dttu menn garða, kýr og kindur og nokkrar hænur og rdku svolítil bú. Karlmenn- irnir fóru líka í burtu d ver- tíðir. Pabbi fór d hausinn með sína útgerð í krepp- unni, hann reri því hjd öðr- um og fór á vertíð. Því var það að mamma og við börn- in sdum um búskapinn. Það var heyjað á túni og engjum og ræktaðar kartöflur sem dugðu fýrir allt drið. Mamma hafði mikinn dhuga d ræktun og hún gerði tilraunir með ýmsar tegundir af kartöflum svo sem bldlands- drottningu. Þd voru ræktaðar róf- ur, næpur, spínat, grænkdl, blóm- kdl og radísur, svo eitthvað sé nefnt. Þetta var gott búsílag og þótti sjdlfsagður þdttur í búskapn- um. Við dttum um 30 ær og var ullin send í lopa til Akureyrar en af ófínni ullinni var tekið ofan af og hún kembd og spunn- in heima. Við krakkamir lærðum tógvinnu, að tvinna band og setja saman prjónles. Amma var ekkja og dvaldi hún hjd okkur. Amma og mamma voru mjög sterkar, duglegar og myndarlegar konur. Verkmenning þeirra var mikil og kært var með þeim, þær voru mjög lagnar við alla matargerð, gerðu skyr og sldtur og allt unnu þær vel. Þegar pabbi kom heim af sjónum gekk hann í öll störf innan húss sem utan og var afskaplega natinn við þau verk sem hann vann að og það md segja að allir bræð- ur mínir hafi notið þessa fordæmis í æsku og verið mikl- ir fyrirmyndar eiginmenn. Ömmusystir Vil- borgar, en hún var skírð í höfuð- ið á henni. Skólinn lagður niður Þegar Vilborg var sjö ára gömul og átti að hefja skóla- göngu sína var ákveðið að halda ekki lengur skóla á Vest- dalseyri sökum fámennis. Þá var brugðið á það ráð að fá Mœðgurnar Erlendína Jónsdóttir og Guðríður Pálsdóttir. „Þœr voru mjög sterkar, duglegar og myndarlegar konur. “ konu, búsetta á eyrinni, til að leiðbeina bömunum og undirbúa þau fyrir próf, en að öðru leyti var um heima- nám að rœða. Börnin fóru síðan inn í Bœ að taka prófin. Þegar svo þessi leiðbeinandi flutti sjálf inn í Bœ lagðist öll kennsla af. Þetta voru Vilborgu, sem hlakkaði svo mikið til að hefja skólagöngu, mikil vonbrigði og að sœkja skóla inn eftir var ekki auðveld ganga fyrir litla fœtur. - Þetta var löng og skuggaleg leið og gat verið veðra- víti hið mesta. Og einu sinni var ég rétt orðin úti þarna. Þd var ég reyndar orðin 16 úra og hafði fengið vinnu í kaupfélaginu d Seyðisfirði. Það var aðfangadagur og opið til klukkan fjögur. Þegar búið var að loka ætlaði ég heim d Hjalla og vera þar um jólin. Um fimmleytið lagði ég af stað sæmilega búin og með jólagjafirnar í poka. Snjór var mikill og kafaði ég hann upp að hnjdm þannig að þungt var d fótinn, síðan fór að hvessa og gerði feiknamikinn skafrenning en gangan var öll d brattann upp Kinnina. Mér fannst ég vera að örmagn- ast hvað eftir annað og gekk illa að anda og langaði helst til að leggjast niður og sofna. Ég harkaði þó af mér og þegar ég komst upp d Hdubakkana, sem svo eru kallaðir, fór mér að líða betur en ég var þrjdr klukku- stundir d leiðinni, sem annars er rúmlega hdlftíma gangur. Seinna vissi ég, sem ég vissi ekki þd, að ég var með astma og því hafði ég dtt svona erfitt með andar- drdtt. Heima er bezt 47

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.