Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1967, Page 8

Æskan - 01.09.1967, Page 8
— ÆSKULYÐSSTARFSEMI — Fyrsta sjálfstæða islenzka skátafélag drengja er stofnað 1912. Árið 1924 cr stofnað Bandalag íslenzkra skáta, er verð- ur strax aðili að All)jóðasambandi skáta. Arið 1922 er stofnað fyrsta íslenzka kven- skátafélagið. Árið 1944 eru kvenskátafé- lögin tekin inn í Bandalag islenzkra skáta. Árið 1966 starfaði 31 sambandsfélag á 27 stöðum með samtals 4134 félögum. Mark- mið bandalagsins er að efla unga menn og konur til bess að verða traustir borgar- ar íslenzka rikisins, með ]>ví að temja l>eim drengskap, jálfa athyglisgáfu þeirra, blýðni og sjálfstraust, brýna fyrir ])eim föðurlandsást, hugrekki, begnskap og til- litssemi, kenna ])eim ýmis störf, nytsöm sjálfum ]>eim og almenningi, og efla sálar- styrk þeirra og líkamsþrek. Skátafélögin eiga nú 11 skátalieimili í bæjuin og nokkra skátaskála á fjöllum. t 30 ár liefur Banda- lag islenzkra skáta gefið út skátablað og frá upphafi félagsskaparins hafa verið gefin út fræðslurit og foringjablöð. Banda- lagið starfrækir skrifstofu i Reykjavik. Skátafélag Beykjavíkur, Kvcnskátafélag Reykjavikur og Bandalag islenzkra skáta starfrækja sumarbúðir að Úlfljótsvatni hvert sumar. Fiest skátafélög starfrækja útilegur i tjöldum á öllum árstíðum. Víða láta bæjar- og sveitarfélög skátum i té afnot af húsnæði til fundahalda, einkum í skólum. Til skátahreyfingarinnar hefur ríkissjóður veitt árlega 500 ])úsund krónur. Bandalag fslenzkra skðta. Eftir nokkurn tíma ákvað Helgi að klifra upp baunagrasið í annað sinn, og hugsaði sér að sækja í kastala risans að þessu sinni fallegu hörpuna, sem söng ósnert hin fegurstu lög, þegar risinn sagði „syngdu." Ferðin gekk ágætlega og beið Helgi í námunda við kastalann, þar til risinn var sofnaður, þá stökk hann út úr felustað sínum og náði hörpunni og hljóp á brott. En harpan söng svo hátt „herra, herra," að risinn heyrði það og hljóp á eftir Helga, sem nú var kominn að baunagrasinu. Helgi var kominn niður í þann mund sem risinn byrjaði að klifra niður baunagrasið. Óðar en Helgi var kominn niður úr grasinu, kom móðir lians hlaupandi út úr húsinu með stóra öxi og fékk honum, en hann hjó bauna- grasið, og risinn var svo hátt uppi, að hann féll niður og rotaðist í fallinu. 316 Lö^mál lieilsunitar Lög heilsunnar eru fá, einföld og auð- lærð. Hver maður er fær um að breyta eftir þeim, ef liann vill. „Enginn veit livað átt hefur fyrr en misst hefur". Þegar lieils- an hcfur snúið við mönnum bakinu, ])á berja þeir sér á brjóst og ávíta sjálfa sig fyrir að hafa ekki gert það, sem þurfti til þess að halda henni við. Þessi óskráðu lög eru: Hreint loft. Vinna. Böð. íþróttir. Þeir, sem þessu fylgja, verða hraustir, ánægðir og langlifir í landinu. Maðurinn er eins og jurt, sem ekki getur lifað án lofts og sólar. Hann getur verið án fæðu í 40 daga, en hann getur ekki með góðu móti verið án lofts í 40 sek., og sé hann 4 inínútur án lofts, er líf lians ekki túskildings virði. Dragið andann djúpt (i gegnum nefið), þegar þið komið út i lircint loft. Loftið er það lífsmeðal, sem hver getur notað eftir vild og enginn þarf að kaupa. Temjið ykkur jafnan andardrátt; það gerir blóðrásina reglulega. Reiðizt ekki, það er ckki samboðið skyn- sömum mönnum. Það gerir líka andar- dráttinn óreglulegan, raskar ró ykkar og gerir lifið skemmra en ella. Farið oft í bað, það gerir liúðina sterka og ókulvísa. Auk hinnar daglegu vinnu, þá hafið ætíð eitthvað til skemmtunar, svo sem göngur, knattleiki, Iilaup, sund, bækur. Lesið ætið eittlivað á hverjum degi i góðri liók. Notið meðul náttdrunnar og engin önn- ur. Starfið á daginn. Hvílið ykkur á næt- urnar.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.