Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1967, Side 13

Æskan - 01.09.1967, Side 13
Una gekk inn fyrir til dóttur sinnar til að segja henni allt af létta og fór síðan aftur fram fyrir. Þá voru Sævar og gamli maðurinn báðir horfnir. Hún opnaði dyrnar og leit út. Ekkert hljóð heyrðist. Næst liljóp hún út á veginn. Svartamyrkur var á og dauðakyrrð yfir öllu. „Æ, nú skil ég? Þetta hefur verið huldumaður og ltann hefur farið með Sævar til lrallar álfakonungsins. Ég sé hann víst aldrei aftur,“ hugsaði hún með sjálfri sér um leið og hún gekk þungum skrefum inn í húsið. Skömmu síðar kom Kata, nágrannakona hennar, inn úr dyrunum. „Hvað er að?“ spurði hún, þegar hún sá Unu sitja grátandi við eldinn. „Ó, Kata, huldumaður hefur farið burtu með Sævar,“ sagði Una. „Ég samliryggist þér, Una, en huldufólkið skilar stund- um aftur fólki, sem það hefur tekið. Ef til vill hefur þetta verið góður huldumaður, sem hefur tekið Sævar í góðum tilgangi. Ef svo er, kemur Sævar aftur innan skamms. Hvernig leit huldumaðurinn út?“ „Hann virtist mjög góðlegur," svaraði Una. „Þá býst ég við að Sævar verði kominn aftur fyrir mið- nætti, en ég vara þig við að spyrja hann um ferðir hans. Alfarnir leggja töfrahlekki þagnar og dulúðar á þá, sem með þeim hafa dvalizt.“ „Álítur þú, að lionum verði ekkert mein gert?“ „Nei, það held ég ekki. Huldumaðurinn hefur haft hann með sér í einhverjum góðum tilgangi. Láttu dyrnar vera ólæstar. Ég er sannfærð um, að hann kemur um mið- nætti.“ „Ég vona til Guðs, að þú segir satt, Kata mín. Viltu vera hjá mér fram til klukkan tólf?“ „Það skal ég gera með mestu ánægju,“ sagði Kata. Nú víkur sögunni til Sævars og huldumannsins, sem greip hann og bar út og frá húsinu, áður en Sævar áttaði sig. Hvítur hestur stóð á veginum, huldumaðurinn setti piltinn á bak honum, settist að því búnu fyrir aftan og þeysti af stað. Eftir nokkra stund komu þeir að dalverpi milli fjallanna. Huldumaðurinn tendraði ljós og tók að því búnu Sævar af baki, en jafnskjótt hvarf hesturinn. „Vertu hér kyrr, unz ég kem og sæki þig,“ sagði huldu- maðurinn. Kalt var og ennfremur var Sævar farinn að finna til sultar. Sér til undrunar og gleði sá hann skyndilega tré með fallegum rósrauðum eplum standa rétt hjá sér. Hann sneri sér við og ætlaði að taka eitt epli, en þá heyrði hann kallað: „Stanzaðu.“ Gömul og ljót norn kom fram hjá trénu og hafði svartan sprota í hendinni. Hún snerti tréð með sprotanum og samstundis breyttust eplin í svartar sandhrúgur, sem duttu á jörðina. Síðan hvarf nornin. Sævar leit í kringum sig og sá kristallstæra lind, sem vatn streymdi frá. Steinbolli stóð hjá lindinni. Hann hugsaði SVONA búa Bítlarnir: Húsið hans Georges er lang nýtízkulegast af þeim öllum. Hann býr í einlyftu húsi, hvítu og sólríku, í Esher. Þetta er mjög fínt hverfi, sem hann er sérlega hreykinn af. Rétt hjá var á sínum tíma einkabústað- ur Viktoríu drottningar. Vinstra megin við húsið hefur George látið reisa gríðarstórt gróður- hús, svo að Patti geti fengið ný blóm allan ársins hring. Hann er afar upp með sér af tónlistarherberginu, en í því eru meðal annars upptökutæki. Til þess að geta verið óhultur fyrir aðdáendum sínum, þegar hann æfir sig, lét hann gera háan múrvegg umhverfis eign- ina. með sér: „Jæja, fyrst ég fæ ekkert að borða, get ég þó að minnsta kosti fengið mér að drekka." Hann beygði sig niður til að taka bollann upp. Þá var aftur kallað: „Stanz- aðu“, og nornin birtist aftur. Hún snerti lindina með sprotanum og um leið var ekkert að sjá nema möl og smásteina þar, sem lindin var áður. Og aftur lrvarf nornin. 321

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.