Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1967, Page 14

Æskan - 01.09.1967, Page 14
Hverjir eru þeir? Hljómsveitin Rollinu; Stones hefur náð miklum vinsæltl- um víða um lieim. Blaðið hefur oft birt myndir af þeim féfögum, en nú skuluð þið fá að sjá þá í nýju fjósi, eða myndir af þeim þegar þeir voru hörn. Getið þið þekkt þessa frægu menn af þessum barnamyndum? Svör eru á bls. 349. Nú var Sævar að þrotum kominn. Kraftar hans virtust fjara út. En nú sá hann skyndilega beð úr mjúkum mosa og í öðrum enda hans var dálítil upphækkun eins og Jcoddi. Hann var að leggjast niður á þennan beð, þegar enn heyrðist kallað: „Stanzaðu". Nornin birtist enn og snerti mosabeðinn með sprotanum. Hann breyttist þegar í harðan klett. Síðan hvarf nornin enn og rétt í því kom Sævar auga á huldumanninn, sem var á leið til hans. „Hvar er ég?“ spurði Sævar. „Þú ert í landinu, þar sem huldumenn hefndarinnar búa,“ sagði hinn. „Hvers vegna fórstu með mig hingað?" spurði Sævar. „Til þess að sýna þér, hversu ljótt og andstyggilegt það er að hrekkja bæði menn og dýr eins og þú gerir.“ „Ef þú sleppir mér nú, skal ég engan hrekkja framar." „Ég skal gera það vegna þinnar góðu móður.“ „Hún mun undrast fjarveru mína.“ „En þú mátt engum segja, hvar þú hefur verið, jafnvel ekki móður þinni. Enginn má vita að þú hafir verið hjá huldumönnum hefndarinnar. Ef þú segir frá, mun ég neyta töfra minna og flytja þig hingað aftur“. Nú blés huldumaðurinn í litla flautú og hvíti hestur- inn birtist þegar í stað. Þegar Sævar kom að heimili sínu, hvarf hesturinn strax aftur. Klukkan var að slá tólf, en Kata og Una sátu enn við eldinn og biðu. Þá voru dyrnar opnaðar og Kata lagði fingur í aðvörunarskyni á varir sér. Sævar gekk inn, bauð gott kvöld, en hvarf svo inn í sitt herbergi. Þegar Una og Birgitta komu fram í eldhúsið morgtin- inn eftir, undruðust þær að sjá allt tilbúið til morgun- verðar. Sævar hafði þá farið snemma á fætur og lokið þessu af. Upp frá þessu ríkti ánægja og gleði á heimili Unu. Aflir fundu breytinguna, sem orðið hafði á framferði og skapferii Sævars. Seinna sagði Una eitt sinn við Kötu vinkonu sína: „Ég trúi því, að lnddumaðurinn hafi fært mér mikla hamingju.“ „Þú mátt vera viss um, að þú hefur fengið ríkulega endurgoldnar þær innilegu móttökur, sem hann fékk hjá þér,“ sagði Kata. Sigurður Kristinsson þýddi úr ensku.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.