Æskan - 01.09.1967, Side 35
HÍ<HKH&WH34KBKHKHKHKHKt
HITT og ÞETTA
Uafflesia heitir stærsta blóm
lieimsins. Það vex í skógunum
á Sumatra og Borneo. Blómið
er um einn metri i þvermál,
vegur nærri þvi 7 kg., liefur
afarvonda lykt og á jurtinni er
hvorki stöngull né blöð. Venju-
iega vex jurtin á rótum fíkju-
trjáa. Blómknapparnir, sem eru
svipaðir hvítkálshöfðum, eru
um mánuð að opnast, en blóm-
ið sjálft lifir aðeins tvo daga.
Amorphophalius titanium heit-
ir næststærsta blóm veraldar.
Það er iikast risavaxinni lilju
og vex ótrúlega hrntt, um sex
þumlunga á dag. Stöngullinn
verður yfir tveggja metra lang-
ur. Mikill óþefur er af blómi
]>essu. Vaxtarsvæði þess eru
skógarnir á Sumatra.
Victoria Rcgia er stærsta vatna-
jurt veraldar. Blöðin, sem geta
orðið 2,75 metrar í þvermál og
]>orið uppi sjö ára gamalt barn,
eru stærstu jurtablöð heimsins.
Blómin eru einkar fögur og um
liálfur metri i þvermál. En þau
lifa aðeins einn dag.
Mosinn er meðal lífseigustu
jurta á jörðinni. En hann vex
afar hægt — sumar tegundir
ekki nema tvo þumlunga á
heilli öld — og deyr að neðan-
verðu jafnframt því, sem hann
vex að ofan. Það hefur verið
reynt að ákvarða aldur og vaxt-
arhraða ýmissa mosategunda,
sem vaxa í mómýrum, og eru
sumar ]>eirra taldar um 200
þúsund ára gamlar. Vaxtar-
hraðinn fer eftir loftslaginu og
öðrum aðstæðum.
Þjóðhátíðardagar í
október og nóvember
1. okt. Kína.
4. okt. Nepal.
7. okt. Austur-Þýzkaland
20. okt. 'I’yrkland
24. okt. Dagur Sameinuðu
þjóðanna.
3. nóv. Panama.
7. nóv. Ráðstjórnarrikin
11. nóv. Svíþjóð.
27. nóv. Líbanon.
29. nóv. Júgóslavia og Albanía.
30. nóv. Skolland.
Saga flugsins
Enska flugvélin Supermarine S.6.B. var
sérstaklega smíðuð til að taka þátt i
Schneiderkeppninni 1931. Schneider-keppn-
in var alþjóðleg keppni milli sjóflugvéla,
þar sem flughraðinn skipti mestu máli.
Enski flugmaðurinn Stainforth liáði 655
km/klst. og þar með vann England Schnei-
der-bikarinn til eignar.
Ástralski flugmaðurinn Hubert Wilkins og
norsk-ameriski flugmaðurinn C. B. Eilson
fóru mcrkilegt könnunarflug í apríl 1928.
Þeir lögðu upp frá Alaska 15. april og
daginn eftir lentu ]>eir á Spitsbergen eftir
3.500 km flug yfir Norður-fshafið á 20%
klst. Þeir fiugu Lockheed Vega einvængju
með 220 ha. Whirhvind mótor.
12. júlí 1937 hóf sig til ílugs frá Moskvu
rússnesk flugvél af gerðinni A.N.T.-25
(950 ha. M-34 mótor). f flugvélinni voru
Gromov, Youmashev og Daniline, og var
ætlunin að setja nýtt langflugsmet. Rúss-
arnir stefndu til norðurs, flugu yfir Norð-
urpólinn kl. 03:00 13. júlí og lentu svo
14. júlí hjá San Jaciento i Kaliforniu. Þá
höfðu þeir verið á flugi í 62 tima og flog-
ið 10.148 lun í beina línu.
Veturinn 1929—1930 (en þá var sumar þar
suður frá) var talsvert flogið til Suður-
heimskautssvæðisins. Þá flaug m. a.
Richard Byrd yfir sjálfan Suðurpólinn i
þriggjahreyfla Ford-liávængju, sem bar
nafnið „Floyd Bennet". Flugmaður var
Norðmaðurinn Bernt Balchen, en með hon-
um og Byrd voru June og McKingley. Þetta
merkilega flug var farið 29. nóvember 1929.
Af mörgum könnunarflugum yfir Norður-
pólinn má nefna flug brezkrar Lancaster-
sprengjuflugvélar stjórnað af Mac Kingley
flugsveitarforingja, sem 17.—18. maí 1945
i'laug frá íslandi til Norðurpólsins og til
haka. Tilgangur ])essa flugs var einkum
að gera veðurathuganir. (Lancaster-
sprengjuflugvélarnar voru einliverjar fræg-
ustu flugvélar 2. heimsstyrjaldarinnar.
Þær sprengdu m. a. margar stíflur i Þýzka-
landi og sökktu þýzka orrustuskipinu
Tirpitz i Tromsd-firði, Noregi, 12. nóvemb-
er 1944, en þá voru þær 31 saman).