Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1967, Page 38

Æskan - 01.09.1967, Page 38
SPURNINGAR OG SVÖR Hólar í Hjáltadal. Iværa Æska. Eg hef mikinn áliuga á að fræðast um, hverjir hafa fyrstir verið biskupar að Hólum i Hjaltadal, og hvenær )>ar var stofnaður búnaðarskóli. Eg vonast eftir svari fljótlega. Mér finnst hlaðið alveg ágætt og þakka fyrir allan þann fróðleik, sem það hefur flutt mér á undanförnum árum. — Guðbrandur. Svar: Sú er elzt sögn um Hóla í Hjaltadal, að Oxi Hjaltason bjó þar um miðja elleftu öld og lét gera kirkju mikla og veg- lega. Árið 1106 var settur þar hiskupsstóll og varð fyrstur hiskup Jón Ögmundsson, skör- ungur mikill. Hann gcrðist at- hafnasamur biskup, kom upp ágætum skóla að Hólum og fékk erlenda menn til að kenna við hann, ennfremur hlutaðist hann til um stofnun fyrsta klausturs. Hann lagði allt kapp á að útrýma leifum af nöfnum daganna, sem áður voru kennd- ir við Æsi. Jón andaðist eftir 15 ára biskupsdóm. Árið 1200 voru bein hans grafin upp, sett i skrín og geymd i dómkirkj- unni, þótti flestra meina bót að snerta skrínið, og sú trú lagðist á, að Jón væri dýrling- ur Hólakirkju. Guðmundur Arason, hinn góði, varð biskup á Hólum 1202. Mikilla vinsælda naut hann hjá alþýðu manna, var talinn heil- agur maður og máttugur i orði og verki. Hann átti í sífelldum deilum við höfðingja nyrðra, var livað eftir annað hrakinn frá Hólum og sárt leikinn. Fór hann víða um landið og jneð honum alls konar förumenn og landsliornalýður, ])ótt nokkrir ágætir menn væru einnig j liði hans. Eigi var Guðmundur góði stjórnsamur biskup, og fyrstur manna lagði hann íslenzk deilu- mál undir dóm erlendra höfð- ingja. Kaþólskt vald efldist mjög hér á landi eftir Sturlungaöld. Voru þá biskupar á Hóluin margir erlendir menn. En síð- astur kaþólskra biskupa nyrðra var Jón Arason. Jón biskup Arason hugðist útrýma með öllu lútlierskum áhrifum hér, og um skeið var liann nær cin- ráður i landinu, en um síðir varð liann að lúta í lægra haldi fyrir Daða í Snóksdal og mönn- um hans. Hann var hálsliöggv- inn án dóms og laga, ásamt sonum sínum tveim, Ara og Birni, i Skálholti 7. nóvember árið 1550. Fór nánast allt við- nám íslendinga gegn konungs- valdinu með honum i gröfina. Kunnastur lútherskra bisk- upa á Hólastóli er Guðhrandur horláksson. Hann varð biskup árið 1571 og gerðist hrátt um- svifamikill, efldi hann skólann og bætti prentsmiðjuna, sem var þar og Jón Arason hafði keypt. Þá hafði Guðbrandur með höndum umfangsmikla bókaútgáfu. Er frægust þeirra lióka, sem liann gaf út, biblia sú, sem við liann er kennd. Styrktist lútherskur siður mjög nyrðra á stjórnarárum Guð- brandar. Arngrimur lærði var sltóla- meistari á Hólum i tið Guð- brandar. Hann var lærður i hezta lagi og ritaði margar bækur um ísland og menningu íslendinga til að hncltkja slúð- ursögum og óhróðri, er hirzt hafði á prenti erlendis Um ís- lendinga. Á átjándu öld hnignaði Hóla- stóli mikið eins og öðru hér á landi. Kom að þvi, að stóllinn var lagður niður árið 1801, þeg- ar hiskupsdæmin voru samein- uð, en skólinn var fluttur til Reykjavíkur og sameinaður Skálholtsskóla. En búnaðar- skólinn var settur þar á stofn árið 1881, og varð Jósef J. Björnsson fyrstur skólastjóri. Alls hafa 5 dómkirkjur ver- ið reistar á Hólum, 3 byggðar i kaþólskum sið, en 2 í lúthersk- um. Af eldri kirkjunum er nú eklci til tangur né tetur, engin þeirra er til á mynd, og ekkert er það á Hólum nú, er á þær minni. Aðeins örfáir kirkju- gripir liafa lifað þcssar kirkjur. Dómkirkjan á Hólum, sem enn stendur, var reist á dögum Gísla biskups Magnússonar. í kaþólskum sið voru eftir- taldir inenn biskupar: Jón Ög- mundsson, 1106—1121; Ketill Þorsteinsson, 1122—1145; Björn Gilsson, 1147—1162; Brandur Sæmundarson, 1163—1201; Guð- mundur Arason, 1203—1237; Bótólfur, norskur, 1238—1246; Heinrekur Kárason, norsliur, 1247—1260, Brandur Jónsson, 1263—1264; Jörundur Þor- steinsson, 1267—1313; Auðunn rauði Þorbergsson, norskur, 1313—1322; Lárentíus Iíálfsson, 1324—1331; Egill Eyjólfsson, 1332—1341; Ormur Ásláksson, norskur, 134.3—1356; Jón skalli Eiríksson, norskur, 1358—1390; Pétur Nikulásson, danskur, 1391—1411; Jón Henriksson, norskur, 1411—1423; Jón Vil- lijálmsson, líklega norskur, 1426—1435; Jón Bloxwich, ensk- ur, 1435—1441; Gottskálk Kæn- iksson, norskur, 1442—1457; Ólafur Rögnvaldsson, norskur, 1459—1495; Gottskálk Nikulás- son, norskur, 1496—1520; Jón Ai'ason, 1524—1550. -— í lút- herskum sið: Ólafur Hjaltason, 1552—1569; Guðbrandur Þor- láksson, 1571—1627; Þorlákur Skúlason, 1628—1656, Gísli Þor- láksson, 1657—1684; Jón Vig- fússon, 1684—1690; Einar Þor- steinsson, 1692—1696; Björn Þorleifsson, 1697—1710; Steinn Jónsson, 1711—1739; Halldór Brynjólfsson, 1746—1752; Gisli Magnússon, 1755—1779; Jón Teitsson, 1780—1781; Árni Þór- arinsson, 1784—1787; og Sig- urður Stefánsson, 1789—1798. HVER er BOB DYLAN? Kæra Æska. Getur þú nú ekki frætt mig eitthvað um söngv- arann Boh Ilylan? — Snúlla. Svar: Bob Dylan er fæddur 24. maí árið 1941 i Dulutli í Minne- sota. Hann byrjaði að syngja og leika á gítar aðeins 10 ára gamall og náði fljótt mikilli tækni bæði i leik og söng. Nú er hann talinn vcra einn fræg- asti visnasöngvari heimsins, og til marks um vinsældir hans má geta þess, að nýlega söng hann kvöld eftir kvöld fyrir fullu húsi í Albert Hflll i Lon- don, en sá salur tekur i sæti um 6500 manns, og plötur hans seljast svo að milljónum skipt- ir. Hann er eiinfremur skáld gott og hefur samið mikinn fjölda góðra laga og ljóða. 346

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.