Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.09.1967, Qupperneq 41

Æskan - 01.09.1967, Qupperneq 41
S V O R Svar til G. G.: í Laugaskóla voru á síðastliðnu skólaári 28 nemendur í yngri deild og 48 i eldri deild, sem gengu undir próf. Athyglisverður var ár- angur nemenda eldri deildar. Af 48 nemendum voru 24 með hærra en 7.30 í meðaleinkunn. Fæðiskostnaður pilta var 76.60 kr. á dag, en stúlkna 67.00 kr. Fæðisdagar voru rúmlega 180, og varð fæðiskostnaðurinn fyr- ir pilta því tæplega 14.000.00 kr. yfir veturinn, en stúlkna rúmlega 12.000.00 kr. Savr til Þórðar: Frá Bænda- skólanum á Hólum var 21 nem- andi útskrifaður á síðastliðnu Vori, en á síðasta vetri voru 12 nemendur i yngri deild skól- ans. Meðal nemenda voru þá tvær stúlkur, Oddný Finnboga- dóttir og Guðbjörg Sigurðar- dóttir. Skólinn var fullsetinn á síðasta skólaári og aðsókn er mikil fyrir þetta skólaár. Svar til Svavara: Býflugurnar eru taldar vera einhver smávöxnustu nytjadýr- in, sem mennirnir iiafa, en þar sem býflugnaræklin heppnast vel, er mikið upp úr henni að iuifa. Fátt er það, sem börnun- um þykir meira gaman að sltoða en býflugnabú. í býflugnabú- um er allt á iði, flugurnar sí- fellt á ferð út og inn. Þær setjast á blómin og safna hun- angi, fljúga með það heim í búið og skila því og fara svo í nýja ferð. í búunum er röð og regla á öllu. Við innganginn er fyrirliði, sem lieldur vörð, og þar er engum óviðkomandi bleypt inn. Ef einliver óviðkom- andi fluga lætur ginnast til nð koma i heimsókn, á iiún ]>að vist að fá ómjúkar viðtökur. En það er lika annað hlut- verk, sem býflugurnar hafa, og það er ekki ómerkara en söfn- un hunangsins. Þær flytja frjó- korn milli blómanna, svo að þau frjóvgist. Kvendýrið á býflugnaheimil- inu er drottningin. Hún verpir eggjum, og það er ekkert smá- ræði, sem frá henni kemur, þvi á 4—5 mánuðum getur hún verpt um 300.000 eggjum. Maurarnir eru verstu óvinir býflugnanna. Þeir sæta lagi að ráðast tveir á fluguna, því einn maur hefur ekki við býflugu. Stundum kemur það líka fyrir, að maurar ráðast á býflugna- búin og drepa allar býflugurn- ar og éta síðan hunangið. Hér á landi er engin bý- Þessar ungu stúlkur stunduðu nám i Bændaskólanum á síðastl. vetri. Þær eru Oddný Finnbogadóttir og Guðbjörg Slgurðardóttir. SPURNINCAR OC SVÖR flugnarækt, en i nágrannalönd- um okkar hafa margir hana sem aukaatvinnu. Svar til Skafta: Pílagrímsfaramánuður Mú- hameðstrúarmanna liefst ár hvert 25. desember. í lielgibók þeirra, sem Kóran nefnist, er öllum Múhameðstrúarmönnum gert að skyldu að taka sér að minnsta kosti einu sinni á æv- inni ferð á hendur til hinnar lieilögu borgar Mekka. Borgin Mekka er fæðingarstaður Mú- hameðs, og þangað streyma á hverju ári þúsundir pílagrima. Ibúar borgarinnar munu nú vera um 80 þúsundir, og iifa þeir nú næstum eingöngu ú pilagrímum. Mekka er um- kringd háum fjöllum á alla vegu, svo að landrými er ekki mikið. í dæld einni í miðri borginni er Bagdalla musterið. Yfirburðir Bagdalla musteris- ins yfir önnur musteri Mú- hameðstrúarmanna munu Vera þeir, að það er með sjö turn- um, og þar er hin fræga bvgg- ing „Kaaba“, sem er aðalhelgi- dómur allra Múhameðstrúar- manna. Bygging þessi er tjöld- uð hinum heilögu ábreiðum, sem eru úr þykku, svörtu silki, og prýdd breiðum borða, ofn- um úr gullvú', sem lagður er um tjaldið þvert. Þessi heilaga bygging er gerð úr höggnu grjóti og óvönduð að öllum frá- gangi. í einni hlið hennar er hinn frægi svarti steinn. Steinn þessi var dýrkaður löngu fyrir daga Múhameðs. Sérhver pila- grimur, sem til Mekka kemur, skal ganga 7 sinnum i kringum Kaaba-bygginguna, og að þvi loknu skal hann kyssa „hinn svarta stein“. Munnmæli segja, að Gabríel engill hafi fært Ismael (syni Abrahams og for- föður Arabanna) þennan heil- aga stein af himnum ofan, og liafi hann upphaflega verið hvitur að lit, en orðið svartur af syndum mannanna. Gina Lollobrigida. Kæra Æska. Hvenær er kvik- myndaleikkonan Gina Lollo- brigida fædd? — Dóra. Svar: Gina Lollobrigida er fædd í Scobiaco á Ítalíu 4. júli árið 1927. Þriggja ára gömul var hún valin „Fegursta barn ítaliu“. Nokkrum árum síðar var hún kjörin „Lyceums- drottning", síðan „Indælasta stúlka í Stresa", og loks „Ung- frú Róm“. Hún stundaði söng- nám i Rómaborg, þegar kvik- myndaframlciðendurnir komu auga á hana. Hún varð heims- fræg leikkona af fyrstu mynd- um sínum og lilaut þá bin eft- ii'sóttu Óskarsverðlaun. Til ]xessa hefur lxún leikið í meira en fjörutíu kvikmyndum. Gina Loilobrigida. Hverjir eru þeir? Svör: 1. Bill Wyman, 2. Brian Jones, 3. Mick Jagger, 4. Charlie Watts og 5. Keith Richard. Heilabrot: Svar: Hann bjó í kjallara. 349

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.