Æskan - 01.09.1967, Page 44
sem var eins konar miðstöð rytmahljómlistarinnar í Liverpool. En
það var fyrst, er þeir voru aftur ráðnir til Hamborgar, sem léttist
á ]ieim brúnin. Nú vöktu þeir mikla brifningu í Þýzkalandi, og ljós-
myndarar frá fiestum blöðum landsins hvöttu þá til ails konar
afkáraskapar á pailinum. Það voru þýzkir blaðamenn, sem báðu
þá að safna hári. Aldrei hefur leikið neinn vafi á því, að Bítlarnir
hafa hæfileika. En í þessu starfi er skipulag og viðskiptavit nauð-
synlegt. Það var fyrst eftir að Brian Epstein varð umboðsmaður
þeirra, að Bítlarnir tóku að uppskera laun erfiðis síns. Epstein
afgreiddi i einu af mörgum fyrirtækjum foreldra sinna, sem verzl-
uðu með húsgögn, útvarpstæki og hljómplötur. Hann tók eftir því,
að margir unglingar spurðu eftir plötum með Bítlunum. Þeir höfðu
þá aldrei leikið inn á plötu, og því vildi Epstein kippa i lag. Hann
hafði samband við drengina, athugaði heldur larfaleg föt þeirra og
lét sauma nýja, snotra búninga handa þeim með dálitið gamaldags,
kragalausu sniði. Stuttu síðar var hann búinn að koma i kring fyrstu
plötuupptöku Bítlanna, og ung söngkona, Cilla Black, sem hafði
haft heldur skömm á þessum labbakútum, varð nú fegin að fá þá
til að leika undir fyrir sig og meira að segja að syngja lag eftir
John Lennon og Paul McCartney inn á plötu. Þó að Pete Best væri
einn af vinsælustu trommuleikurum í Liverpool, kom i ljós, að stíll
hans féll ekki að kröfum hljómplötuupptökunnar. Hann gekk því úr
hljómsveitinni, en Ringo Starr kom í hans stað. Ringo féll vel 1
hópinn, en hann hélt samt áfram að vera einrænn. Þegar liann
átti frí, stakk hann hina af. Hann var oft eins og lítil hljómsveit
í hljómsveitinni. Hann barði sniðtrommu með annarri hendinni,
sveiflaði tambúrínum í liinni, og með fótunum sló hann stórtromm-
una og fleiri hljóðfæri. Árið 1963 varð fyrsta ár frægðarinnar. Þeir
voru nú orðin fastmótuð liljómsvcit, rík af persónuleika og músík-
gáfum. Bítlarnir eru undarlegir í útliti og liáttum, en þeir erU
skemmtilegir og aðlaðandi. Það hefur komið í ljós, að þeir ei'U
ekki aðeins góðir hljómlistarmenn, lieldur lika glúrnir vel, og með
hæfileikum sinum hafa þeir yfirunnið fátækt bernsku sinnar i borg.
þar sem fátæktin er flestum ævilangur fylginautur. John Lennon
segir: Við græðum milijónir, en við þrælum líka fyrir þeim, svo
að við varðveitum áreiðanlega virðinguna fyrir gildi bæði vinnunnaf
og peninganna. Þeir félagarnir hafa leikið í tveimur kvikmynduin.
sem slógu öll met í miðasölu í flestum löndum, og nú eru þeir a®
leika í þriðju kvikmyndinni. Alls munu þeir liafa sungið inn á 1®
hljómplötur, sem hafa selzt í milljónatali.
ast
\
Merki,
sem hægt er
að treysta.
att
Fyrií
SKÓLA,
SKRIFSTOFUR,
VIÐSKIPTALlF
kaupir maður sér
HAUSER
kúlupenna ojJ
fyllitt^ar
EiRs íyllingin með hinni glæsilegn áíerð.
Heildverzlun AGNAR K. HREINSSON
Carðastræti 8 — Sími 16582.