Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1968, Side 7

Æskan - 01.01.1968, Side 7
■^yjjraría Sklodowska var fædd árið 1867 í Póllandi. Faðir hennar var prófessor í eðlisfræði við háskól- ann í Varsjá. Þau voru fimm syst- kinin og hún, Manina, eins og hún var kölluð, var yngst þeirra. En hún var nú líka gáfuðust. Hún lærði það, sem henni bar, og það mundi hún. Hún var samt enginn leiðinlegur námshestur, heldur hafði hún brenn- andi áhuga á öllu, sem hún heyrði og sá, og jafnvel meiri áhuga en flest venjuleg börn. Þegar hún lauk námi í Varsjá, hlaut hún gullverðlaun fyrir frammistöðu sína. Allir voru sammála um, að þessi unga stúlka væri óvenjuleg og ætti ótakmarkaða framtíðarmöguleika. En samt var einn Ijóður á. Hún var íá- tæk og varð að láta sér nægja að gerast kennslukona. En um síðir tókst henni að komast að sem nem- andi við hinn heimsþekkta Sorbonne háskóla I París. Þá var hún 27 ára gömul. Á þessum tíma rétt fyrir síð- ustu aldamót þótti óviðeigandi, að kvenfólk stundaði háskólanám, og ekki hvað sízt þótti furðulegt að leggja stund á eðlisfræði. En vinnu hennar í háskólanum sem nemanda lauk með prófi í eðlisfræði og stærð- íræði. Hún vissi, hvað hún vildi. Vinna að vísindagreinum sínum og ekkert ann- að. Hún kynntist frægum vísindamanni, Pierre Curie, og þau giftust. Saman unnu þau svo að áhugamálum sín- um, á sviði stærðfræði og eðlisfræði. Nú byrjaði fyrir alvöru starf Maríu. Maður hefði ef til vill búizt við, að hún myndi hætta þessu rann- sóknarbrölti eftir að hún giftist, en það var öðru nær. Áhugamál hjón- anna var samþætt og þau unnu að þeim nótt og nýtan dag. Þekktur visindamaður, A. H. Bec- querel, hafði ritað greinar um geisl- andi efni. Frú Curie og maður henn- ar tóku til við rannsóknir á þeim af kappi. Meðal annars notaði hún efni, sem allir kannast við nú, efnið úranínum. Hún fann, að úranínum gaf frá sér sérstaka geisla, sem höfðu margs konar áhrif, jafnvel þótt þeir væru alls ekki sýnilegir. Hún hélt áfram að leita og komst að raun um, að fleiri frumefni höfðu þennan eiginleika. Þessi kraftur, sem efnin geisla frá sér, nefnist enn í dag því nafni, sem María Curie gaf honum, geisla- virkni (radioactivity). En tilraunir frú Curie leiddu í Ijós, að geislavirknin var sums staðar langtum sterkari heldur en búast mátti við. Því sagði hún, að þetta hlyti að stafa frá frumefni, sem hefði ekki enn verið uppgötvað. Reyndar gat hún ekki vitað neitt um það. Það hlaut bara að vera til. Og þá var að finna það. Hún og maður hennar hófu leitina og árangurinn lét ekki á sér standa. í dagbók hennar stendur: ,,Mað- urinn minn og ég höfum með rann- sóknum okkar dregið þær ályktanir, að í bergtegundinni begblendi sé nýtt frumefni, sem við leggjum til að nefnt verði Radíum. Það er mjög geisla- virkt.“ Fyrir þessa uppgötvun hlutu þau 100 ára minning Uppgötvun radíums er einn af hinum miktu sigrum nútíma- vísinda. Sagan um þessa upp- götvun- er um iei3 saga um Iramúrskarandi skerf konu fil vísindanna. Þessi kona var Frú Curie, kon- an, sem hiaui Nöbelsverðiaun- in tvivegis. R Ú C U R I E 3

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.