Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1970, Qupperneq 30

Æskan - 01.01.1970, Qupperneq 30
Það er sannað mál, að vinningur hefur komið á mið- ann, sem Birgir Bentson keypti af Björgu og vinstúlku hennar í fyrsta skipti, sem þær komu heim til hans. Mið- ann lét hann í vasa á gömlum, köflóttum jakka, sem móð- ir hans gaf nokkrum dögum síðar. Hún gaf hann gömlum skógarhöggsmanni, en þegar stúlkurnar finna hann, segir hann þeim, að jakkanum hafi verið stolið frá sér skömmu áður. 6. KAFLI „Grunar yður nokkuð, hver muni hafa tckið jakkann?“ spurði Björg. „Nei, )>að fara svo margir um þjóðveginn, en ég hengdi jakk- ann einmitt á tré skammt frá veginum. I>að var auðvitað liugis- unarleysi lijá mér, og mér þótti skaði að missa jakkann. Hann var ágætisflík og frú Bentson gaf mér hann i þákklœtisskyni fyrir smágreiða, sem ég gerði henni. Ég ætlaðist ekki lil neinna launa fyrir þann greiða, en hún bauð mér jakkann og ég þáði hann mcð ánægju.“ „I>ér hafið ekki ... fundið neitt í brjóstvasanum á jakkan- um?“ spurðu þær. Skógarhöggsmaðurinn hristi höfuðið. „Ne-ci, þvi miður, enda var jakkinn ekki svo lengi í minni eigu, að ég tæki hann til ræki- legrar athugunar. Mér virtist þctta vera injög góður jakki og mikil skyssa af mér að fara að ganga i honum daglega. Kg átti auðvitað að nota hann aðeins á sunnudögum og þvi fór sem fór, að ég varð af með hann.“ „Hvenær var honum stolið?“ „Ja, bara i gær, en mér er ómögulegt að vita hver hefur tekið hann. Að visu sá ég viðgerðamann fara hér fram hjá, en ég læt ósagt, að hann hafi tekið jakkann. Eitt er jió víst, að skömmu síðar var jakkinn Iiorfinn.“ „Var hann á hjóli ?“ „Jú, hann var á hjóli og með verkfærakassa. En eins og ég sagði áðan gæti verið um ýmsa fleiri að ræða, því margir eiga leið um lijóðveginn. En livað var annars í vasanum?" „I>að var nú víst aðeins miði með nokkrum tölustöfum á,“ svaraði Björg í flýti. „Jæja, svo að herra Bentson þárf að fá þann miða aftur?“ sagði hann. „I>að kæmi sér vissulega vel, ef hann fyndist, og hann hað okkur að athuga, hvar seðillinn kynni að vera niðurkominn. En hér verðum við víst að láta staðar numið. Við hiðjum yður að afsaka ónæðið, herra Jönsson," sagði Björg. „Ekkert að afsaka. Ykkur var velkomið að spyrja,“ sagði hann. I>ær voru í döpru skapi, þegar þær gengu aftur út á veginn, settust á reiðhjólin og liéldu hægt af stað i átt til skólans. „Nú verður erfitt að útskýra málið til fullnustu fyrir herra Strandberg," sagði Stina. „Hann álitur áreiðanlega, að við séum orðnar geggjaðar." „Ennþá erfiðara verður þó að einbeita huganuin við námið,“ sagði Karen. „Ég get alls ekki hætt að hugsa um miðann. Hugsið ykkur nú, að viðgerðamaðurinn fyndi miðann í vasanum, færi svo og innheimti peningana hjá Barnahjálpinni." „Getur hann það?“ sagði Björg áköf. „Við förum til Barnahjálparinnar og segjum, að við vitum, hvaða númer við seldum Birgi Bentson, og að hann og enginn annar eigi peningana," sagði Björg. „Ég held, að það sé ómögulegt," sagði Karen efandi. „I>ið getið reitt ykkur á, að peningarnir fást ekki án miðans. Mér hefur verið sagt frá manni, sem vann sumarhústað í happ- drætti. Maðurinn hafði skrifað númerið í vasabók sína til að vita vissu sina, Jiegar vinningsnúmerið yrði birt í blöðunum. Vinningurinn kom á hans númer, en þegar til átti að taka var miðinn týndur og hann fékk aldrei sumarl)ústaðinn.“ „En hvað er gert við vinningana í því tilfelli, að vinningsmið- inn komi aldrei fram?“ „Þá verða þeir eign þess aðila, sem liappdrættismiðarnir eru seldir fyrir,“ sagði Björg. „Ef vinningur er ekki sóttur innan ákveðins tíma frá drætti, fellur niður rétturinn til að öðlast vinninginn. Þetta er prentað á alla svona miða og þar er ekkert um að villast." Þetta varð heldur leiðinlegt kvöld hjá stúlkunum. Fyrst töl- uðu þær sín á milli um að fara til mæðginanna og segja þeim sínar farir ekki sléttar. En að síðustu kvað þó Björg upp úr með að fara alls ekki þangað í slikum erindagerðum að svo búnu. „Eg vil helzt fá að sofa á þessu máli i nótt og hvila mig,“ sagði lmn. „Alltaf finnst einhver leið úr vandanum og svo mun einnig verða hér.“ „Hvernig má það verða?“ spurði Karen. „Ég er sannfærð um, að þetta muni heppnast," sagði Björg. „Það er ekkert réttlæti í því að miðinn tapist algerlega, svo að Birgir Bentson fái ekki eyri af því, ,sem hann á með réttu og hefur knýjandi þörf fyrir.“ Stina sagði: „Á morgun er laugardagur og fresturinn rennur út á mánudaginn." „Eg viðurkenni engan ósigur að svo koinnu máli,“ sagði Björg og var hnakkakerrt. „Þér er vist óhætt að gera það strax,“ sagði Stína með tárin í augunum. „En mér þykir það svo leitt vegna gömlu frú Bent- son, Birgis sonar hennar og litlu stúlkunnar lians í Sviss. Þessir peningar hefðu komið svo miklu góðu til leiðar fyrir ]iau.“ „Já, en einmitt þeirra vegna vil ég ekki gefa upp alla von,“ sagði Björg. „Við verðum að lialda baráttunni áfram, meðan stætt er.“ „Þú veizt ckki, við livern er að fást. Hvernig getur ]>ú haft upp á viðgerðamanninum á lijólinu?" „Vertu nú ekki svona vonlaus," sagði Björg og lét cngan bil- bug á sér finna. „Viðgerðamaðurinn hverfur nú ekki eins og tlögg fyrir sólu. Hann lilýtur að koma aftur fram einhvers staðar." „Jæja,“ sagði Stína. „Eigum við ekki að reyna að nota símann Og spyrjast fyrir? Eigum við að tala við lögregluna? Eða er eitt- livað annað til ráða?“ „Ég er lielzt að hugsa um að segja Frank skólastjóra upp alla sögiina," sagði Björg. 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.