Æskan - 01.01.1970, Síða 33
V '
I
t / 1®»""' }■
■■.. .
STUTT AGRIP
. a( sögu knattspyrnunnar
Eftir heimsstyrjöldina fyrri komu fram
ný stórveldi á vettvangi knattspyrnunn-
ar, sem reyndust ofjarlar hinna eldri.
I>að voru Suður-Ameríkurikin, einkum ]>ó
Uruguay. Önnur ríki, sem áttu góðum
liðum á að skipa um |>etta leyti, voru
Italia, Frakkland, Belgia og Tókkóslóvakía.
Þrátt fyrir þetta héhiu Englendingar
óbeint forystunni, en ]>ar sem beztu
menn þeiri’a voru atvinnumenn í iþrótt-
inni, ]>á kepptu þeir ekki á Olympíuleik-
unum, og vegna ágreinings um reglugerð
FIFA varðandi heimsmeistarakeppnina
sendu |>eir ekkert lið til þeirrar keppni
á árunuin 1930—1950.
Englendingar eru núverandi heims-
meistarar, en siðustu tvo áratugina hafa
ýmsar þjóðir átt glæsileg tímahil, en
hæst her þar Ungverja og Brasiliumenn.
Iðkun knattspyrnu á íslandi hófst árið
1895, og var það Skotinn James B. Fergu-
son, sem fyrstur manna hóf kennslu
hennar. Hann var starfsmaður ísafoldar-
prentsmiðju í Reykjavík, en í tómstund-
unum safnaði hann að sér ungum mönn-
uin og kenndi þeim knattspyrnu og fleiri
íþróttir. Margir nafnkunnir menn nutu
leiðbeininga Fergusons í iþróttum og
mætti t. d. nefna Svein Björnsson fyrr-
verandi forseta Islands og Ólaf bróður
hans, Vilhjálm Finsen, Hannes Helgason
Og Pétur Jónsson óperusöngvara. Eftir
brottför Fergusons tók Ólafur Hósinkranz
við forystunni og tókst honum með
dyggilegri aðstoð m. a. þeirra Adams
Barcley, Péturs Jónssonar og Guðjóns
Einarssonar, föður Ben. G. Waage, að
halda við og glæða þann neista, sem
Ferguson hafði kveikt.
l'm aldamótin tóku nemendur Latínu-
skólans að æt'a knattspyrnu og leiðbeindi
Olafur Rósinkranz ]>eim. Einn skólapilt-
anna, Björn Pálsson Kalman, þýddi ensku
leikrcglurnar og er það fyrsta þýðing
þeirra, sem lil er á íslenzku.
Fyrsta knattspyrnufélagið var stofnað
1899, en aðdragandi þeirrar félagsstofn-
unar var sá, að nokkrir ungir menn komu
saman i verzlun í Aðalstræti í Reykjavik
og bundust samtökum um að kaupa knött.
Petta varð Fótboltafélag Reykjavíkur, en
nafni þess var seinna breytt i Knatt-
spyrnufélag Ileykjavíkur.
Árið 1907 var Iþróttafélag Reykjavíkur
stofnað, og ]>ó að það hefði ekki knatt-
spyrnu á stefnuskrá sinni, keppti það í
nokkur skipti við KR 1908. Gagnfræða-
deild Latínuskólans og nokkrir ungir og
áhugasamir menn í Vesturbænum stofn-
uðu um þetta leyti tvö ný félög, en bæði
urðu ]>au skammlif. Vorið 1908 var Knatt-
spyrnufélagið Fram, sem fyrst hét ]>ó
Kári, stofnað af starfsglöðum og áhuga-
sömum miðbæjarstrákum, 12—lfi ára
gömlum. Yngri piltar þessa sama bæjar-
hluta létu sér þetta að kenningu verða
og stofnuðu skömmu síðar Knattspyrnu-
félagið Viking. Piltar úr KFUM undir for-
ystu séra Friðriks Friðrikssonar stofn-
uðu Knattspyrnufélagið Val 1911, og hafa
|>essi þrjú siðastnefndu félög ásamt IvR
haldið velli til ]>essa. Utan liöfuðstaðar-
ins urðu Vestmannaeyingar einna fyrstir
til að taka til við knattspyrnuiðkun, og
kepptu þeir þegar 1912 í fyrsta fslands-
mótinu.
Þrátt fyrir ]>að, að knattspyrnufélög-
um í Reykjavík hafði fjölgað svo mjög á
örfáum árum, var enn ekki um að ræða
33