Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 39

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 39
Reykingar Allir skátar kunna skátalög- in. En eitt atriði i lögum J)ess- um er að visu óskráð, en hverj- um skáta skiljanlegt eigi að síður. Það hljóðar svo: „Skáti er ekki flón“, og þvi er ])að, að skátar reykja ekki á upp- vaxtarárunum. Allir drengir geta reykt, — ]>að er minnstur vandinn að gera |>að. En skáti gerir það ekki, því að hann er ekki slikt ginningarfifl. Hann veit ofur vel, að piltur, sem reykir á uppvaxtarárunum, 'getur skemmt hjartað, en það er mik- ilvægasta liffæri mannsins. Það dælir l)lóðinu um hann allan og sér þannig um holdgun, heinamyndun og vöðvamynd- un. Og ef hjartað getur ekki leyst hlutverk sitt af hendi, á hreysti og likamsvöxtur ekki samleið. Öllum skátum er ljóst, að reykingar spilla þefnæininu, sem er stórum mikilvægt fyrir l>á, er þeir sinna áríðandi skátastörfum. Margir kunnustu íþrótta- menn, liermenn og aðrir slík- ir reykja ekki, þeir finna, að það borgar sig ekki fyrir ])á. Enginn drengur hefur byrj- að reykingar sökum ])ess að honum þætti gott að reykja, hitt er venjulegra, að hann hafi byrjað á þvi, sökum þess oð hann hafi óttast, að hann yrði fyrir aðkasti frá félögum sínum, ef hann gerði það ekki, °S liræðslu yrði kennt um, eða ])á að hann hefur talið sér trú um, að hann væri mikill mað- ur. ef hann notaði tóhak, — l>ótt reyndin sé hins vegar sú, !,ð hann verður skoplegur fyr- lr bragðið. Því skaltu einsetja ])ér að reykja ekki fyrr en þú ert orðinn fulltiða maður, og standa við heitið. Og það sýn- lr, að ])ú ert meira karlmenni en sá, sem slangrar um með hálfreyktan. vindling milli var- !,nna. Og ]>ar kemur og, að hin- lr drengirnir meta þig að meir fvrir hragðið, og munu að öll- um líkindum fylgja dæmi ])ínu i mörgum tilfellum, þótt ekki hafi þeir hátt um. (Úr bókinni „Skáta- hreyfingin“ eftir liaden-Powell). Aths. Bókin er upphaflega skrifuð fyrir drengi, en á engu siður við stúlkur. - Hjartagæzka - Jórunn var 8 ára og fjörmik- ill krakki. Hún var fátæk, en það sem verra var, það var aldrei hugsað neitt verulega um hana, hún ólst upp á götunni, ef svo má segja. Hún flæktist víða og var alltaf óhrein og illa til fara. Dag nokkurn hafði hún eignazt krónu. Hún flýtti sér allt hvað af tók niður i „sjoppu" og keypti sér lakkris. Hún lék á als oddi, þegar hún hentist eftir götunni með lakk- rísinn í hendinni. Þá bar þar að aðra litla telpu, sem kom haltr- andi út úr húsasundi. Hún var föl og tekin og átti mjög erfitt með að hreyfa sig. Jórunn hljóp til hennar. „Sjáðu, sjáðu, hvað ég á, sjáðu." „Hvar hefur þú fengið þetta, Jórunn?“ „Auðvitað keypti ég hann.“ „Hvaðan fékkstu peninga?" „Það var maður, sem gaf mér þá fyrir að ná í hattinn hans, sem fauk af honum.“ „Gefðu mér að smakka, bara ofurlítið." Svipurinn á litla föla andlitinu var orðinn ákafur, augun Ijómuðu. Jórunn hugs- aði sig um. Hún leit á girnilegu lakkrísstöngina, síðan á litlu telpuna. Skyndilega brosti hún út að eyrum og sagði glaðiega: „Magga mín, þú mátt eiga hana, þú mátt fá alla stöngina. Þú getur ekki unnið þér inn aura með því að ná í hatta, sem eru að fjúka, þú getur ekki hlaupið eins og ég. Taktu hana, ef ég vinn mér inn fleiri aura, skaltu fá þá líka, þá getur þú keypt allt, sem þig langar f.“ Þetta var sólskinssagan af henni Jórunni litlu. H. T. .. \ ÞEKKIRDU LflNDIO? Hér kemur þriðja myndin í þessari skemmtilegu þraut. Enn er spurt, hvaða staður er þetta? Svör þurfa að hafa borizt til blaðsins fyrir 20. febrúar næstkomandi. Þrenn bökaverðlaun eru veitt fyrir rétt svör. HVAÐA STAÐUR ER ÞETTA? I---------- Stjórn Bandalags íslenzkra skáta óskar öllum skátum, svo og öðr- um lesendum Æskunnar, gæfu- ríks árs. — Árs starfs, þroska og gleði. X Skátaopnan sendir öllum les- endum sínum beztu nýársóskir og kveðjur, og óskar öllum skát- um heillaríks skátastarfs á árinu 1970. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.