Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 40

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 40
Svona varð scm sagt „motiv“ söfnun til i þeirri mynd, scm hún cr nú. Útbreiðsla hennar og vinsældir cru slikar, i það minnsta hér á iandi, að húið cr að vinna undirbúningsstarf- ið fyrir skólana með þvi að vckja áhugann, hann cr fyrir hendi, það þarf aðeins að vinna úr lionuin. Við skulum nú athuga cnn nánar hvað er innifalið i orð- inu tegundasafn. Tökum sem dæmi heimaland okkar, ísland. Vmsir hafa sett upp tegunda- safn, sem þeir kalla „Ferð um ísland". Við skulum nú bregða okkur í stutt ferðalag um land- ið okkar á frímerkjum þeim, er gefin hafa verið út af ís- ienzku póststjórninni. Ferð um ísland Við leggjum af stað vestur um land til Reykholts í Borg- arfirði. I>ar sjáum við styttu Snorra Sturlusonar, sem mynd er af á frímerkjunum frá 1941. A leiðinni þarna upp eftir höf- um við staðnæmzt i Hvalfirði við Þyril, en mynd hans getur að líta á flugmerkinu frá 1947. Næst er svo haldið upp á efsta byggðan bæ, Kalmanstungu, og þaðan getur að lita Eiríksjök- ul, sem tvívegis hefur verið notaður sem mynd á frímerkj- um, þ. e. á flugmerkjunum 1952 og jöklamerkjunum 1957. Nú vendum við kvæði okkar i kross og höldum út á Snæ- fellsnes. Þar er enn jökull, sem var í sömu útgáfum og ég nefndi síðast. Annars var ég rétt búinn að gleyma Anda- kílsvirkjuninni, en hana getur að lita á merki frá árinu 1956. Við höldum nú yfir Breiða- fjörð og Barðastrandarsýslu yfir í ísafjarðarsýsluna, en i Arnarfirði getur að líta Fjall- foss í Dynjanda, en mynd hans er á merki frá 1935. Við hefð- um ennfremur getað skilið eft- ir eins og eitt þorskmerki frá 1939 og togaramyndina frá 1950 i Faxaflóa og Breiðafirði. Næst förum við svo til ísa- fjarðar, en ]iann stað gefur að líta á flugmerki frá 1947 og dæmigerð vestfirzk fjöll á póst- afmælismerkjunum frá 1951. Auk fluginerkisins frá 1947. Að Hólum í Hjaltadal at- hugum við merkin með mj-nd Jóns Arasonar, sem, ef langt væri sótt, mætti líka setja niður hjá Viðey. Enda orti hann um hina sögulegu komu sína til Viðeyjar, er hann fór þangað til að reka Dani á braut: „Víkur hann sér í Við- eyjarklaustur, víða ég trúi hann svamli, sá gamli. Við Dani var liann djarfur og hraustur og dreifði þeim á flæðar flaustur, með hrauki og faramli." Síldin á merkjunum frá 1939 minnir olikur án efa á Siglufjörð, og inn til Akur- eyrar fljúgum við á 75 aura merkinu frá 1947. Ekki meg- um við gleyma að skoða Lax- árvirkjunina á merkinu 1956, eða fossana tvo, Dettifoss og Goðafoss, úr sömu samstæðu. f Vaglaskógi eða Hallorms- staðaskógi getum við svo at- faugað skógræktarmerkin frá 1957. Og að Hrauni í Öxnadal skoðum við Jónasar Hallgrims- sonar merkið frá 1957. Þegar við svo yfirgefum Hallormsstaðaskóg, höidum við sem leið liggur á Öræfajökul. Hann finnum við bæði á flug- merkjunuin frá 1952 og jökla- merkjunum frá 1957. Við kom- um líka við í Mýrdal og sjá- um þar brimlendingu á merki frá 1925. Þaðan höidum við svo til Vestmannaeyja og skoð- um þær á merkinu i settinu frá 1950. Næst förum við upp „fagran Rangárvöll. Dreifð eru blómguð tún um grænar grund- ir, í norðri risa Heklutindar háir, svell er á gnípu, eldur geisar undir.“ Svellklædda höf- um við Heklu á merki frá 1935, en „í ógnardjúpi liörðum vafinn dróma, skelfing og dauði dvelja langar stundir." Á settinu frá 1948 getur að lita livilík ósköp ganga á þeg- ar skelfing og dauði brjóta af sér drómann.Við höldum hnip- in yfir þessum ósköpum frá Heklu í Skálholt. Þar getur að lita hina veglegu dómkirkju á Skálholtssettinu frá 1956 og þá liiskupana Jón Vidaiin, sem mest hræddi íslendinga með valdi hins vonda, og Þorlák helga, sem frægur er fyrir jar- teiknir, eða kraftaverk, allt suður til Miklagarðs. Einnig finnum við Skálholtsrektor, Jón Þorkelsson, á merkjum frá 1959, en hann má lika setja niður á Álftanesi, við Hausa- staðaskóla. í uppsveitum Ár- nessýslu getum við lika sett niður Flóttamannaársmerkið frá 1960 til að minnast fræg- asta útlaga sem ísland hefur alið, Fjalla-Eyvindar. En mynd þessa merkis er Útilegumað- urinn. Við höldum frá Skálholti til Gullfoss, en mynd hans er á merkjum frá 1930, 1931, 1932 og 1956. Frá Gullfossi er siðan lialdið til Þingvalla. Þar er um auðugan garð að gresja, enda þjóðin og þjóðlifið vart tengt öðrum stað á landinu sterkari böndum en jiessum gamla þingstað okkar. Við skulum hyrja árið 1930, en það ár kom út Alþingishátíð- arsettið, til að minnast 1000 ára afmælis Alþingis fsiend- inga. Elzta löggjafarsamkunda heims ætti skilið, að hennar væri minnzt rækilega á fri- merkjum. Þessi útgáfa varð einnig vegleg og minnti á margt í sambandi við Jiingið og átthagafræði landsins frá þessum 1000 árum. Auk liinnar almennu útgáfu var svo þjón- ustusett, flugsett, eitt þríhyrnt flugmerki með mynd fálkans. Allt ])etta á heima á Þingvöll- um, en auk þess flugmerki frá 1934, lýðveldismerkin frá 1944, flugmerkið frá 1947, Alþjóða póststofnunar afmælismerkið frá 1949 og fánamerkin frá 1958. Ef við svo athugum öll ]>essi merki nánar, fræðumst við ekki aðeins um landafræði, heldur og stórlega um sögu. Næst höldum við svo til Bessastaða og heimsækjum forseta vorn, en bústað lians getur að lita á 25 króna merki frá 1957, og síðan liöldum við til Reykjavíkur. Þá er um svo margt að ræða, að við liljótum að velta vöng- um yfir því, hvort ekki sé hetra að setja upp nýtt teg- undasafn, sem kalla mætti göngufcrð um Reykjavik. TEGUNDASÖFNUN 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.