Æskan - 01.01.1970, Qupperneq 45
í bréfi til Æskunnar frá því í fyrravor
segir svo:
Kæra Æska.
Þakka þér íyrir allt gott efni, sem þú
hefur verið með. Hér heima hjá mér líta
allir I Æskuna, þegar hún kemur, líka
gamla fólkið. Mér finnst Tarzan apabróð-
ir skemmtilegastur að lesa og Ifka reynum
við strákarnir við ýmislegt úr Handavinnu-
horninu. Ég er 10 ára og skólinn minn
er ekki mjög stór. Við strákarnir I minum
skóla vorum að tala um að skrifa Æsk-
Þakka þér fyrir bréfið, skólastrákur, og
skriftin þín er mjög sæmileg, miðað við
aldur þinn. Festan í rithönd þína kemur
seinna. Ég, sem þennan þátt rita, á í
fórum mínum eina mynd, sem einmitt
sýnir, hvað drengir í einum 10 ára bekkn-
um í Miðbæjarskólanum I Reykjavík smíð-
uðu í fyrravetur. Núna starfar þessi skóli
ekki lengur sem barnaskóli, því að í haust
var honum breytt í menntaskóla.
Hlutirnir, sem sjást á myndinni, eru
þessir:
unni og þiðja hana að segja okkur, hvað
þeir smíða strákarnir í stóru skólunum í
Reykjavík, til dæmis 10 ára strákar. Ég
hef nú ekki komið ennþá til Reykjavíkur,
en fæ kannski að fara þegar ég verð 12
ára. Það er svo dýrt að fara suður, þegar
maður á heima hinum megin á landinu.
Svo langar okkur til þess að fá teikningu
af gestaþraut, sem hægt væri að búa til
úr vír. Hvernig finnst þér skriftin á þessu
bréfi?
Skólastrákur i N.-Múlasýslu.
1. Flugvél, tviþekja með skíðum. Lengd
kringum 17 cm.
2. Farþegaskip, stærð 26x5x2,5 cm.
Skipið er ekki holað innan.
3. Vélbátur, stærð 21x5x2,3 cm.
4. Dráttarvél, lengd 18 cm. Utan um hjól-
in er gúmmí úr sundurklipptri reiðhjóla-
slöngu.
5. Jólasveinninn Skyrgámur. Á klossanum
framan við karlinn eru tvær holur fyrir
kerti. Þessi kertastjaki er málaður í
skærum litum og lakkaður.
Hér ( Reykjavík eru margir barnaskólar
og ef til vill getur þátturinn birt fleiri
myndir úr smíðastofunum seinna.
Þú biður líka um teikningu af gesta-
þraut gerðri úr vír. Jú, ég hef hér eina,
sem er létt að gera. Þú þarft ekki önnur
áhöld en litla beygitöng og efnið er dálít-
ill vírspotti. Ég er ekkert að segja þér
hvernig þessi þraut er leyst, þú hefur þá
ekki eins gaman af því að glfma við hana,
það er að segja, ef þú þekkir hana þá ekki
nú þegar.
Svo vil ég að lokum biðja drengi, sem
langar til þess að fá teikningar af ein-
hverju sérstöku, að skrifa Handavinnu-
horninu, verið ekkert feimnir við það.
HANDAVINNA í skólum
jjf
45