Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1970, Qupperneq 52

Æskan - 01.01.1970, Qupperneq 52
'purninfyar og, ái/or Demantar Svar til Árna. 1 byrjun 18. aidar voru margir gullgrafar- ar i Brasilíu. Á einum staSn- um sem þeir voru að grafa, voru þeir alltaf að rekast á fallega smásteina, en þeir fleygðu þeim, því þeir voru ekkert líkir gulli. En gull var það, sem þeir vildu finna. — Einn daginn tók einn gullgraf- arinn fulla skjólu af þessum steinvölum heim handa krökk- unum sínum að leika sér að. Og börnin voru að velta stein- unum á götunni, þegar munk nokkurn bar þar að. Munkur- inn fór að skoða steinana og spurði börnin, hvar þau befði fengið þá. Þau sögðu honum það, 'og hann náði sér i fullan kassa af svona steinum og fór með hann til Itio de Janeiro. Frá Ilio sendi hann kassann til konungsins i Portúgal, sem ])á var einnig konungur Bras- ilíu. Konungurinn varð hissa, er liann fékk fullan kassa af grjóti, cn lét rannsaka það, og steinarnir reyndust vera dem- antar. Nokkrum mánuðum síð- ar komu steinafræðingar, send- ir af konungi, þangað sem steinarnir höfðu fundizt. — „Eigið þið meira af þessum laglegu smásteinum?" spurðu þeir gullgrafarana. „Já, heila hauga af þeim,“ svöruðu þeir. „Börnin ykkar leika sér að demöntum," sögðu kóngsmenn. Þeir tóku skóflurnar og fóru að moka upp demöntunum. Staðurinn, sem þetta gerðist á, var kallaður Diamantina, og þar voru um skeið mestu dem- antanámur heimsins. Dcmant myndar kristalla og klofnar eftir 4 stefnum. Dem- antar eru oft vatnstærir og litlausir, en stundum eru þeir hlandaðir aðkomulitum og geta jafnvel verið kolsvartir. Tær- ir demantar brjóta mjög ljós- geisla, og séu þeir skornir rétt, verða þeir fagurglitr- andi; þeir eru dýrmætir skrautsteinar. Demantar finn- ast á Indlandi, i Brasiliu og Arkansas i Bandarikjunum, en auðugustu demantanámur í lieimi eru i Suður-Afríku. Mönnum hefur tekizt að búa til örsmáa demanta úr kolefni. Svar til Gumma: Þeir lands- menn eru nú orðnir fáir, sem matazt hafa úr aski, en hinum fjölgar jafnt og þétt, sem ekki vita einu sinni, hvað orðið merkir. Þess er þó ekki langt að minnast, að spónamatur var etinn úr ösjium um allt ísland, hver maður á heimil- inu átti sinn ask og spón. Fyrst munu askarnir hafa horfið i bæjunum á 19. öld, síðan í leikur á, pollur, en tota það fremsta á lokinu, sem fram af stendur askbrúninni. Annars er lokið kúpt og kringlótt og fylgir barminum. Útskurður er næstum því aldrei á askinum sjálfum, en lokið er aftur á móti ætíð útskorið, annað Hver maður sinn ask sveitum, mismunandi snemma eftir byggðarlögum, en yfir- leitt á síðustu áratugum 19. aldar og á fyrstu árum 20. aldar á einstaka forngrónu heimili. Ekki eru askarnir úr aski smíðaðir, heldur úr venjulegri furu, asklokin stundum úr birki. Þeir eru settir saman úr telgdum stöfum, sem slá sér út með humhu um miðjuna, gyrtir ]>rem gjörðum úr kleyf- um og sveigjanlegum viði. Á tvo gagnstæða stafi asksins eru telgd tvö handarliöld, sem nefndust eyru. Uppistaða hét sá stafur, sem lokið er fest við, trénaglinn, sem lokið hvort með rósaverki í Venju- legum íslenzkum stil eða svo- nefndum skipaskurði, sem svo nefndist, af því að hvert smá- atriði skurðarins er í lögun likt og séð ofan i bát. Á ask- lokinu eru oft fangamörk og ártöl. Askurinn er handhægur i meðförum, þægilegt að bera í honum mat, og vel er hann til þess fallinn að sitja með hann á knjám sér, enda mat- aðist hver maður á bænum, þar sem hann var kominn á rúmi sínu. Hins vegar væri mjög ankannalegt að eta úr aski við borð. Lag hans er mótað við gömul húsakynni og heimilishald. S V O R Valbergur: Jón Sveinsson rithöfundur, sem allir þekktu undir nafninu Nonni, andaðist í Þýzkalandi 6. april árið 1945, 85 ára að aldri. Jón Sveinsson fór ungur utan og gerðist kaþ- ólskur. Gekk i Jesúítaregluna, nam klerkleg fræði og starf- aði síðan mikið fyrir reglu sína. Heimsfrægð gat hann sér fyrir harnabækur sínar, sein hafa verið þýddar á um 30 tungumál. Svar til Sævars: Fæðingar- bletti nefna menn bletti í húð- inni, sem eru, eins og nafnið bendir til, meðfæddir, en geta lika komið fram síðar. f raun og veru eru fæstir fæðingar- hlettir sjáanlegir á nýfæddu harni. Langoftast koma þeir ekki í Ijós fyrr en eftir 5 ára aldur. Fæðingarblettir eru mjög algengir, og er naumast nokkur maður til, sem engan fæðingarblett liefur. Getur olt- ið á ýmsu um afdrif þeirra. Sumir haldast óbreyttir alla ævi, aðrir liverfa, enn aðrir stækka. Fæðingarblettirnir geta verið úr ýmsuin tegundum vefja og stundum úr mörgum tegundum í einu. 52
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.