Æskan - 01.02.1970, Page 40
eir lesendur Æskunnar, sem þegar eru skátar, vita áreið-
anlega, að skátahreyfingin er alþjóðlegur félagsskapur, en
til þess að fleiri öðlist innsýn i þetta mikla, fjölmenna
ævintýri, sem hefur orðið til á aðeins 60 árum og sem nú
teygir sig um allar heimsálfur, vil ég dreþa á nokkur atriði.
Nú er starfandi um 191/2 milljón skáta i 158 löndum. Kjarni
starfsins er einn og hinn sami um allan heim, en hvert land gefur
starfinu form eftir þvi sem hentar landsvenjum, þannig að ungl-
ingar, sem ( félagsskapnum eru, njóti sín sem bezt. Þjóðarein-
kenni koma því skýrt fram og starfið og félagsskapurinn er fyrst
og fremst þjóðlegur. Hvernig gæti það öðruvisi verið, þegar við
hugsum okkur hinar ólíku aðstæður skáta i hinum ýmsu löndum?
Tökum til dæmis Grænland norður við heimskaut og Afríku-
löndin suður við miðbaug, eða Ástralíu, þar sem vegalengdir
eru sllkar, að erfitt er að mynda flokk með 6—8 krökkum og
loftskeyti eru einu sambandsmöguleikarnir. Hins vegar er svo
ALÞJÓÐLEGT
samstarf SKÁTA
Borghildur Fenger
starfsemin í fátækrahverfum stórborganna eins og London eða
New York, þar sem krakkar komast sjaldan eða aldrei út í
sveit, og einustu kynni þeirra af húsdýrum eru í dýragörðum.
Hvað er skátastarf, hver er tilgangurinn? Hann er þjálfun, upp-
bygging eigin skaphafnar, þjálfun í samskiptum við fólk, við
náttúru landsins, fugla og dýralíf. Allt þetta reynum við að gera
að skemmtilegum og vissulega spennandi leik fyrir hvern og einn.
Febrúarmánuður hefur smám saman orðið að alþjóðlegum
skátamánuði, þar sem flokkar, sveitir og félög kynna störf al-
þjóðabandalaganna og upplýsa um skátastörf framandi landa.
22. febrúar, afmælisdagur Lord og Lady Baden-Powell, er hátlð-
legur haldinn um allan hinn víðlenda skátaheim sem „Thinking
Day" — hugsana dagur. Þann dag senda skátar hver öðrum
kveðjur og hlýjar hugsanir berast heimshorna á milli.
Þetta nýbyrjaða ár er svoneínt „Alþjóðlegt ár“. B.Í.S. leggur
áherzlu á aukna kynningu, ekki aðeins i febrúarmánuði, heldur
allt heila árið. Þegar hafa verið gefnir út hugmyndabæklingar
handa foringjum allra greina skátastarfsins. Þeir flytja hugmynd-
ir um starfstilhögun til stuðnings foringjum f viðleitni þeirra að
gera skátastarfið auðugra og ennþá árangursrikara. í marzmán-
uði er ráðgert að komi út nýir bæklingar með enn fleiri hug-
myndum.
I sumar, þann 27. júlf, hefst skátamótið i Borgarfirði, allir
skátar hlakka til þess og hafa gert lengi. Þangað hefur verið
boðið mörgum erlendum skátum frá flestum nágrannalöndum
okkar. Skátar eru fljótir að kynnast, en ef þú eða flokkurinn þinn
sameiginlega hefur skrifazt á við einhvern væntanlegan þátt-
takanda, þá eigið þið þegar vin frá fyrstu stundu á mótsstað
og enginn tími fer til spillis. Þið getið samtímis verið búin að
kynna island og islendinga og á þann hátt gert dvölina lær-
dómsríkari og skemmtilegri fyrir þá sem koma. Skrifið skrifstofu
B.i.S. og fáið upplýsingar um alla tilhögun.
Kjörorð skáta er „Vertu viðbúinn". Verum öll viðbúin að
taka á móti góðum gestum að sumri og sýnum alþjóðlegt sam-
starf f verki. Borghildur Fenger.
LANDSMÓT SKÁTA 1970 verSur haldið á Hreðavatni dagana 27. júlí til 3.
ágúst, samtals 8 daga.
MÓTSGJALD: 2.300,00 krónur.
Þar innifalinn allur matur allan tímann, ýmis þjónusta, svo sem póstur, simi
(ekki samt I hvert tjald), bankaþjónusta o. fl. Þess skal getiS, að Landsbanki
islands ásamt útibúum tekur á móti sparifé væntanlegra þátttakenda Lands-
mótsins, þótt smáupphæðir séu, t. d. 50—100 krónur. Gæta ber þess, að
öll sú vinna og efni, sem við kemur vatnslelðslu, rafmagni og salernum, en
allt þetta kostar mikið fé, er Innifalið f mótsgjaldinu. Skátarnir leggja sjálfir
til sinn eigin viðleguútbúnað, gott skap, vingjarnlegt viðmót, góða umgengnl,
og ef mögulegt er, góð áhrlf á veðurfarið.
104