Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1970, Side 47

Æskan - 01.02.1970, Side 47
í bréfi frá Vestmannaeyjum, undirrituðu Ó. (heimilisfang vantar) og í öðru bréfi frá Reykjavík, undirrituðu ,,Ósk“, er spurt um það, hvaða nám teiknikennarar við barnaskóla þurfi að hafa og spurt er einnig um fleira þessu starfi viðkomandi. Teiknikennari Teiknikennarar fá flestir undirbúnings- nienntun í Myndlista- og handíðaskóla is- iands, en hann er til húsa að Skipholti 1, Reykjavík, og síminn þar er 1 98 21. Skóla- stióri er Hörður Ágústsson. Námstími í Þessum skóla, það er að segja teikni- kennaradeild hans, er einn vetur að loknu forskólanámi, sem tekur tvo vetur. Inn- fökuskilyrði: Aimennt kennarapróf eða sér- kennarapróf (t. d. í smíðum, handavinnu kvenna o. s. frv.). Undanþágu er þó hægt að veita, ef sérstakar ástæður liggja til, en nemendur, sem ekki hafa áður lokið kennaraprófi, verða að ganga til prófs í íslenzku, heilsufræði, sálar- og uppeldis- fræði, auk kennslugreina skólans. Undir- búningsmenntun mun þurfa að vera lands- próf eða gott gagnfræðapróf. í forskólan- um hljóta nemendur almenna undirbún- ingsmenntun í myndlistum, þ. e. a. s. teiknun, litafræði, formfræði, málun og listsögu. Inntökualdur er 16 ár. Þetta er þá námsbrautin fyrir þá, sem ætia sér að gerast teiknikennarar í barna- skólum og unglingaskólum. í skóium, sem hærra eru settir í skólakerfinu, mun vera krafizt framhaldsmenntunar í teiknun. Má geta þess, að Norræna félagið í Reykja- vík hefur útvegað fjölda efnilegra, ís- lenzkra unglinga námsdvöl á Norðurlönd- unum. Oftast veitir félagið nemendum dá- lítinn fjárstyrk til náms á Norðurlöndum og jafnvel stundum ókeypis skólavist, einkum þá í Svíþjóð. í annan stað er svo það, að hver sá, sem ætlar sér að verða kennari í ein- hverri námsgrein, hvort sem það er nú teikning eða eitthvað annað, þarf að skoða hug sinn vel og athuga hæfileika sína, áður en langt nám er hafið. Spek- ingur nokkur sagði eitt sinn, er rætt var um myndlist: „i hundrað manna hópi finn ég ef til vill einn, sem kann að hugsa, en fyrst meSal þúsunda finn ég einn, sem kann aS sjá!“ Svo sjaldgæf fannst honum myndlistar- gáfan meðai fjöldans. Verið ekkert feimin við að tala við teiknikennarann ykkar um þessa hugmynd ykkar. Einnig getið þið lagt fyrir ykkur, svona til gamans, eftirfarandi skyndipróf: Hvernig gengur mér: 1. að teikna mynd eftir hlut? 2. — búa til auglýsingu um íþróttamót? 3. — skreyta kápu utan um bók? 4. — búa til ,,klipp“-mynd? 5. — skreyta köku? 6. — raða saman litum svo vel fari? 7. — búa til dýr úr hnoðleir? 8. — teikna skreytingu á skartgrip? 9. — teikna skopmynd? 10. — teikna landslagsmynd? Þetta litla próf gæti e. t. v. hjálpað þér til þess að sjá, hvað í þér býr, en varast skyldi þó að taka það allt of alvarlega, þú átt nú eftir að þroskast mikið á þessu sviði sem öðrum ennþá. sr * jólakauptíðinni varð okk- *lr litið inn í leikfangadeildina 1 »Liverpool“ á Laugavegi 18A, en það er ein af fjölmörgum verzlunum KRON liér í Uvilt. Hvað þýðir eiginlega þetta KKON? munu kannski ein- Lverjir af yngstu lesendunuin sPyrja. Jú, þvi er til að svara, þetta orð er eiginlega skammstöfun á orðunum Kaup- félag Reykjavíkur og nágrenn- is. Þið sjáið, að tekinn liefur verið fyrsti istafurinn úr liverju þessara orða og þeim skeytt saman í orð: KRON. Þarna uppi á annarri hæð í Liverpool er stór salur, og leikföng og aftur leikföng hlasa við augum livert sem litið er. Það var ánægjulegt að hcyra svarið lijá deildar- stjóranum í leikfangadeildinni, þegar við spurðum, hver væru vinsælustu leikföngin núna: „Það eru t. d. þessi tvö frá lteykjalundi, stóri vörubillinn fyrir drengina og kaffistellið fyrir telpurnar." Já, það var ánægjulegt, vegna þess að Ueykjalundur er góð íslenzk stofnun, sem á allan heiður skilinn og getur nú bætt þeirri fjöður í liatt sinn, að hún standist samkeppnina við er- lenda leikfangasmiði, bæði hvað verð og gæði snertir. Þessi vörubíll er fallegur og nokkuð stór. Hann er gerður úr plasti og er á tvöföldum afturhjólum. Sturtur eru á honum. Verð hans er 220 kr. Kaffistell úr plasti var hins vegar það, sem mest var keypt lianda litlum telpum. Það er „fyrir fjóra“, óbrotliætt og er smekklegt á lit. Það er í góð- um kassa og verð þess er 198 krónur. Ekki er þvi að neita, að mörg fleiri girnileg leikföng eru til á þessum stað. Apollo er eitt þeirra, eins konar geim- far, þótt jarðhundið sé, raf- knúið og með „blikk“-ljósum. Nokkuð er það dýrt, því það kostar 665 krónur. Einnig má geta um mánaferjuna, sem lief- ur innbyggðan rafgeymi og getur hreyft sig all-kostulega á gólfi eða borði. Verð lienn- ar er 395 kr. — Margt fleira var þarna af leikföngum, og verður þeirra nýstárlegustu ef til vill getið siðar. G. H. Heimsókn í Leikfangaland íii

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.