Æskan - 01.02.1970, Page 50
Algengustu reglur:
A. Aðeins má taka þrjú skref með knött-
inn. Þá má stinga honum niður og
taka önnur þrjú skref o. s. frv.
B. Leyfilegt er að reka knöttinn með ann-
arri hendi að vild. Ef leikmaður grip-
ur knött með báðum höndum eftir
knattrek, má hann ekki stinga hon-
um niður aftur. Þá er dæmt tvigrip.
C. Leikmaður má ekki halda á knetti
lengur en 3 sek.
D. Bannað er að sparka knettinum.
E. Ekki má stíga inn á markteig eða mark-
teigslinu.
F. Ef knötturinn fer út fyrir hliðarlínur, er
dæmt innkast, en hornkast, ef hann
fer aftur fyrir endalínur. Þó mega mark-
menn slá hann aftur fyrir eigið mark.
VÖLLUR — LEIKMENN — DÓMARI
I. Eins og þið sjáið á teikningunni er
algengasta stærð valla 20x40 m. Mark-
teigurinn er 6 m frá markinu. Víta-
kastlínan er 7 m frá markinu og þar
framkvæmum við vítaköstin, þ. e. ef
brotið er gróflega á sóknarmann'
setn kominn er í marktækifæri. En ef
brotið er vægt, þá fær sóknarliðið að-
eins aukakast, sem er í 9 m fjarlægð
frá markinu. Verða þá varnarmenn að
vera upp við markteigslínu.
II. í handboltaliði mega vera 12 leik-
menn og þar af eru tveir markverðir.
Aðeins 6 útispilarar og 1 markvörður
VALLARBRE/op 1S-h.O rn.
4 Handknattleikur &
mega vera inni á í einu. En svo má
þjálfari skipta hinum inn á eftir hent-
ugleika (bezt þegar sóknin stendur
yfir). Algengasta uppstilling í vörn er
5:1 (sjá mynd).
Nauðsynlegt er að 2—3 leikmenn fari
inn á línu eða út á kantana þegar
við erum I sókn og 3 spili fyrir utan
vörn andstæðinganna. Þessir þrír
verða að vera þeir skotbeztu og út-
sjónarsömustu í spilinu.
Athugið að línumenn eru eru sízt þýð-
ingarminni en útispilarar og eru oft
markahæstu menn í leiknum.
III. Dómarar í handbolta eru tveir, því
betur sjá augu en auga. Þeir stað-
setja sig á vellinum eftir vissum regl-
um, þ. e. annar er við hliðina á mark-
inu en hinn er fyrir framan vörnina
og þannig sjá þeir bezt leikinn. Dóm-
arar hafa leyfi til að vísa leikmönn-
um út af í 2 minútur, ef þeir gerast
mjög grófir eða sýna dómara ókurt-
eisi, og þess vegna eiga þjálfarar að
brýna það fyrir leikmönnum að vera
kurteisir og réttlátir í leik sinum.
114