Æskan - 01.04.1976, Blaðsíða 5
mmm
Ég á einn vin og vorið gaf mér hann.
í vetrarskafli grasið smugu fann,
það óx til Ijóss í leit að nýjum degi.
Þú leiðir Kristur mig á dimmum vegi.
Ég leita þín og þú ert vinur minn,
í þöglu brjósti mínu ég þig finn
er þræsuvindar vitja kvíða míns
og visnuð stráin leita upþhafs síns.
Þá birtir aftur, blær af þinni strönd
hann ber mér vor í drottins mildu hönd.
Ég finn þú bræðir kvíðakviku þá
sem kæfði næstum júníbjarta þrá.
Ég á einn vin, á fund við hann ég fer
ef frostköld nepja sest að hjarta mér,
hann kemur eins og vitji sól á vori
þess veika blóms sem grær í hennar spori.
17. febr. 1976.
Roberto Ferruzzi: MóSIr og bam.
TVÖ
LJÓÐ
Af öræfum tímans kom blærinn sem ber
hans blessuðu orð inn í draum þessa Ijóðs.
Og þú gafst mér hlutdeild í heimi sem er
þessi himneska þögn í niði þíns blóðs.
Ég finn hann í hjarta þér, móðir mín,
og mynd hans er varðveitt í bæn minni og þrá,
á kvöldin ég hugsa til Krists og þín
og krýp eins og barn þar sem vegur hans lá.
Þá finn ég aftur þann eld sem var
þín örugga trú á vernd hans og náð,
þá sé ég að fórn þín var blessun sem bar
sín blóm og sitt líf eins og til var sáð.
EFTIR
MATTHÍAS
JOHANNESSEN,
RITSTJÓRA
eignaðist snemma þann eld sem var
örugga trú á fyrirheit hans.
spurningum þínum var þögnin svar
e|ns og þrastakliður úr brjósti vors lands.
9 f>nn hann í hjarta þér, móðir mín
09 niynd hans er varðveitt á helgum stað,
bænum þú kallaðir Krist til þín
°9 kenndir mér einnig að gera það.
3