Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1976, Blaðsíða 16

Æskan - 01.04.1976, Blaðsíða 16
Prinsessan og nvkurinn inu sinni var prinsessa, sem var svo drembilát, a3 öllum var í nöp við hana. Faðir hennar sagði við hana: — Þú verður að vera þýð og nær- gætin við konungana og prinsana, sem koma hingað til að biðja þín — annars fer svo, að þú færð aldrei mann. — Ég kæri mig ekkert um að gift- ast þeim, sagði hún og sneri upp á sig, — enginn þeirra er nógu fallegur og ríkur til að giftast mér. Ég vil eignast voldugasta, ríkasta fallegasta og gáfaðasta kónginn I heiminum. — Svo best að þú finnir hann. — Eða að hann vilji þá eiga þig, andvarpaði konungurinn og fór til prinsanna, sem voru þarna staddir en voru að fara á burt, því að prins- essan hafði sýnt þeim fyrirlitningu. En nú var þarna ( prinsahópnum ungur maður, sem hvorki gat talist til þeirra fallegustu, ríkustu eða gáf- uðustu, en hann átti það sem betra var — nefnilega gott og milt hiarta og drengilegt hugarfar. Hann hafði orðið ástfanginn af prinsessunni, þrátt fyrir allt drambið í henni, og hann þráði að hann gæti komið henni til að skilja, að það væri ann- að en völd, auðæfi og fegurð, sem mestu varðaði í heiminum. Einn daginn þegar hann gekk langt út í skóg, mætti hann gamalli konu sem sagði: — Ég veit, hvað þú ert að hugsa um, ungi prins, og mig langar til að hjálpa þér. Einu sinni þegar ég var í vanda stödd, þá hjálpaðir þú mér, og það vil ég launa þér. Ég er ein af dísunum — en það sem getur hjálpað prinsessunni er líka mikið undir sjálfum þér komið. Á ég að segja þér, hvað gera þarf? Prinsinn hlustaði á gömlu konuna með mikilli athygli, og þegar hún hafði lokið máli sínu, sagði hann: — Ég vil gera þetta allt — ef það getur orðið til þess, að hjarta prins- essunar komist við og mildist. Nokkrum dögum síðar var prins- essan á gangi niður við sjó. Hún gekk alltaf spölkorn á undan hirð- meyjum sínum. En nú kom allt í einu svarta þoka allt kringum hana, svo að hún sá ekkert frá sér og missti sjónar af hirðmeyjum sínum og þær af henni. Hún varð lafhrædd og ætlaði nú að halda beint frá sjónum í von um að hitta einhverjar manneskiur, en þá rakst hún á háa sandhóla og rofabörð, sem hún gat ekki kom- ist yfir. I neyð sinni settist hún nið- ur á einn hólinn og fór að gráta. Þá heyrði hún nið og undirgang frá sjónum og sá hvar gríðarstór nykur kom upp í fjöruna. Hún varð svo hrædd að hún gat hvorki hreyft legg né lið, en nykurinn starði á hana ósköp góðlátlega og sagði: — Vertu ekki hrædd, prinsessa — ég geri engum mein. Hún róaðist dálítið við þetta og heyrði að nykurinn gat talað. Og svo spurði hún nykurinn til vegar heim í höllina hans föður sfns. — Sú leið er nú engum fær, sagði nykurinn. — Sandbakkinn er hrun- inn, svo að hvergi sést til vegar' ins. Þú verður að b'ða hérna þang* að til sjórinn hefur skolað sandin- um burt. — En ég dey úr hungri og þorsta, kveinaði prinsessan. — Ég skal færa þér allt, sem Þ1^ þarfnast, sagði nykurinn, og sV° hvarf hann á kaf í sjóinn, en eft,r dálitla stund kom hann aftur með kassa, sem var fullur af mat og drykk, og þar voru líka hlýjar á- breiður handa prinsessunni til að vefja utan um sig. — Þakka þér fyrir, góði nykuri sagði hún og klappaði honum var- lega. — Hvað hefði ég átt að gerS’ ef þú hefðir ekki komið og hiálpa® mér? Nú varð prinsessan í marga daga þarna niður við sjóinn. Nykurinn kom daglega og færði henni allÞ sem hún þurfti, og talaði sV° skemmtilega og huggandi þegar illa lá á henni, að henni þótti vaenna um hann með hverjum deginum sem leið. Einn daginn sagði nykurinn: —' Nú er vegurinn nærri því kominn upp úr, svo að eftir örfáa daga get' ur þú komist heim til föður þíns> prinsessa. — Þá verður þú að koma með mér, sagði hún áköf. — Ég mun alltaf sakna þín ef ég missi þig aft- ur því að mér þykir svo vænt um þig- — Þú færð nóg annað að hugsa um, þegar þú kemur heim, prins- essa, — þú verður fljót að gleyma Ævintýri 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.