Æskan - 01.04.1976, Page 40
Þriþraut F.R.Í. og Œskunnar
Eflaust hafið þið öll reynt að stökkva hástökk yfir
rá eða snúru og þá flest eins og stúlkan gerir á
mynd 1. Þið sjáið, að hún stekkur af vinstra fæti og
sveiflar þeim hægri snöggt fram og upp samtímis
því, að hún spyrnir vel í með stökkfætinum. Hönd-
unum lyftir hún einnig fram I uppstökkinu. Þegar
hún hefur náð svo til fullri hæð, lyftir hún stökkfæt-
inum yfir og færir um leið hægri fótinn niður.
Takið eftir, að hún vindur sig að ránni um leið
og hægri fóturinn fer yfir. Margar íþróttakonur nota
þessa stökkaðferð í hástökki með góðum árangri.
Á mynd 2 sjáið þið aðra stökkaðferð, sem talin
er betri, enda nota hana margir bestu hástökkvarar
heimsins, meðal þeirra Brumef frá Sovétríkjunum,
sem átti eitt sinn heimsmetið, 2,28 m.
Takið vel eftir hreyfingum hástökkvarans á mynd-
inni. Hann hallar sér vel aftur um leið og hann stekk-
ur upp. Hægri fóturinn sveiflast kröftuglega fram og
upp og báðar hendur einnig.
Skömmu áður en fullri hæð er náð byrjar stökkv-
arinn að draga sig saman og veltir sér yfir rána.
Hann gætir þess að lyfta hnénu á stökkfætinum vel
út svo það rekist ekki I rána á niðurleið.
Þegar þið byrjið að æfa þessa aðferð, skuluð þið
stökkva eins og drengurinn á mynd 3. Taka aðeins
stutta atrennu, lyfta hægra hné og hægri fæti í upp-
stökkinu, velta síðan yfir rána og koma niður á hægri
hlið.
Á síðustu árum hefur ný aðferð í hástökki rutt sér
mjög til rúms. Er hún kennd við Bandaríkjamanninn
Fosbury, sem sigraði á Olympíuleikunum 1968 og
notaði þá þessa aðferð. Hún er í því fólgin, að stökkv-
arinn snýr baki að ránni og kemur því niður á herö'
arnar. Enginn ætti að reyna þessa stökkaðferð nema
undir leiðsögn kennara. Og gæta þarf þess ætíð að
hafa þykka svampdýnu til að koma niður á.
Þegar þið æfið hástökk, eigið þið ávallt að byrja
á því að ,,hita upp“, eins og það er kallað, þ. e. a. s-
skokka og taka léttar leikfimiæfingar. Síðan byrji^
þið á því að æfa hástökk með aðeins þriggja skrefa
atrennu. Þá leggið þið áherslu á að fá öflugt upp'
stökk og rétt stökklag.
Síðan hækkið þið rána þannig, að hún verði 10"
15 cm neðar en þið hafið stokkið hæst áður. Þá
lengið þið atrennuna í 7 skref. Þið standið í báða
fætur við merki, sem þið gerið ykkur í hæfilegrl
fjarlægð frá uppstökksstaðnum. Ef þið stökkvið af
hægra fæti, byrjar atrennan með hægri fót fram.
annars vinstri.
Fyrstu 4 skrefin eru mjúk og ekki hröð, en síðustu
3 skrefin kraftmikil.
Gætið þess vel, að atrennan sé hæfilega löng °9
uppstökkið ekki of langt frá ránni. Mælið atrennuna
í fetum, þegar þið hafið fengið hana rétta.
HVAÐA HLJÓÐ ERU ÞETTA?
ii
ver er að kalla þarna niðri á bakkanum?"
sagði skrautlegt fiðrildi, sem sat á viðar-
grein og beið eftir kvöldkyrrðinni. Nú heyrðist það
aftur. Ú-ú-ú-ú. Fiðrildið skellti I góm. Randaflugan,
hún ætlar þó ekki að láta okkur hafa bikarana alveg
fulla af hunangi í kvöld. Vindurinn þagnaði og
fiðrildið hóf sig á loft og flaug niður á bakkann.
Nú, hér var allt fullt af hunangi. Hvaða hljóð voru
þetta I dag. Allt I einu kom randaflugan suðandi og
settist hjá fiðrildinu.
„Þú ert svo sem búin að finna það. Þú naust
þess, að ég hef átt annríkt í dag,“ sagði randa-
flugan. „Strákurinn, hann Siggi smali, kom hinga*
I morgun og stakk prikinu sínu inn í holuna, sem
ég hafði ungana mína í. Ég gat ekki annað en
hljóðað upp. Svo óttaslegin var ég.“
Fiðrildið kinkaði kolli.
Svo bætti randaflugan við: „Ég hef því haft nóg
að gera að taka allt til aftur. Þú nýtur þess líka, nð
ég hef ekki haft tíma til að safna hunanginu."
Fiðrildið leit aðeins upp og sagði með hægð: „Sá
á fund sem finnur."
„Þú ættir nú að sjá aumur á mér og skilja eitthvað
eftir handa mér,“ sagði randaflugan. Svo lyfti hún
upp eiturbroddi sínum.
Fiðrildið tautaði þá I hálfum hljóðum: „Já, já, Þa®
er svona,“ og I einu hendingskasti var það komið á
loft og flaug ánægjulega og suðandi í burtu.
Jón ati.
38