Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1980, Page 19

Æskan - 01.02.1980, Page 19
In9ia prinsessan grét og sagðist elska annan og það var Un9ur hirðmaður, svo ungur að hann gat ekki enn orðið r|ddari. Prinsinn sá að hér var nú heldur betur illt í efni. Sjálfur var prinsinn ánægður að vera laus við svörtu herklæðin og heiðursstöðuna og hann flýtti sér á 9amla veginn, leiðina til litla hússins á krossgötunum. Eins og fyrr stóðu þau bæði við gerðið, gamli maðurinn °9 fallega stúlkan. Aldrei hafði sá gamli verið svona feiður og hann sagði prinsinum það hreint út að nú fengi hann ekki fleiri herklæði hjá sér. En stúlkan virtist aldrei hafa verið ánægðari, hló og gerði að gamni sínu. 26. Allan daginn var prinsinn að tína ber af kirsu- Þerjatrjánum, og þau hlógu og gerðu að gamni sínu. Ja, Þetta var nú aldeilis munur eða að vera prins og lifa aldrei við neina ánægju og þurfa að taka þátt í öllum Þessum leiðinlegu hirðsiðum. 27. Samt sem áður fékk gamli maðurinn prinsinum hest og góð klæði morguninn eftir, og afhenti hann honum þau sjálfur og sagði við hann að skilnaði: „Farðu veginn sem liggur beint af augum.“ En stúlkan sást hvergi. 28. Prinsinn fór nú veginn, sem lá beint af augum, og ekki hafði hann farið langt, þegar hann kom að borgar- hliði. í borginni sagði fólkið honum að prinsessan hefði horfið skyndilega og enginn vissi hvar hennar væri að leita. Konungurinn hafði látið þau boð út ganga að hver sem fyndi hana fengi hana fyrir konu. 29. Þegar prinsinn heyrði þetta, varð hann lítið hrifinn, en sneri hesti sínum við og á harða spretti hélt hann til baka og fólk heyrði hann hrópa: „Nei, nú er nóg komið. Mig langar ekkert til að leita að duttlungafullri og sjáIfselskri prinsessu, sem nú er einhvers staðar að fela sig.“ Æskulýöur íslands er akurinn. ÆSKAN er sáðmaðurinn. ÆSKAN mun alltaf verða ung, ánægjuleg og fróðleg. Afgreiðsla ÆS I rS | vegi 56, sími 17336 17

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.