Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1980, Qupperneq 24

Æskan - 01.02.1980, Qupperneq 24
 Tvelr ungir námsmenn á JUNIOR-SCHOOL-ACEG. Gönguferð um nágrennið. ACEG. ciation of recognized English Lan- guage schools (ARELS) þ.e.a.s. Anglo Continental School of English í Bournemouth og í „Federation of English Language Course Organ- izations (FELCO) þ.e. Jnternational Vacation Centres" (IVC). ACEG er einnig meölimur „European Fede- ration of Schools (FE DE). Frá byrjun hafa skólarnir viður- kennt hinar ýmsu þarfir og stöðu hvers nemanda. Þannig eru allt að 26 námskeið í gangi sem taka til mis- munandi þarfa á sviði almennrar kennslu í ensku. Má þar nefna kennslu sem tekur til sérþarfa banka- manna og viðskiptahölda, og kennslu nemenda allt frá 8 ára aldri. Þrátt fyrir víðfeðmi þessara nám- skeiða kemur það fyrir að nemendur þurfa á enn sérhæfðari menntun að halda og eru þá útbúin sérstök námsefni fyrir þá. Þannig hafa verið samin námsefni fyrir ýmsar stofnanir hins opinbera, leiðandi verslunar-, iðnaðar- og menntastofnanir víðs vegar að úr heiminum. Á þessum námskeiðum hefur verið fjallað um margvísleg sérfræðileg svið — allt frá flugi til stjórnsýslu— frá flugstjórn til hótelstjórnar og frá olíuverkfræði til sérhæfðs náms á sviði lista og vís- inda. Til þess að ná árangri í kennslunni eru notuð öll þau tæki sem skólinn hefur yfir að ráða, þar á meðal kvik- myndir, vinnustofur (laboratories) sem sérstaklega eru ætlaðar fyrir tungumálakennslu, sjónvarp, upp- tökur sem unnar hafa verið í skólan- um o.s.frv. Þar að auki, ef um það er að ræða að verið sé að kenna tækni eða vísindamál þá eru fyrir hendi í skólunum sérstakar vinnustofur sem búnar eru tækjum, er snerta þjálfun í viðkomandi verkefnum. Námið fer þó ekki einungis fram í skólanum. Það er sí og æ í gangi allan daginn. Þess vegna höfum við valið flestum námsmönnum okkar vist á enskum heimilum sem sérstaklega hafa verið valin til þessa. Það auð- veldar nemandanum að tileinka sér daglegt mál og líf landsmanna. Það er mjög þýðingarmikil reynsla hverjum og einum nemanda að kynnast þann- ig fólki sem kann að byggja á annarri hefð og menntun. Gisting á heimilum veitirnemandanum einnig betra næði til heimanáms og þar að auki er starf- semi ,,ACEG welfare service" til ör- yggis fyrir nemanda meðan á dvölinni stendur, ekki síst þegar um það er að ræða að nemendur eru kannski í fyrsta skipti fjarri heimilum sínum. í þessari stofnun starfa margir með mikla og góða reynslu í að umgangast nemendur. í þessum stóra heimi villtrar sam- keppni á öllum sviðum sem við búum í, hefur ACEG viðurkennt þörfina á því að ganga til móts við óskir margra nemenda varðandi einkunnagjöf eða viðurkenningu og undirbýr því sín eigin prófverkefni og býr nemendur einnig undir að taka þátt í prófum annarra menntastofnana. Þannig er ACEG viðurkennd stofnun til að kenna ensku sem erlent tungumál og veita þeim undirbúning og próf fyrir ,,The Royal Society of Arts". En ACEG er ekki einungis nám af þessum toga — kennarar og starfslið hvetur nemendur til þátttöku í alls kyns íþróttum, leikjum og útivist og er það hluti námsins. Takmark ACEG er að veita bestu fáanlegu kennslu í ensku við bestu fáanlegar aðstæður svo að nemand- inn geti náð sem skjótustum og best- um árangri í náminu. Allir kennarar og starfsfólk starfa í þessum anda og vinna stöðugt auk þess að því að bæta grundvöllinn að náminu. Það er enginn vafi á því lengur að enska er að verða alþjóðamál og þar sem allt nám er fjárfesting þá er það áríðandi að slík fjárfesting sé gerð þar sem árangur næst bestur og á sem skemmstum tíma. BRETLANDSEYJAR: LAND MENNTUNAR OG ORLOFS 22

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.