Æskan - 01.02.1980, Blaðsíða 38
Á þessum árstíma fá
menn gjarnan þreytuverki í
fæturna, líkt og væru þeir
með vaxtarverki í liðunum.
Það er erfitt að sofna, ef
manni er illt í fótunum.
Gott er að fara í fótabað á
kvöldin og setja jafnvel
fótasalt í baðið.
Hugsaðu um fæturna,
þegar þú berð á þá krem-
Það er gott að bursta þá
rækilega og bera á þá olíu,
sem mýkir húðina. Enn-
fremur er gott fyrir þá, sem
standa daginn út og inn að
fá eitthvað, sem örvar blóð-
rásina. Hafðu hátt undir
fótunum, ef vökvi safnast í
öklaliði og liðamót.
Hvílík hvíld!
37 stiga heitt fótabað
fyrir svefninn er ágæt
hvíld. Brunaverkir, sviði
og eymsli í fótum hverfa
og manni líður betur.
Það er hægt að skipta
um fótasalt, en slíkt er
ætlað til að lina og bæta
verki í þjáðum fótum.
Það er líka gott að kaupa
olíu til að koma í veg fyrir
þurra fætur.
Notið burstann til að
nudda fæturna
Það er nauðsynlegt að
eiga góðan, harðan nagla-
burta tll að hlrða á sér
fæturna. Fyrst á að bursta
neglur og tær vel, en síðan
hælana alla og iljarnar líka.
Það er rétt að bursta vel
yfir fæturna, um leið og þelr
eru þerraðir. Snúðu tánum
frá og tll um leið og þú
þerrar þær.
Eitt strok á dag mýkir hælana
Húðin á haelnum og undir ristinni mýkist við fótabaðið, svo að auð-
velt er að strjúka hana af með pimpsteini, pórólít eða öðrum efnum.
Það myndast ekkert slgg undlr iljunum, ef strokið er daglega undan
þeim, og sokkarnir slitna ekki jafnmikið. Það á ekki að skrapa slggið af
í byrjun, því að um það sér fótsnyrtlrinn.
Kjörorðið er: ÆSKAN FYRIR ÆSKUNA
32