Æskan - 01.02.1980, Qupperneq 42
<<»»SKÁTAOPNAN« Jfr
Þegar þú velur þérföt til aðferðast í er
þýðingarmest að þau séu úr þægi-
legu og góðu efni. Ull er hið ákjósan-
legasta efni í fatnað til vetrarferða.
Ullarhárin eru fjaðrandi, jafnvel þótt
þau séu blaut en í ullinni myndast
loftrúm sem útilokar kuldann. Samt er
ullin svo opin að skipti á lofthjúpnum
geta farið fram. Betra er að vera í
tveimur þynnri peysum en einni
þykkri. Gallabuxur eru óhentugar
buxur að því leyti að þær eru lengi að
þorna svo ef þú átt buxur úr öðru efni
skaltu heldur nota þær.
AÐ GANGA A SKIÐUM
VETRARFERÐIR
Á vetraráætlunum allra skátasveita
eru nokkrar skálaferðir og þegar
þetta birtist eru þið sennilega flest
búin að fara að minnsta kosti í eina
skálaferö, en betra er seint en aldrei
og því ætla ég að koma hér á framfæri
nokkrum minnisatriðum varðandi
vetrarferðir.
Gættu þess að allur útbúnaður
þinn sé í lagi áður en þú leggur
af stað og láttu fjölskyldu þína
vita um áætlaðan komutima.
Taktu með þér nægan fatnað
og mat en þó ekki of mikið.
Ef gengið er til skálans gættu
þess þá að dragast ekki aftur úr
og ekki æða áfram í ofurkappi
því þá segir þreytan fljótar til
sín. Haltu þig við hópinn.
Gakktu vel um skálann.
Ef að þú hefur áhuga á að kynnast
skíðagönguíþróttinni og ætlar að
festa kaup á til þess gerðum útbún-
aði, þarftu fyrst að gera upp við þig
hvort þú ætlar að ganga á skíðum þér
til hressingar og gamans, eða hvort
þú ætlar að æfa skíðagöngu með
keppni í huga. Hafir þú áhuga á hinu
síðarnefnda skaltu leita til íþróttafé-
laganna eða annarra sem með slíkt
hafa að gera. En ef þú ætlar að ganga
á skíðum þér til skemmtunar skaltu
hafa eftirfarandi í huga við kaup á út-
búnaði.
Gönguskíðum er skipt í 3 flokka,
túrskíði, létt túrskíði og keppnisskíði.
Létt túrskíði eru vinsælust, enda
sameina þau styrkleika túrskíðanna
og léttleika keppnisskíðanna.
Skíðin sjáif: létt túrskíði eru 5—5,5
sm á breidd, keppnisskíði eru mjórri,
en túrskíði breiðari. Lengdina finn-
urðu með því að teygja höndina upp.
skíðin eiga að ná upp að úlnlið. Það
gerir samt ekki mikið til þó að þetta
muni nokkrum cm og ef þú ert
þung(ur) miðað við hæð, þá eiga
skfðin að vera aðeins lengri. Rifflaðir
botnar eru góðir t. d. á troðnum
brautum en vel smurð skíði eru samt
betri en skíði með riffluðum botnum.
Skórnir eiga helst að vera úr leðri
og fóðraðir að innanverðu. Þeir eiga
að vera svo víðir að þú komist í þá í
tvennum ullarsokkum. Hér á landi eru
nær eingöngu fáanlegar tábindingar
(..Rottugildrur") og er því varla um
annað að ræða en að kaupa þær.
Stafirnir eiga að ná upp í handar-
krika. Það er miklu mikilvægara að
stafirnir séu af réttri lengd heldur
en skíðin. Ef þeir eru of stuttir þá
36