Æskan - 01.05.1983, Blaðsíða 35
°ave Van Ronk.
Fjgbær blúsplata
plötuheiti: Sunday Street
^ytjandi: Dave Van Ronk
Innflytjandi: STUÐbúðin
Stjörnugjöf: ★★★★★ (af 5
^ögulegum)
þú hefur gaman af blúslögunum
^ans Bubba, þá hefur þú gaman af
Sat ég inn’á Hlemmi;
9ettu hvaö ég sá.
Þreyttar mæöur sitja
meö innkaupapoka þrjá.
Sat ég inn’á Hlemmi;
9ettu hvaö ég sá.
Krakka væla á nammi
Sem hann mátti ekki fá.
Sat ég inn’á Hlemmi;
9ettu hvað ég sá.
Sigga Pönkara syngja.
^liir flúðu frá.
Sat ég inn’á Hlemmi;
9ettu hvaö ég sá.
Undirritaða sitja
°9 horfa ykkur á.
Billie Holiday Junior
„Sunnudagsgötunni“ hans Davíðs Van
Ronks. Blúslögum hans svipar nefnilega
mjög til laga á borð við „ísbjamarblús",
„Færeyjablús" og „Segulstöðvarblús".
Líkt og Bubbi, hefur Davíð Van Ronk
sterka og hrjúfa söngrödd. Stundum
blandast hæsi inn í myndina. Þá af-
skræmir Davíð Van Ronk röddina pínu-
lítið í stíl við meistara fyiegas.
Davíð Van Ronk er líka afburða klár
gítarleikari. Hann munar ekkert um að
afgreiða einstaka lag með gítarinn
einan að vopni og sleppa þá söngnum.
Davíð Van Ronk er einnig skemmti-
legur lagasmiður þótt ekki sé hann
afkastamikill. Á „Sunnudagsgötunni"
semur hann aðeins eitt lag, titillagið.
Það er reyndar besta lag plötunnar.
Önnur lög plötunnar eru eftir Joni Mitc-
hell, Scott Joplin, Blind Blake o.fl. Allt
stórkostleg lög og hvalreki á fjörur
þeirra sem unna blústónlist.
Útlendir slagarar með íslenskum textum
Plötuheiti: Við djúkboxið
Flytjandi: Björgvin Halldórsson
Útgefandi: SG hljómplötur
Stjörnugjöf: ★ (af 5 mögulegum)
Það hefur löngum þótt góð sölufor-
múla að raula íslenska bulltexta við
gamla engilsaxneska „American
Graffity“ slagara. í því sambandi nægir
að benda á piötur Lonlí Blú Boys, HLH-
flokksins og Brimklóar. Það er heldur
engin tilviljun að forsprakki þeirra
þriggja hljómsveita sem hér eru nefnd-
ar er sá hinn sami Björgvin Halldórsson
og stendur að baki plötunnar „Við djúk-
boxið".
Einhverra hluta vegna urðu HLH-
flokkurinn og Brimkló skotspónn ný-
bylgjupopparanna sem spruttu upp í
kjölfar Bubba-æðisins. Herferðin gegn
HLH og Brimkló gekk svo langt að þær
neyddust til að hætta. Sú staðreynd er
iíklega ástæðan fyrir því að Björgvin
kýs að standa baksviðs á „Djúk-
boxinu". Hann sér að vísu um útsetn-
ingar. En hann lætur aðra sjá um söng-
inn að mestu.
Með því að dreifa söngnum á marga
er vissulega komið í veg fyrir þá
einhæfni sem stundum vill fylgja plöt-
um af þessari tegund. Annað sem
vinnst með þessu fyrirkomulagi er að
platan fellur vel inn I söluformúlu kokk-
teilplatnanna vinsælu.
Það sem háir aftur á móti
„Djúkboxinu" eru óvandaðir textar og
„flatar" útsetningar. Eitt lagið,
„Rabbabara-Rúna“, sleppur við síðar-
nefnda atriðið. Enda ber það af hvað
varðar frískleika. „Rabbabara-Rúna“
sér jafnframt til þess aö „Djúkboxið" er
besta plata Björgvins Halldórssonar í
mörg ár.
<o c
w ,E
Ifí 0)
<u .q. ;
«o
<o D):
u> *o
T3 _
C LU
OJ
> c
c
'3 O
c E
<5 2
t
O S1
X O
>
<1) i-
2 ro «o
m O) ro
c E
35