Æskan - 01.01.1986, Blaðsíða 13
A næstunni mun sjónvarpið sýna nýja
íslenska þáttaröð , Á fálkaslóðum. Þar
er um að ræða sjálfstætt framhald
myndarinnar Eftirminnileg ferð sem
sýndvar 1984. Aðalsöguhetjurnar eru
þær sömu, strákarnir Gulli og Stebbi
ásamt Hauki, frænda þeirra á miðjum
aldri. Þeir eru nú komnir á fálkaslóðir
°g finna þar hreiður. Fljótlega kynnast
þeir eftirlitsmanni og hann segir þeim
að oft séu þarna menn á höttunum
eftir eggjum og ungum. Strákarnir
verða strax ákveðnir í að vernda þetta
hreiður fyrir ræningjum.
I útvarpi heyra þeir frétt um að líkur
séu á að þekktir fálkaþjófar hafi slopp-
ið inn í landið og fylgjast því náið með
öllum ferðamönnum. Einn vekur
sérstaka eftirtekt þeirra. Hann fer
um á hjóli með trönur og liti og vill
engin orðaskipti eiga við þá. Stebbi og
Gulli gruna hann um græsku.
Eitt sinn eru strákarnir að veiðum
skammt frá hreiðrinu og verða þá varir
við „listamanninn“. Þeir fara að
hyggja að hreiðrinu og það reynist
tómt. Þeir sjá á eftir „listamanninum“
sem nú er í bifreið. Þá loks fær Haukur
trú á að strákarnir hafi rétt fyrir sér og
þeir hefja eftirför . . .
Þorsteinn Marelsson samdi handrit-
ið en Valdimar Leifsson er leikstjóri
niyndarinnar sem framleidd er af sjón-
varpinu.
Eftirminnileg ferð hefur verið sýnd
á Norðurlöndum og seld til Englands
°g írlands. Líklegt er að þættirnir Á
fálkaslóðum verði einnig sýndir víða
enda hefur enn meira verið vandað til
þeirra og vafalaust vekur efni þeirra
uthygli.
• .,'V
H Cýf/'tr i £ ;-;Vj
’ ’ J - " - " tx
; fy.; f / Á / ^ p-, im - • W, •
■ ‘‘-m ' já' '■ •
Varlega strákar, látið ekki heyrast í ykkur !
13