Æskan - 01.01.1986, Blaðsíða 42
Föndur
Þessi svifflugvél er að því leyti frá-
brugðin eldri svifflugvélum úr pappír
að hún er miklu stöðugri í loftinu.
Teikningin, sem ég sýni ykkur núna,
er nefnilega svonefnd tvíþekja, - þ.e.
hún hefur tvenna vængi hvora upp af
öðrum. Ef þið eruð sæmilega laghent
getið þið á skömmum tíma búið til
heilan flota af svona vélum. Lítið bara
á teikninguna! Á stíft pappaspjald,
sem er brotið saman í miðju, teiknið
þið tvær myndir eins og þið sjáið efst á
teikningunni. Þið getið búið svif-
fluguna til í hvaða stærð sem þið óskið
en munið að því stærri sem þið gerið
hana þeim mun sterkari verður pappír-
inn í henni að vera. Svo klippið þið
mynd 1 og mynd 2 út úr pappaspjald-
inu (tvöfalda.) Mynd 1 er sjálf flugvél-
in og mynd 2 er neðri þekjan. Límið
nú skrokkinn saman og beygið væng-
ina og stýrið lárétt út eins og sýnt er á
teikningunni. Línan undir efri þekj-
unni er skorin út og neðri þekjan
(mynd 2) er fest í rifuna með lími.
Búið svo til tvo smáprjóna úr spýtu og
setjið þá sem stífur milli þekjanna eða
vængjanna, gerið ofurlítil göt á væng-
Svifflugvél
ina og límið stífurnar í þau eins og sýnt
er á mynd 3. Reynið svo að láta vélina
svífa dálítinn spöl í loftinu. En ef það
kemur í ljós að vélin sé of afturþung
stingið þið einum eða tveimur títu-
prjónum í nefið á henni. Ef hún hins
vegar er of framþung festið þið papp-
írsklemmu í stélið á vélinni.
Sprelli
karl
Þennan skemmtilega sprellikarl getur
þú auðveldlega búið til á eftirfarandi
hátt: Stækkaðu fyrst fyrirmyndina á
rúðupappírnum og notaðu rúðurnar
þér til hjálpar. Rúðurnar eiga að vera
2x2 sm. Þegar þú hefur lokið við að
stækka fyrirmyndina dregur þú mynd-
irnar upp á pappa. Teiknaðu búk með
höfði, tvo handleggi og tvo fætur.
Klipptu svo hlutana út og litaðu þá.
Mundu að hafa hægri og vinstri hönd
ekki eins á litinn og heldur ekki
fæturna.
Búkur, hendur og fætur eru nú sett
saman með seglgarnsspottum sem þú
bindur hnúta á. Svo gerir þú stórar
lykkjur eins og sýnt er á myndinni.
Þegar þú togar í þær ... Já, þá hvað?
Góða skemmtun!
42