Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1986, Qupperneq 22

Æskan - 01.01.1986, Qupperneq 22
\tmth Hún amma mín er furðuleg per- sóna. Hún brosir að öllu. Hlær að öllu. Hún er ekki að gera grín. Það er bara eins og henni finnist allt svo skemmti- legt. Þegar hún kemur á morgnana og veðrið er gott segir hún: „Þetta er nú meiri dýrðar blíðan," og ljómar öll. Ef veðrið er hins vegar leiðinlegt er hún vís með að segja: „Árans hryssingur er þetta, en það verður sjálfsagt betra á morgun,“ og brosir. Eins og okkur verði nokkuð hlýrra í 10 stiga frostinu í dag þó að frostlaust verði á morgun. í gær þegar ég kom heim úr skól- anum í rigningunni til að borða hafði einhver fábjáninn ekið framhjá á skellinöðru. Hann gat auðvitað ekki ekið á malbikinu. Hann rótaðist í veg- brúninni og sletturnar gengu í allar áttir. Það var ekki sjón að sjá nýju, hvítu buxurnar mínar. Eg varð bál- reið. Það er ekki á hverjum degi sem maður kemur í nýjum buxum í skólann. Og stelpurnar höfðu orðið grænar af öfund. Þegar ég var búin að óskapast yfir þessu og nota mörg væg- ast sagt vafasöm orð þá sagði amma: „Blessuð vertu, heldurðu að það sé ekki hægt að þvo buxurnar? Skiptu bara.“ Ég verð að segja að ég varð hálfgröm við ömmu í það skipti. Það vildi nefnilega svo til að ég átti engar hreinar buxur nema svo ferlega ljótar að engin 14 ára stelpa getur látið sjá sig í þeim. En ef amma hefði orðið reið og sagt til dæmis: „Þér var nær að vera að asnast í hvít- um buxum út í þetta veður.“ Ja, þá veit ég ekki hvað hefði gerst. Kannski hefði ég farið að orga af reiði. Ég spurði ömmu einu sinni af hverju hún væri alltaf í svona góðu skapi. „O, maður lærir af lífinu.“ Það finnst mér skrítið. Ég veit nefni- lega að í lífi hennar hafa svo hræðilegir atburðir orðið að ég þori ekki einu sinni að hugsa um þá, hvað þá skrifa. Ég veit ekki hvort ég get lært af lífinu eins og amma. Ég hef víst nóg með það sem þarf að læra í skólanum. En ég vona samt að ég geti lært af ömmu Smásaga eftir Sigrunu að vera alltaf í góðu skapi. Og ég er fegin að hún passar okkur á meðan mamma er að vinna. Annars hefði ég aldrei kynnst henni og góða skapinu hennar. Það var til dæmis í sumar þegar amma ætlaði í sólarlandaferð. Hún hlakkaði rosalega mikið til. Hún hafði átt stórafmæli og börnin hennar ætl- uðu að gefa henni ferðina í afmælis- gjöf. Börnin hennar, það eru pabbi minn og systkyni hans. Mér finnst hálf- hallærislegt að kalla þau börn því að pabbi er orðin dálítið gamall. En amma kallar þau krakkana sína. Það er nú ennþá verra. Jæja. Þau ætluðu sem sé að gefa ömmu þessa ferð. Hún ákvað að reyna að fá frænku sína með sér. Það er lítið gaman að fara í stórum hópi og þekkja engan. Það skildi ég vel. En þá var frænkan lasin og treysti sér ekki á sólarströnd. Amma tók þessu með jafnaðargeði. „Jæja, þá fer ég bara til Porto Rose,“'sagði hún. „Ég hef komið þangað áður.“ Og hún hringdi í ferða- skrifstofu og pantaði far. Þetta var í apríl. Ég man að ég var komin í páska- frí. „Ja, nú fór illa fyrir mér,“ sagði hún þegar hún kom úr símanum. „Allt upppantað.“ Og svo hló hún eins og þetta væri fyndið. Ég hefði orðið grautfúl. „Hvað gerirðu þá?“ spurði ég. „Þá reyni ég bara annars staðar,“ sagði hún. Svo var farið að rýna í bæklinga og auglýsingar. Þar fann hún ferð sem henni leist vel á. Það var til Rimini. Hún sagði að það væri á Ítalíu. Það var æðislega spennandi að hugsa til þess að amma færi til Ítalíu. Þar er Róm og skakki turninn, þið vitið. En þegar til kom var ekki laust far til Rimini nema í júlí. 22

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.