Æskan - 01.07.1986, Page 8
s a2j^9"ússo"
tæknimaður bera
saman
Flestir kannast við þróttmikla og
glaðlega röddhans, — langtum
fœrriþekkja hann ísjón. Hann
segir að það sé kostur við út-
varpið að menn geti skýlt andliti
sínu og þess vegna mœtt órakað-
ir og syfjulegir í útsendingu. Svo
er hann líkafeginn því að geta
farið inn á dansstaði án þess að
fólk abbist upp á hann eins og
algengt er með þekkta sjónvarps-
menn. í útvarpinu verða radd-
irnar þekktar en andlitið í sjón-
varpinu.
Þessi útvarpsmaður heitir Gunn-
laugur Helgason og er umsjónarmaður
Vinsældalista hlustenda Rásar 2 á
sunnudögum og einn af stjórnendum
Morgunútvarpsins. Hann erhúsasmið-
ur að mennt en lagði frá sér hamarinn
fyrir tveim árum og tók sér hljóðnema
í hönd í staðinn. Svo miklu ástfóstri
hefur hann tekið við Útvarpið að hann
getur ekki hugsað sér að starfa við
neitt annað næstu árin.
Æskunni fannst orðið tímabært að
kynna lesendum sínum þennan ágæta
og léttlynda útvarpsmann sem svo
margir hafa heyrt í en vita lítið sem
ekkert meira um.
Þrjú sumur í Skollundi
Við byrjum á byrjuninni, fáum
Gunnlaug til að segja okkur lítillega
frá bernsku sinni. Hann fæddist í
Reykjavík 26. ágúst 1963 og er því 23
ára. Hann átti heima í Skotlandi í þrjú
sumur en þá var hann á aldrinum 10-
13 ára. Faðir hans rak þar útibú frá
fyrirtæki sínu, Stáliðjunni. Fjöl-
skyldan átti heima í litlum bæ nálægt
Glasgow.
„Þetta voru skemmtileg sumur,“
segir Gunnlaugur þegar hann rifjar
þau upp. „Ég kynntist mörgum
krökkum og við hjóluðum mikið sam-
an. Skotarnir hafa það umfram okkur
íslendinga að þeir hugsa fyrir hjól-
reiðabrautum þegar þeir leggja nýja
vegi. Hjólreiðamenn þurfa að komast
leiðar sinnar eins og bílstjórarnir. -
Þarna varð ég áþreifanlega var við
þorskastríðið. Það kom fyrir að fólk
hnýtti í mig, bæði börn og fullorðnir,
þegar það vissi að ég var íslendingur.
Á þessum árum óraði Gunnlaug
ekki fyrir því að hann ætti eftir að
verða útvarpsmaður. Aftur á móti
fékk hann snemma áhuga á því að
verða tónlistarmaður. Sá draumur
rættist í 8. bekk í Réttarholtsskóla. Þar
stofnaði hann hljómsveit ásamt Björk
Guðmundsdóttur og fleirum. Hún
Draumsýn.
„Björk lék á þverflautu og söng einS
og engill,“ heldur Gunnlaugur áfralT1
og brosir. Sjálfur lék hann á tronnnur'
„Þessi hljómsveit var starfandi í tv°
vetur. Hún lék djass-rokkmúsík f>'rn
krakkana í skólanum og ég held a
þeir hafi kunnað vel að meta hana-
Við fórum meira að segja inn í ÚljoC
rita og tókum upp nokkur lög ei 1
okkur sjálf. Við nutum þar einstakra^
velvildar Jónasar R. Jónssonar, eins
eigendum Hljóðrita. Það hvarfl3 ^
aldrei að okkur að gefa lögin út á pj°
enda fór það svo að upptökurnar týn°
ust. Hljómsveitin lagði svo UPP
laupana þegar við lukum 9. bekk-
fórum við hvert í sína áttina, ég i1
skólann, aðrir í menntaskóla og ver ,
unarskóla. Björk hélt áfram að vera
hljómsveitum eins og alkunna er, ann
ar Draumsýnarmaður, Einar Sigur ,
son, er núna læra á kontrabassa í ^in
Austurríki og sá þriðji, Eyjólfur
freðsson, er fiðluleikari.
Ég gekk ekki í fleiri hljómsveitir e^
engu að síður hélt ég áfram að ve ‘
viðloðandi þær næstu árin. Fljótleg
eftir að Draumsýn leystist upp gerðl
Viðtal: Eðvarð Ingólfssoú
8