Æskan - 01.07.1986, Side 10
sagt að ég hætti á Útvarpinu þegar ég
finn ekki lengur fyrir þessum fiðringi.“
— Hvernig gengur að hafa upp á
fólki í viðtöl?
„Það gengur misjafnlega vel. Svo
bætir ekki úr skák að sumum er hrein-
lega illa við að tala í útvarp. Það hefur
oft komið fyrir hjá okkur að fólk hefur
ekki mætt í viðtal. Það er fremur
neyðarlegt. Við höfum þá gert ráð
fyrir viðtali í handriti og orðið að
bjarga okkur úr klípunni með því að
leika lag í stað viðtalsins. Maður verð-
ur oft var við að fólk hræðist beina
útsendingu og óttast að það segi ein-
hverja vitleysu sem ekki verður auð-
veldlega leiðrétt. Einu sinni rauk mað-
ur út úr talstofunni rétt áður en viðtal
átti að hefjast og kastaði upp. Hann
kom svo nokkrum vikum seinna og
stóð sig þá eins og hetja. Það er ekki
óalgengt að fólk spyrji okkur að loknu
viðtali hvað það hafi sagt. Þá var það
svo spennt að það heyrði ekki í sjálfu
sér.“
Stundum kemur ýmislegt spaugilegt
fyrir hjá okkur. í sumar fengum við til
dæmis óstöðvandi hláturskast í talstof-
unni - og urðum að leika þrjú lög í
röð án kynningar því að við gátum
ekki talað. Við vorum að segja hvert
öðru á milli laga frá fyndnum atvikum
úr gamanmyndunt og þannig byrjaði
óstöðvandi hláturinn. Kristján Sigur-
jónsson birtist svo í talstofu og sagði
við hlustendur: Hér er allt orðið vit-
laust! og lýsti því sem var að gerast í
kringum hann. Hann kom
stemmningunni til skila. Þannig á lif-
andi útvarp líka að vera!
— Hvaða hæfileikum þarf góður út-
varpsmaður að vera gæddur?
„Hann þarf að vera opinn fyrir nýj-
ungum og víðsýnn, skýrmæltur og
fljótur að hugsa. Útvarpsmenn þurfa
að hafa þannig málróm að persónu-
leiki þeirri skíni í gegn. Því er ekki að
neita að sumir eru betur til þess fallnir
að tala í útvarp en aðrir. Ágætt er líka
að þeir geti talað skammlausa íslensku
og gæti sín á þágufallssýkinni.“
- Hvað heillar þig mest í starfinu?
„Ég fæ ákveðna útrás fyrir egóið.
Svo hef ég mjög mikinn áhuga á tónlist
og fjölmiðlum yfirleitt.“
Ljóshærðar og lífsglaðar!
- Mig langar til að fara út í fleiri
sálma og jafnvel að vera ágengur. Ertu
lofaður?
Gunnlaugur brosir út í annað: „Nei,
ekki ennþá.“
- Ertu enn í foreldrahúsum?
„Ég er svona með annan fótinn þar
á meðan ég er að leita mér að leigu-
íbúð.“
Gunnlaugur kveðst hafa búið í lítilli
íbúð fyrr í sumar en svo rann leigu-
samningurinn út. Ef einhver veit um
leiguhúsnæði handa honum væri tilval-
ið að hafa samband við hann. Við
spyrjum hann næst hvort hann hafi
einhvern tíma átt sér draumaprins-
essu.
„Já, ég átti eina á unglingsárunum,“
svarar hann. „Hún var ljóshærð með
sítt hár, hress og lífsglöð. Ég legg ein-
mitt mikið upp úr því að stelpur séu
lífsglaðar. Svo vil ég að þær séu svo-
lítið frekar, - hafi skap. Þær mega
samt ekki vera einstrengingslegar. Þær
mega vera í öllum stjörnumerkjum
nema sporðdrekanum. Ég þekki marg-
ar sporðdrekastelpur sem eru æðislega
frekar og ósanngjarnar. Svo mega
prinsessurnar mínar gjarnan vera róm-
antískar og hlýlegar.“
- Þú ert bara með þetta allt á
hreinu! Ertu sjálfur rómantískur?
„Já, ég get ekki neitað því.“
— Manstu hvað þú varst gamall
þegar þú byrjaðir á föstu?
„Já, ég var 13 ára. Þá átti ég góða
vinkonu í Breiðholtinu. Við fórurn
mjög oft saman í bíó. Maður átti bio
kærustur á þessum árum.“
Tek mig ekki alvariega
- Ertu vinmargur?
„Já, en ég hef ekki getað rækt vin-
áttuna sem skyldi eftir að ég byrjaði a
Útvarpinu. Starfið tekur svo mik!nn
tíma og er orkufrekt. Ég hef orðið var
við það hjá gömlum skólafélögum 3
þeir eru oft í vafa um hvort þeir eigi n
heilsa mér eða ekki. Þeir hal a
kannski að ég sé orðinn svo meÁ1
legur með mig að ég taki ekki un >r
kveðjuna. Það er mikill misskilningur'
Ég vona að ég sé sami Gulli og ég var
áður en útvarpsstörfin komu til s°§
unnar.“
- Áttu þér einhverja lífsstefnu-
„Já, að taka mig ekki mjög alvar
lega. Ég reyni alltaf að líta á björtu
hliðarnar á lífinu.“ ....
— Áttu önnur áhugamál en fj°
miðlun?
„Já, ég hef mikinn áhuga á íþrótt
um. Ég stunda þrjár íþróttagreinar'
Seglbrettasiglingar, veggjatennis °-
skíðaferðir. Þegar ég var unglingur var
ég í fimleikum.“
— Áttu systkini?
„Ég á þrjár systur en er eini strákur^
inn og er yngstur. Þær eru mjög g°°
vinir mínir."
Við spyrjum Gunnlaug hvort hann
sé yfirleitt sammála röðun laga á v,n
sældalista Rásar 2.
„Nei, ekki alltaf," svarar hann-
„Stundum verð ég spældur þegar
sem ég hef trú á komast ekki upP
listann.“ ^
— Algeng lokaspurning: Hvað e
framundan hjá þér?
„Ég verð með Vinsældalistann eú
hvað áfram, að minnsta kosti til n£st^
áramóta. Þá er ætlunin að halda tn Þ
Angeles í fjölmiðlanám. Ég ,
dveljast þar í 3 mánuði og kynna me
bandaríska útvarpsþáttagerð. fj
miðlarnir hafa sem sé alveg herte
mig. Ég hef það á tilfinningunni a
hamarinn fái að bíða drjúgan tíma e
ir mér,“ segir Gunnlaugur Helgas°n^
hinn eldhressi og vinsæli dagskrárger
armaður á Rás 2.
10