Æskan - 01.07.1986, Síða 13
mur í heiminn
Fæða úti í skógi
er misjafnt eftir menningar-
Svæðum í hvaða stellingu kona fæðir
^arn sitt. Meðal frumstæðra þjóða er
algengt að hún fæði annað hvort stand-
andi, og jafnvel haldi sér í trjágrein úti
1 skógi á meðan, eða sitji á hækjum
Ser- Þar eru engar ljósmæður og konan
njálpar sér sjálf. Önnur aðferð við að
feða barn er þegar konan situr í kjöltu
annars manns, t.d. mannsins síns eða
sterkrar yfirsetukonu. Þessi aðferð var
kunn á Norðurlöndum hér áður. Fyrr
a h'mum fæddu margar konur í sér-
stökum legustól en hann var ekki
kegilegur og lagðist af. Algengasta
feðingastellingin í Evrópu nú á tímum
er að konan liggur á bakinu og rís upp
hálfs þegar fæðingahríðirnar koma.
annig er það hérlendis. Mjög algengt
er að pabbarnir séu við fæðingu barna
sinna.
Möguleikar banisins
Ef þið hafið eignast lítið systkini þá
hafið þið eflaust oft og mörgum sinn-
Uln velt fyrir ykkur getu þess. Heyrir
Það inni í mömmu? Sér það jafnvel og
V[ð þegar það er nýfætt o.s.frv.? Hér á
eftir getið þið kynnt ykkur nokkrar
staðreyndir um ungbörn:
Barnið á myndinni er aðeins nokkurra mínútna gamalt. Til að sjá hvað það vegur (hvað það er
margar merkur) er það látið á þessa vigt á Fæðingarheimili Reykjavíkur.
I móðurkviði
Barn þarf hvorki að anda né melta
fæðu í móðurkviði eins og fram kom í
upphafi þessarar greinar. Líkami móð-
urinnar sér um að annast það. Það fær
næringu, súrefni og losnar við úrgang í
gegnum líkama móður sinnar, auk
þess sem líkami hennar veitir því
vernd og hlýju. Það getur skynjað
hljóð og hreyfingar að takmörkuðu
leyti. En þegar barnið er fætt verður
það að sjá um sig sjálft, sjúga og
kyngja fæðu og losa sig við úrgangs-
efni.
Heyrrt og hljóðmyndun
Börn heyra alveg frá fæðingu og
jafnvel fyrr eins og fram kom hér að
ofan. Eina hljóðið, sem þau geta
myndað fyrstu vikurnar er grátur. Þau
fæðast eins og óskrifað blað með
ákveðna möguleika til að halda áfram
að læra í heiminum. Nokkurra mán-
aða geta þau bablað og síðan þróast
málið smátt og smátt.
Lykt og bragð
Nýburar hafa bragðskyn og talið er að
þeir hafi lyktarskyn líka vegna þess
hve nátengt það er.
Sjón
Ungbörn geta séð skýrt frá fæðingu.
Sjónsvið þeirra er þó mjög þröngt og
þau sjá best í 20-25 sm fjarlægð. Hluti
sem eru lengra í burtu sjá þau mjög
óskýrt. Nýburar hafa mestan áhuga á
að horfa á andlit. Sá áhugi er þeim
eðlislægur, einnig að þykja gaman að
hlusta á mannamál.
Fyrstu vikurnar
Nýfædd börn skynja sig ekki sem
einstaklinga. Til dæmis vita þau ekki
að puttarnir, sem þau sjúga, eru þeirra
eigin; vitneskjan um það kemur með
tímanum. Öll skilningarvitin fimm eru
virk frá fæðingu. Það sem barnið vant-
ar einkum er reynslan af því að þekkja
fólk og umhverfi sitt og safna með því
vitneskju um heiminn. Með aukinni
reynslu kemur þroskinn; þau verða
hæfari til að bjarga sér. Lítil börn hafa
mikinn áhuga á öllu í kringum sig. Þau
horfa, hlusta, snerta, lykta og finna
bragð. Og þegar fram líða stundir geta
þau farið að setja hlutina í samhengi
og skilja til hvers þeir eru. En það er
vissulega ekki hægt að fullyrða ná-
kvæmlega um það hvað nýburar
skynja og finna þar sem þeir geta ekki
sagt frá því.