Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1986, Page 34

Æskan - 01.07.1986, Page 34
Ævintýraferð til Lúx Lírukassalcikari Morguninn eftir vöknuðum við snemma, fórum niður og fengum okk- ur góðan morgunverð. Ekki veitti okk- ur af orkunni því langur dagur var framundan. Að þessu sinni reyndum við hinn veitingastaðinn á hótelinu. Er við höfðum lokið við morgunverðinn fórum við af stað niður í bæ og hugð- umst fara í sérstaka búð, sem okkur hafði verið sagt frá, en villtumst og keyrðum í nokkra hringi. Alltaf virt- umst við lenda á einstefnugötum. Við hlógum mikið og höfðum bara gaman af þessu óvænta ævintýri; sáum eflaust meira af Lúxemborg fyrir bragðið. Við gáfumst upp á því að leita að búðinni og fórum í aðal-verslunargötuna. Þar sáum við gamlan lírukassaleikara, al- veg eins og í ævintýrunum, með liíundi apa á öxlinni. Hann spilaði á lírukass- ann og apinn, sem var klæddur í kjól, gæddi sér á epli. Við horfðum á og hlustuðum um stund og gáfum þeim Lírukasaleikarinn hætti að spila stutta stund og stillti sér upp fyrir okkur. nokkra smápeninga að skilnaði. Þetta var skemmtileg bæjarferð, enda veðr- ið með eindæmum gott, sól og blíða. Eftir hádegið lögðum við af stað í ferðalag. Ferðinni var heitið til Viand- en, en þar er frægur kastali frá miðöld- um. Við ókum í gegnum marga fallega smábæi og þorp, eins og t.d. Etel- bryggju og Dýjakirkju. Einnig var þar mikið um skóglendi og þótti okkur íslendingunum mikið til þess koma. Stundum ókum við í margar mínútur í trjágöngum og sáum aðeins glitta í himininn annað slagið. Þarna var tölu- vert um dádýr og við vegina stóðu skilti þar sem varað var við því að dýrin hlypu út á veginn. Ævintýrakastali Er við nálguðumst Vianden birtist kastalinn okkur skyndilega þar sem hann stendur á skógivaxinni hæð og lítið þorp fyrir neðan. Við gengum upp nokkuð bratta brekku að kastal- anum og fórum inn. í einum af sölun- um eru þrjú líkön af honum. Hið elsta er síðan 1643 þegar þar var allt í blóma og húsakostur upp á sitt besta. Annað líkanið sýnir hvernig kastalinn ^ar fyrir nokkrum árum eða þegar yfirv0 í Lúxemborg tóku við honum og h°ru að lagfæra hann og endurnýja. ÞnðJa líkanið sýnir síðan kastalann eins og hann er nú eftir miklar viðgerðir og endurnýjun. Árið 1871 kom franska skáldið Victor Hugo til Vianden og dvaldist þar í útlegð. Hann mun Pa hafa sagt að allur heimurinn ætti etti að koma til Vianden og skoða kasta^ ann og þorpið. Sú spá hans er óðum a rætast því að staðurinn er afar fjölsót ur og vinsæll meðal ferðamanna. '1 gengum um kastalann og skoðuðum sali, kapellu, fjöldamörg herbergn gömul eldstæði og borðstofu þar senj var gamalt langborð og stólar asa fleiri gömlum húsgögnum. Þar var h mynd af greifa sem þarna hafði fí ■ Við gengum upp gamla stiga sem o ur virtust að hruni komnir, skoðuðu hesthúsin og vínkjallarann. I storu sal hafði dúfa komið sér fyrif ufP' undir þaki. Hún hafði þó ekki mikiu frið fyrir ferðamönnum en lét sér a^ um þá finnast. Á kastalanum voru ^ sjálfsögðu turnar, eins og á öllum 1 vöru kastölum, og fjöldi útskota 0 svala þar sem hafa eflaust verið var Hér sést kastalinn í Vianden gnæfa yfir litla þorpið.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.