Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1987, Blaðsíða 38

Æskan - 01.02.1987, Blaðsíða 38
POPP um fór fram og náöi þess vegna ár- angri. Aðrir þóttu ekki merkilegir af því aö þeir þroskuöust ekki. Þeir fengu ekki stuðning og dóu þegar pönkiö fór úr tísku." Hermann: „Nýju fjölmiölarnir hafa líka haft vond áhrif. Músíkhólfiö í Stöð 2 gefur fólki brenglaða mynd af hljóm- list. Það hættir aö fara á tónleika af því að þar eru ekki reyksýningar og alls konar ófreskjur dettandi niöur úr loft- inu. Nýju útvarpsrásirnar hafa líka dregiö úr áhuga fólks á plötum. Núna getur fólk bara opnað útvarpiö þegar það langar til að heyra músík en áður setti þaö plötur á fóninn." Davíð: „En þaö er ákveðinn hópur sem útvarpið sinnir ekki. Sá hópur heldur áfram að kaupa plötur. En venjulegt fólk missir tengsl við plöturn- ar. Það kynnist aðeins einu lagi, „fron- laginn", á hverri plötu. Annars ættum við ekki að kvarta undan útvarpinu. Það hefur reynst okkur vel. Við kom- umst meira að segja inn á vinsælda- lista Bylgjunnar og Rásar 2. Án þess að hringja! Við náðum upp í 18. sæti vinsældalista Rásar 2 án þess að gera nokkuð til þess." Það eru ekki aðeins poppútvarps- rásirnar sem taka Rauðum flötum vel. Viðtal okkar við þessa efnilegustu ný- liðasveit rokksins fær skjótari endi en ætlað var því að starfsmenn Ríkissjón- varpsins koma skyndilega á vettvang. Erindið er að semja við Rauða fleti um að koma fram í þættinum „Rokkarnir geta ekki þagnað". Það er ekki heldur ástæða til að tefja athafnapiltana ungu um of. Þeirra bíður enn frekari frami á næstu vikum ef allt gengur samkvæmt áætlun. „Við erum að vinna að annarri plötu," segir Davíð. „Við tökum upp undirbúningsband („demó") fyrir hana í byrjun mánaðarins. Við leggj- um miklu meiri vinnu í hana en „Ljóna- skógana". Við höldum áfram á sömu braut en vonumst til að taka framför- um og breytast eðlilega. Svo erum við að spila á mörgum tónleikum. Þeir eru alltaf vel sóttir og borga sig vel. Og það á eftir að gerast eitthvað mikið í tónleikamálunum þó að ekki sé hægt að tala um það núna. Við erum alveg önnum kafnir." Mark Knopler gítarleikari Dire Straits að mest seldi geisladiskurinn (CD) í Bretlandi 1986 var Vopnabræður („Brothers in Arms") með Dire Straits. Sama verk og sami flytj- andi voru skráð fyrir næst sölu- hæsta myndbandinu þar í landi í fyrra. Efst var aftur á móti mynd- bandið „AJchemy Live" með Dire Straits. að mest seldu smáskífur breska báru- járnslistans 1986 voru „The Final Countdown" með Evrópu, „You Give Love A Bad Name" með Bon Jovi og „In The Army Now" með Status Quo. Hilmari Erni Hilmarssyni oð Psychic TV. að í apríl kemur á markað fyrsti geisla' diskurinn (CD) sem er einungis ætlaður íslenskum markaði. Þar er um að ræða endurbætta útgáfu sí plötunni „Frelsi til sölu" með Bubba Morthens. Á disknum verða m.a. 4 lög sem ekki eru á vinylplötunni. Af íslenska rokk- kóngnum er það einnig að frétta eö hann hefur sungið inn á band gömlu íslensku lögin „Ég bið að heilsa" eftir Inga T. og „ísland ögrum skorið" eftir Sigvald3 Kaldalóns. Þessi lög koma út á plötu sem gefin verður út í tengsl- um við íslandskvikmynd Önnu Björnsdóttur fyrirsætu og leik- konu („Með allt á hreinu" og „Amer- ican Graffitty II"). að vinsældakosningar segja aðeins hálfa sögu um eiginlegan músík- smekk kjósenda. Hlustendur BylgJ' unnar vörpuðu nýlega Ijósi á hinn helming sögunnar þegar þeir kusu leiðinlegustu lög ársins. Úrslitin urðu þessi : Nr. 1 : „Gleðibankinn" - nr. 2 : „Mos- kvo, Moskvo" - nr. 3 : „Þrisvar i viku". að samkvæmt óháða vinsældalistan- um voru eftirtaldir aðiljar þeir sölu- hæstu á breska smáskífumarkaðn- um í fyrra : Nr. 1 New Order - 2 Smiths - 3 Housemartins - 4 Mission - 5 Billy Bragg Smiths og Housmartins voru í sömu sætum á skrá yfir söluhæstu breiðskífur á óháða markaðnum. Þar var hljómsveitin Half Man Biscuit á toppnum með plötuna „Back in The DHSS". að áttunda söluhæsta smáskífan á ^ __ óháða markaðnum breska í fyrra Bi||j Bragg Vinsæiii söngvari en natni nans. var „Godstar" með Islendingnum idoi. 38 ÍRÁ LESEXDUM Blóm ^að er auðvelt að gabba blessuð blóm- jn • Tegundir sem vaxa villtar í Ástra- 1U’ Flórída og Kína eru plataðar af §arðhúsaeigendum og blóma-áhuga- JUönnum til að vaxa í gróður- og garð- úsum hér á íslandi við 30—40 stiga ■ta og í útfjólubláu ljósi sem gerir alla hvíta fleti sjálflýsandi. J^eir sem eiga ekki garðhús setja ömin út í glugga og flytja þau til eftir þ 1 nvernig sólin færist á himninum. e'r setja upp blómaljós og blóma- e|<ki, kaupa rakamæla og rakatæki og reyna eftir bestu getu að halda lífi í u °ntunum. Sumar deyja samt og þá ^ru keypt önnur blóm og stundum eyjaþau líka. Pólk gerist félagar í blómaklúbbum, aupir blómabækur og meira að segja r$ sem í rauninni er ekki hægt að °nia til nema í Perú eða Brasilíu. Margar mömmur hafa óhemju ^uuga á blómarækt og þegar þær byrja tala um blóm er ekki hægt að ná sambandi við þær. Þær kaupa sjálf- vökvandi potta og ráðast að pöddum með eitri eða dýfa pottinum niður í grænsápuvatn. Sum blóm þurfa að standa í vatni og þá láta mömmurnar okkur krakkana hella 5 -10 lítrum af vatni í pottinn. Sum blóm má ekki vökva of mikið en önnur ekki of lítið svo að það er vandasamt fyrir börn að annast þann starfa. Að sjálfsögðu mega ýmis dýr alls ekki komast að blómunum því að þau eru vís til þess að narta í þau eða háma í sig og þá fer öll umönnun fyrir lítið. Sumir eiga aðeins fáein blóm. Það finnst mér notalegt og hæfilegt. Aðrir eiga þau ósköp að það væri nóg fyrir nokkrar blómabúðir. Mér finnst það einum um of. Flestir hafa yndi af blómum og vilja eiga nokkrar tegundir — én þeir sem mestan áhuga hafa safna að sér blóm- um frá ótrúlegustu stöðum og vita ekki einu sinni nöfnin á þeim öllum. Þetta er nú orðið nokkuð langt enda er ekki hægt að lýsa blómum og blóma-áhugamönnum í örfáum orðum eins og knattspyrnu. (Knattspyrna : Nokkrir menn í mismunandi búning- um hlaupa á eftir svarthvítri tuðru !) En hér er rétt að hætta því að ég þekki áhugafólk um blómaræktun sem gæti móðgast og jafnvel hent mér út... Elín Vignisdóttir 12 ára, Efstasundi 81, Reykjavík. ennan laugardagsmorgun var helli- r,8ning. Regnið lamdi rúðurnar. ’Æ, æ, enginn fótbolti í dag,“ stundi °mmi. Hann hafði hlakkað mikið 1 að fara út á völl. Þegar hann var búinn að borða 0rgunmatinn tók hann upp litakass- nn sem amma hans hafði gefið h°num. ’.Mamma, hvað á ég að teikna?“ ^ún kom og leit á litina í kassanum. En hvað þetta eru fallegir litir. Þú Tommi teiknar Hver er sá veggur víður og hár veglega settur röndum, gulur, rauður, grænn og blár, gerður af meistara höndum. Brynja Rafnsdóttir 10 ára, Hjöllum 9, Patreksfirði. skait leikna regnboga og lita hann. Köttur og refiir Kisa sefur, kisa heyrir í ref með stórt og forljótt nef. Refurinn kemur og segir : „Hvað ertu að gera, leppurinn þinn?“ „E‘r að kúra , vinur minn“ „Til hvers, kisinn þinn ?“ „Ég nenni ekki að veiða, leiðindagaurinn þinn.“ Hjöllum 9, Patreksfirði. ------------------------ etta var góð hugmynd. Tommi ,lssi hvernig regnboginn er litur því að “ahn kunni vísuna :" Voðaleg nom Ein stór og voðaleg norn átti grænan dreka með silfurhorn. Nornin átti stóra skessu. Nornin hélt oft hátíðamessu. En þetta var bara draumur og ég get aldrei sagt frá því. Þetta kom frá blámanum og fer aftur upp í ský. Sólveig Kaldalóns 9 ára. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.