Æskan - 01.02.1987, Blaðsíða 5
Kfistín Björk, Nanna og Birta.
Akveðnar í að halda áfram
egar æfingu lauk tókum við þrjár
?te*PUr tali. Þær voru Kristín Björk
°rvaldsdóttir 11 ára, Nanna Magnús-
ottir 12 ára og Birta Björnsdóttir 9
3ra' ^*rta er með undanþágu til að æfa
U'oð þessum aldurshópi þar sem hún
Pykir svo efnilegur dansari. Hún hefur
ært djassballett í eitt og hálft ár. Áður
e.n ^ún byrjaði á því æfði hún í 2 ár
'uileika með Gerplu. Hún fékk liða-
8'gt og varð að hætta því. Nanna hefur
æ 1 djassballett jafnlengi og Birta en
fistín Björk byrjaði í fyrrahaust.
”^að er alveg frábært að læra djass-
ballett
og við ætlum að halda því
afram,” sögðu stelpurnar þegar þær
y°ru inntar álits á því og áhuginn
leyndi sér ekki í svip þeirra.
,. n hver var aðdragandi þess að þær
f°ru að læra?
ristín: Eldri systir mín var í þessu
yrir og hún hvatti mig til þess að
Prófa.
^anna: Vinkona mín dró mig í þetta.
Hún hætti síðan en ég hélt áfram.
Birta: Mér fannst kjörið að fara í
djassballett eftir að ég hætti í fim-
leikum.
— Hvað finnst ykkur erfiðast í þess-
um tímum?
Kristín: Magaæfingar, ekkert vafamál!
Nanna: Splitt og spíkat.
Birta: Mér finnst það sama og Krist-
ínu, - magaæfingarnar.
Stelpurnar fræddu okkur á því að
þær fengju stundum strengi eftir erfið-
ar æfingar og losnuðu ekki við þá fyrr
en á næstu æfingu.
„En við látum það ekki á okkur fá.
Þetta er svo gaman,“ bættu þær við.
í lok námskeiðanna sýna nemendur
árangur erfiðisins. Þremenningarnir
hafa allir sýnt l-3svar eftir því hvað
hver þeirra hefur æft lengi.
„Við vorum mjög spenntar í upphafi
sýninganna," héldu þær áfram. „En
svo hvarf það alveg þegar dansinn
hófst.“
Þær Kristín, Nanna og Birta kváðust
vel geta hugsað sér að verða dansarar í
framtíðinni og einnig að kenna djass-
ballett. Birta bætti við að hana langaði
líka til að verða hárgreiðslukona.
Af hverju ætli strákar á þeirra aldri
hafi engan áhuga á þessum dansi?
Stelpurnar voru með svör á reiðum
höndum:
Kristín: Það þýðir ekkert að draga þá
með sér í þetta. Þeir vilja ekki leggja
þetta á sig.
Nanna: Þeir spyrja bara hvort við
séum eitthvað ruglaðar!
Áður en við kvöddum þessa hressu
viðmælendur spurðum við hvort þær
ættu önnur áhugamál en djassballett-
inn. Kristín og Nanna sögðu svo ekki
vera en Birtu þykir gaman að teikna
og gerir mikið að því.
í sama bili rétti blaðamaður aðra
höndina upp í vinkil, annan fótinn
fram og hinn aftur og snerist á hæli.
Stelpurnar skildu kveðjuna.
5