Æskan - 01.02.1987, Blaðsíða 29
ÆSKAN SPYR: (Spurt í Mýrarhúsaskóla)
Hvemig líkar þér að eiga heima á Seltjamamesi?
Helgi Kristján Torfason:
að er ljómandi gott. Ég hef átt hér heima
rá því að ég var 8 mánaða. Já, ég þekki
orðið marga Seltirninga, a.m.k. flesta í
esturbænum þar sem ég á heima. Aðal-
ahugamál mitt er að vera á skíðum. Ég fer
„ um helgar með pabba mínum upp í
'tálafell og við jafnvel gistum þar í skíða-
skála Hrannar. Stundum höldum við
^tkkarnir á Nesinu bekkjarpartí. Þau eru
®ðislega skemmtileg. Ekki er óalgengt að
Pau standi frá kl. 6 til miðnættis.
Guðni Helgason:
g
8 hef átt hér heima frá fæðingu að und-
Uskildum tveim árum sem við vorum á
°fn í Hornafirði. Pabbi minn er verk-
v$°ingur og þurfti að vinna við einhver
á iÁe^n' Þar- var a8ætt e’8a heima
. *Jöfn en hér er þó alltaf best. Ég er mikið
nandknattleik og körfuknattleik og á
arga vini. Svo á ég tvö hjól sem ég nota
mikið
£tla
a sumrin. Þegar ég verð fullorðinn
eg að verða annað hvort læknir eða
Verkfræðing
;ur.
Kristín Loftsdóttir:
Ég á heima í sömu götu og Helgi Kristján
og hef átt hér heima jafnlengi og hann fyrir
utan eitt ár þegar ég dvaldist með fjöl-
skyldu minni í Færeyjum. Eitt af því
skemmtilegasta, sem ég geri, er að vera í
knattspyrnu. Ég æfi með 3. flokki KR og
svo æfi ég handknattleik með Gróttu. Jú,
stelpur eru miklu minna í fótbolta en strák-
ar. En það verður ekki langt þangað til
þetta verður orðið jafnmikið áhugamál hjá
okkur og þeim.
Sjöfn Elfsa Albertsdóttir:
Steinunn Hildur Sigurðardóttir:
Ég hef átt hérna heima í rúm 4 ár og líkað
vel. Ég fluttist hingað frá ísafirði. Það voru
dálítil viðbrigði fyrst í stað. Það var eigin-
lega miklu meira við að vera á ísafirði. En
hér hef ég eignast ágætar vinkonur svo að
ekki þarf ég að kvarta. Við förum oft í
sund saman og leikum okkur í knatt-
spyrnu. Ég er yfirleitt í marki. Nei, ég er
ekkert hrædd við boltann. Þegar ég verð
stærri langar mig til að verða listmálari. Ég
hef mjög gaman af því að teikna.
Lúðvík Ásgeirsson:
Ég kann ágætlega við mig hérna. Ég flutt-
ist hingað fyrir einu og hálfu ári. Áður átti
ég heima í Reykjavík og þar áður í Hafnar-
firði. Hér eru miklu skemmtilegri krakkar.
Ég á eina vinkonu en hún er í Austurríki í
vetur. Ég hlakka til þegar hún kemur heim
aftur í vor. Aðaláhugamál mitt er leiklist.
Nei, ég ætla ekkert frekar að verða leikari.
Kennarinn minn heitir Gísli Arnkelsson og
hann er sá besti sem ég hef haft.
Já, hér er alveg ágætt að búa. Ég á marga
vini og hef alltaf nóg fyrir stafni. Ég á hest
sem heitir Þytur og það fer dálítill tími hjá
mér í að sinna honum. Stundum bregð ég
mér í útreiðartúr og jafnvel með vini mín-
um sem á líka hest. Þytur er 10 vetra og
góður hestur. Svo á ég líka kanínur en það
er minni vinna að hugsa um þær en hest-
inn. Þær eru geymdar í kofa rétt hjá heim-
ili mínu. - Stundum eru haldin diskótek í
skólanum en ég nenni sjaldan að fara á
þau. Það er miklu skemmtilegra að fara í
bíó.
29