Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 5

Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 5
oq eldhús W-------; Framhaldsþættir eftir KristTnu 5teinsdóttur Lára notaði tækifærið °g byrjaði að vinna á meðan hin rifust. Hún tók fjólubláa málningu °g byrjaði að mála sóffaborðið. Æðislegt. . .! sagði Vigga. Vigga opnaði næstu málningardós. f*ar var rauð málning. Hún skellti henni á gamlan stól. Fyrr en varði voru allir farnir að mála. Lau gleymdu sér alveg og þau gleymdu líka að passa fötin sín. Lau voru í skólafötunum. Jonni og Lára voru 1 heiðbláum íþróttagöllum en Vigga og Elli 1 nýjum gallabuxum. ~ Frábær stóll, sagði Elli glaður °g settist á nýmálaða stólinn hennar Viggu. Legar hann stóð upp var rassinn eldrauður. Jonni missti græna málningu °fan á nýju skóna sína. En það tók enginn eftir neinu. J*að var svo ofsalega gaman. Um kvöldið komu allir pabbarnir °g mömmurnar heim. J*au ætluðu ekki að trúa sínum eigin augum. Garðurinn var fullur af marglitum húsgögnum. Og þau sáu fjóra krakka í öllum regnbogans litum önnum kafin við að mála. *SKANi - Hvað er að sjá þig Vigga? æpti mamma reið. - Nú skaltu þó verða flengdur, kallaði pabbi Ella og stökk út í garð. Hann þreif í Ella en fékk þá bláa málningu í nýja jakkann sinn. Krakkarnir fóru að hlæja. Pabbi beit bara saman tönnunum. Hann langaði mest til að arga. Hann var svo þreyttur eftir langan dag. Mamma Jonna og Láru var reið. Hún var svo reið að hún gat ekkert sagt. Hún varð alveg hvít í framan. - Af hverju eruð þið svona reið? kallaði Lára glöð. - Sjáið þið ekki hvað þetta er flott? æpti Jonni eins og hann væri að tala við ömmu sína. - Ég sé bara hvernig garðurinn minn lítur út, hrópaði pabbi Viggu. Við hendum þessu drasli á öskuhaugana um leið og það er þornað. Krakkarnir voru öll rekin inn. Þau voru sett í bað og fötin þeirra í þvottavél. Þau fengu ekkert að horfa á sjónvarp en voru send beint í rúmið. Næsta dag hittust þau í skólanum. Þau voru leið og í gömlu skólafötunum. Sum voru með grænleitt hár og rauðar neglur sem minntu á ævintýri gærdagsins. - Uss, maður má ekkert gera! Fullorðið fólk er alltaf reitt, sagði Elli leiður. - Fullorðnir segja alltaf að við séum stór og getum passað okkur sjálf. En allt sem við gerum er vitlaust, sagði Vigga fýlulega. - Þegar ég verð stór ætla ég alltaf að vera heima og passa að börnin mín geri enga vitleysu. . . hrópaði Jonni og hljóp æpandi á eftir kennaranum inn í skólastofuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.