Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 11

Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 11
skemmtiatriði á þessa skemmtun og það lá beinast við að leita til Bjargvættarinnar Laufeyjar til að bjarga okkur,“ segir ^tefán. „Við fluttum eitt lag fyrir þann ‘amcnna hóp sem kom á skemmtunina. Lg man ekki lengur hvað það hét en Hendrikka Waage söng það með mér og Pr)ár stelpur sungu bakraddir. Svo vor- Um við með tvo dansara á sviðinu. Síðan Serðist það að fljótlega eftir þessa sam- komu plataði Björgvin mig með sér yfir í Sniglabandið og ég lét til leiðast.“ - Þurftirðu ekki að eiga mótorhjól etns og aðrir sniglar? ».Nei, ekki fyrst í stað en ég eignaðist Pað nokkru seinna. Nú er ég búinn að selja það.“ Örlagaríkt símtal Stefán lauk stúdentsprófi vorið 1986 °S helgaði Sniglabandinu krafta sína næstu mánuði. Það dró fyrst til tíðinda P)a hljómsveitinni á jólaföstu það ár. Þá sendi hún frá sér tveggja laga plötu með ^ögunum 750 cc Blús og Álfadans. Platan hét því frumlega nafni Fjöllin falla í ^auga. Strákarnir fylgdu plötunni eftir með því að leika á böllum víða um land. Fyrir kosningar 1987 söng Stefán lagið jvpán rauðar rósir sem Alþýðuflokkur- mn notaði sér til fulltingis í kosninga- Paráttunni. Hann var fyrst beðinn um að ieika í myndbandinu sem gera átti með Lginu en þegar á hólminn var komið bað Jakob Magnússon, sem fenginn var til að s)a um útsendingu lagsins, Stefán um að Prófa að syngja það fyrir sig. Jakobi leist svo vel á að hann réð hann sem söngv- Ura- Bins og lesendur muna varð lagið Átján rauðar rósir gífurlega vinsælt í Butningi Stefáns. Stefán var í Sniglabandinu í eitt og Pálft ár. Hljómsveitin sendi frá sér aðra Plötu haustið 1987 og nú fjögurra laga. Jíún nefndist Áfram veginn með mein- 'Jýr í maganum og fékk ágætar viðtökur. En hvar hófust kynni þeirra Sverris Stormskers? >»Við hittumst fyrst á skemmtun í Kvennaskólanum vorið 1987,“ svarar Stefán. „Sverrir var aðalnúmer kvöldsins Cn Sniglabandið aukanúmer. Hann gaf Sl8 á tal við mig, kvaðst vera mjög hrif- mn af söng mínum í Átján rauðum rós- Um- í framhaldi af þeim kynnum, sem tókust með okkur þetta kvöld, bauð Sverrir mér samstarf á hljómplötu sem í ráði var að gefa út. Jú, ég vissi nokkur Peib á honum fyrir þessa skemmtun. Hann hafði nýlega sent frá sér plötuna Lífsleiðin(n) en þar er meðal annars hið mjög svo vinsæla lag hans, Þórður, sem Bubbi Morthens syngur með honum. Ég söng síðan með Sverri á tveim breiðskíf- um, Örlög ’87 og Stormskers guðspjöll - auk þess að syngja verðlaunalagið Sókrates á stórri plötu sem gefin var út hér heima í tengslum við söngvakeppn- ina. Á henni söng ég líka annað lag en það var ekki eftir Sverri.“ og þá datt mér allt í einu í hug að slá á þráðinn til stelpunnar sem stjórnaði hon- um og biðja hana um að leika fyrir mig lag. Nú, Anna Björk varð fyrir svörum. Við höfðum einu sinni sést áður og talast lítillega við. Hún áttaði sig undir eins á því hver ég var þegar ég kynnti mig í símanum og við röbbuðum drjúga stund saman. Allt í einu datt mér í hug að bjóða þessari skemmtilegu og geðugu Við þessa upptalningu má bæta að Stefán söng með gömlu félögunum sín- um í Sniglabandinu lagið Jólahjól sem kom út á safnplötu fyrir jólin í fyrra. Svo syngur hann öll lögin á breiðskífunni Syngjandi sveittir með hljómsveitinni Sálin hans Jóns míns - en hann er nú í þeirri hljómsveit. Stefán er næst spurður að því hvort hann lifi á tónlistinni eingöngu. „Nei, auk þess að vera í hljómsveitinni vinn ég við dagskrárgerð á Rás 2. Annars erum við hjónin að kaupa íbúð um þess- ar mundir og ég er að litast um eftir öðru starfí til að drýgja tekjurnar. Þetta hefst ekki öðruvísi.“ - Heyrðu, þú minntist á konu. Segðu okkur frá henni og hvernig þið kynntust. „Hún heitir Anna Björk Birgisdóttir og er dagskrárgerðarmaður á Rás 2. Við giftum okkur 6. ágúst í sumar. Það er skrítið hvernig við kynntumst. Þannig var að fyrir einu og hálfu ári var ég í sam- kvæmi hjá kunningjum mínum. Við vor- um að hlusta með öðru eyranu á skemmtilegan tónlistarþátt í útvarpinu „Kannski förum við til útlanda að læra fjölmiðlafræði. “ stelpu í bíó kvöldið eftir. Og viti menn! Hún þáði það! Þarna hef ég sjálfsagt hagnast lítillega á frægðinni því að varla hefði hún samþykkt að fara út með hverjum sem var. Okkur leist svo vel hvoru á annað að við trúlofuðum okkur um jólin í fyrra og giftum okkur í sum- ar.“ - Að síðustu: Hvað er framundan á tónlistarsviðinu? „Eins og komið er fram verð ég með þætti á Rás 2 í vetur. Þrír félagar í Sál- inni hans Jóns míns eru að hætta en við Guðmundur Jónsson ætlum að halda í horfrnu og fá aðra til liðs við okkur. Við Anna Björk höfum mikinn áhugaá fjölmiðlum og þegar við erum komin yfir erfiðasta hjallann með að borga af nýju íbúðinni getur vel farið svo að við leggj- um land undir fót og höldum til útlanda til að læra fjölmiðlafræði. Tíminn verður að leiða það í ljós.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.