Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 41
Dire Straits
Við viljum taka undir með þeim sem
beðið hafa um veggmynd með Dire
Straits. Við vitum um marga sem vilja
mynd af þeim. Okkur langar til að vita
sem mest um Dire Straits og hvort hljóm-
sveitin er hætt.
Með fyrirfram þökk.
Hanna Bima Jónsdóttir og
Amdís Dögg Amardóttir,
Kópavogi.
Svar:
Dire Straits er eiginlega hljómsveit gít-
arleikarans, söngvarans og söngvasmiðsins
Markúsar (Marks) Knopflers, fyrrverandi
kennara og blaðamanns. Hann fæddist í
Glasgow í Skotlandi 12. ágúst 1949. Mark-
ús var alls staðar pikkandi á gítar hvar
sem hann gat því við komið frá barns-
aldri. 1976 fór bankastjórasonurinn John
Illsley að leika á bassagítar undir gítarpikk
hans. Davíð, bróðir Markúsar, og flciri
bættust í hópinn nokkru síðar. Fljótlcga
varð Ijóst að Dire Straits var orðin alvöru-
hljómsveit. Þeir félagar „tróðu upp“ hvar
sem þcir gátu, oftast launalaust fyrst í
stað. Gæfuhjólið byrjaði að snúast þegar
bandaríska poppfönksveitin, Talking
Heads, fékk Dire Straits til að „hita upp“
hjá sér í hljómleikaferð um Bretland.
Dire Straits lögðu 10 þúsund kr. í að
hljóðrita lagið „Sultans of Swing“. Þcim
tókst að koma laginu á fastan spilunarlista
hjá útvarpsstöð í Englandi. í kjölfarið
fylgdi plötusamningur við Vetigo. Fyrsta
platan, samnefnd hljómsveitinni, kom á
markað í maí 1978. Af henni náði lagið
„Sultans of Swing" miklum vinsældum og
platan náði 1. sæti ástralska og ný-sjá-
lenska vinsældalistans. Þar munaði mest
um sérkennilegt og lipurt gítarpikk Mark-
úsar. Hann varð undir eins eftirsóttur sem
íhlaupagítarleikari Bobs Dylan, Steelys
Dans, Van Morrisons o.fl.
1 áranna rás hafa nokkrar mannabreyt-
ingar átt sér stað hjá Dire Straits. Þær
hafa þó lítið breytt músík hljómsveitarinn-
ar því að hún byggir á framlagi Markúsar
að mestu leyti. Músík Dire Straits var á
sínum tíma ranglega flokkuð með
nýbylgju. Dire Straits kom ncfnilcga fram
á sjónarsviðið þegar pönkbyltingin breska
var að ala af sér fjölbreytta nýsköpun í
músík. Yngri nýbylgjuáhangcndur þekktu
ekki kántrí-blús J.J. Cales né Bobs Dyl-
ans á síðhippaárunum og visu því ekki að
músík Dire Straits var fornfáleg og hippa-
leg. Plötur Dire Straits hafa að undan-
förnu setið í efstu sætum þeirra vinsælda-
lista þar sem talin er sala á geisladiskum.
Það styrkir grun um að Dire Straits sé í
mestu dálæti hjá fólki á fimmtugsaldri.
Vinsældakannanir barna- og unglinga-
blaða staðfesta þó að Dire Straits njóta
sömuleiðis mikilla vinsælda meðal æsku-
fólks.
Síðustu árin hefur Dire Straits verið í
hálfgerðu sumarfríi. Þegar þeir félagar
komu fram á Nelson Mandela-hljómleik-
unum í sumar höfðu þeir ekki hist frá því
í fyrra.
Póstáritun Dirc Straits er:
Dire Straits, - Damage Management,
10 Southwick Mew, London W2, Eng-
land.
JÓJÓ
Kæra Popphólf!
Mig langar til að vita hvort hægt sé að
hafa viðtal við Jó-jó og mynd af söngv-
aranum? Hvað er hann gamall og hvert á
að senda aðdáendabréf til hljómsveitarinn-
ar?
B. Hilmarsdóttir.
Svar:
Ingimar Oddsson er tvítugur og er að
leika í kvikmynd Þráins Bertelssonar um
þessar mundir (höfundar „Nýs lífs“,
„Löggulífs“, „Dalalífs" o.fl. mynda).
Myndin verður frumsýnd á næsta ári.
- Viðtal við Jó-Jó er að finna í þessum
poppþætti.
Sálin hans Jóns
míns
Kæra Popphólf!
Getur þú sagt mér frá heimilisfangi Sál-
arinnar hans Jóns míns og birt veggmynd
af henni?
Maggx Sím.
Svar:
Prófaðu að skrifa til útgefanda Sálarinn-
ar:
Steinar hf.,
Nýbýlavegi 4, 200 Kópavogi.
Boy Qeorge,
Michael Jackson
Kæra Popphólf!
Getur þú gefið mér upplýsingar um að-
dáendaklúbb Boys Georges og Michaels
Jacksons?
Henný Guörún Gylfadóttir,
Reykási 22, Reykjavík.
Svar:
Boy George, - P.O Box 40,
Ruislip, Middlesex, HA4 7ND,
England.
The Wonderful World
of Michael Jackson,
P.O. Box 1804, Encino,
California 91426, U.S.A.
Þungarokk
Kæra popphólf!
Á límmiðunum ykkar eru aðeins popp-
arar en engir þungarokkarar. Þið hljótið
að geta látið eins og tvo límmiða vera af
þungarokkurum eins og þcim sem Pat-
reksfirðingurinn nefndi í einu Æsku-blaði
um daginn.
Reiður þungarokkari.
GSKANi